Ský - 01.04.2007, Síða 33
sk‡ 33
Rannsóknarniðurstöður
telja vafasamt að sterar
auki getu
Enginn í lyfjanefnd fær leyfi til að framkvæmda lyfjapróf fyrr en
eftir að hann hefur öðlast til þess réttindi, jafnvel þótt um lækni eða
annan starfsmann úr heilbrigðisstéttum sé að ræða. Áslaug segir að í
Svíþjóð sé lögreglan farin að framkvæma lyfjapróf og e.t.v. sé tíma-
bært að fara að skoða þann möguleika hér heima á Íslandi. Árlega er
haldið lyfjaeftirlitsnámskeið.
Um 120 lyfjaprufur er teknar á ári hér á Íslandi, voru 128 á sl.
ári, og kostar hver prufa um 40 þúsund krónur, og er kostnaður því
um hálf milljón króna. Skylt er að greiða þeim sem taka lyfjapróf
en íþróttamaðurinn sem tekur það gerir allt sjálfur, pissar í glasið og
gengur frá því til sendingar á rannsóknarstofuna, þó að viðstöddum
þeim sem framkvæmir lyfjaprófið til að tryggja að rétt þvag fari í
glasið. Á árinu 2005 reyndust tveir vera jákvæðir og voru dæmdir
í tveggja ára bann, en árið 2004 reyndust sjö vera jákvæðir en þrír
dæmdir í bann. Enginn hefur til þessa fallið á þessu ári. Vonir standa
til að hægt verði að auka fjölda lyfjaprófa, en menntamálaráðuneytið
hyggst auka fjárveitingar til þessarar starfsemi. Í ár var fjárveitingin
sjö milljónir króna en rannsóknarkostnaður hefur hækkað hlutfalls-
lega meira en fjárveitingin milli ára. Íþróttaiðkendur innan ÍSÍ eru
í dag um 69.100 talsins, svo 120 lyfjapróf er ekki stór hluti þess
hóps.
„Það er orðið aðkallandi að fá tvo starfsmenn í 100% starf til
þess að hægt sé að sinna þessu starfi af einhverri skynsemi. Ég tel
orðið nauðsynlegt að þýða efni frá Norðurlöndunum, þar er af nógu
að taka. Norðurlöndin standa mjög framarlega á þessu sviði, ekki
síst Norðmenn, og fyrir Ólympíuleikana sem fara fram í Kína árið
2008 er í undirbúningi að gefa út sameiginlega bæklinga og efni.
Nú heyrast einnig háværar kröfur um að allir sem fari til keppni á
Ólympíuleikum gangist áður undir lyfjapróf.
Við gerum áætlun í byrjun hvers árs en hún kann að breytast
skyndilega. Hún er hins vegar ekki gefin upp, enda verðum við að
vera sveigjanleg. Ég hef áhuga á því að lyfjaeftirlitið sé á þjóðfélags-
legri vísu því það er þrátt fyrir allt minnst notað af ólöglegum efnum
innan íþróttahreyfingarinnar. Þessi notkun í þjóðfélaginu veldur
meiri árásargirni, hraðakstri og fleiru. Í þessu eru Norðmenn og Svíar
að vinna og Danir mega taka lyfjapróf í heilsuræktarstöðvunum, t.d.
hjá þeim sem æfa fitness. Jákvæð niðurstaða leiðir til þess að viðkom-
andi fær ekki að æfa í líkamsræktarstöðinni. Í dag höfum við leyfi til
að fara inn á líkamsræktarstöðvar til að taka lyfjapróf á iðkanda sem
er innan ÍSÍ, en ekki hjá öðrum. Okkur langar til að koma því á að
til þess að fá að æfa í líkamsræktarstöð þurfir þú að skrifa undir það
að taka megi af þér lyfjapróf. Þessi beiðni hefur ekki verið lögð fyrir
stöðvarnar. Það verður ekki gert fyrr en við höfum mannskap til að
sinna þessu. En við erum að auka fræðsluna.
Einnig er stefnt að því að koma lyfjamálunum út úr ÍSÍ líkt og
gert er á Norðurlöndunum nema í Svíþjóð. Það kemur í veg fyrir
grun um misbeitingu,“ segir Áslaug Sigurjónsdóttir, formaður lyfja-
eftirlitsnefndar ÍSÍ.
Sterar gera ekki gæfumun
Sterar er samheiti yfir fituleysanleg efni í líkamanum sem hafa flókna
byggingu, grundvallaða á grind úr sautján kolefnisfrumeindum. Kól-
esteról telst til þessa efnaflokks og er til dæmis notað í líkamanum til
að mynda sterahormón, þar á meðal kynhormón. Allir vefaukandi
Íþróttadópið
Á árinu 2005 reyndust tveir vera jákvæðir og voru dæmdir í tveggja ára bann, en árið 2004 reyndust sjö vera
jákvæðir en þrír dæmdir í bann. (Ljósm. Mbl.)