Ský - 01.04.2007, Page 42

Ský - 01.04.2007, Page 42
 42 sk‡ Hannibalistar og Hulduher ersónuleg átök og metnaður eru í flestum tilvikum undirrót sérframboða í íslenskum stjórnmálum síð- ustu áratugi. Alla jafna eiga framboð þessi sameig- inlegt að vera liðssafnaður um einstaka menn sem orðið hafa undir í sínum flokkum í átökum af einhverjum toga. Viðkomandi hverfa á braut og eindregnustu stuðningsmenn þeirra fylgja með. Flökkukindur og fallkandídatar úr öðrum flokkum ganga oft til liðs við þá. Í kjölfarið hefst undirbúningur að nýju framboði og kynnt er stefnuskrá sem gjarnan er útþynnt stefnuskrá þess flokks sem frumherjinn kemur úr. Pólitískur niðursuðumatur, ef þannig má að orði komast. Í kosningum fær framboðið oft fjóra til fimm menn kjörna, enda þótt skoðanakannanir hafi á fyrri stigum gefið vísbendingar um mun meira fylgi. Eftir kosningar lendir fram- boðið oftast í stjórnarandstöðu og deyr drottni sínum, jafnvel áður en kjörtímabilið er á enda, þótt undantekningar sanni þá reglu eins og fjallað er um í þessari grein. Sérframboð og skyndiflokkar hafa bæði komið á hægri og vinstri væng íslenskra stjórnmála. Framboðin eru þó fleiri á vinstri vængnum, enda virðist fylgispekt við Sjálfstæðisflokkinn eindregari en gerist á vinstri ásnum. Ósagt skal hins vegar látið hver vegna svo er. Í þetta sinn lítum við á sögu tveggja stjórnmálaafla sem komu og fóru en mörkuðu hvort með sínum hætti spor í íslenskri pólitík. Sameina lýðræðissinnaða jafnaðarmenn Samtök frjálslyndra og vinstri manna voru stofnuð árið 1969. Til- drögin má rekja aftur til ársins 1967 þegar hinn frægi Tónabíós- fundur Alþýðubandalagsins var haldinn. Þar var kosið á milli tillögu Hannibals Valdimarssonar – og þeirra sem töldust í frjálslyndari armi flokksins – um að Jón Baldvin Hannibalsson skipaði fjórða sætið á lista flokksins í Reykjavík og tillögu Einars Olgeirssonar og fylg- ismanna hans um að Ingi R. Helgason lögfræðingur skipaði sætið. Síðarnefnda tillagan sigraði með yfirburðum. Niðurstaðan varð til þess að Hannibal snerist til varnar. Hann hafði þá verið þingmaður Vestfirðinga, en flutti sig nú til Reykjavíkur og fór í sérframboð undir merkjum I-listans, einskonar hjáleigu frá Alþýðubandalag- inu. Í desember þetta sama ár sagði Hannibal hins vegar skilið við Alþýðubandalagið. Var hann utan flokka næstu misseri en var kjör- inn formaður Samtaka frjálslyndra og vinstri manna við stofnun þeirra í nóvember 1969. Yfirlýstur tilgangur með stofnun Samtaka frjálslyndra og vinstri manna var að sameina alla lýðræðissinnaða jafnaðarmenn í einum flokki. Fljótt varð ljóst að flokkurinn ætti fylgi að fagna, til að mynda meðal ungs vinstri sinnaðs menntafólks, sem hafði afskrifað Alþýðuflokkinn vegna langs samstarfs hans við Sjálfstæðisflokkinn í Viðreisnarstjórninni og hugnaðist ekki Alþýðubandalagið sakir tengsla þess við kommúnistaríkin í austri. Sömuleiðis hafði Hannibal Valdimarsson mikið persónufylgi, eins og kosningaúrslitin á Vest- fjörðum vorið 1971 vitnuðu um. Hannibal sneri aftur vestur og þar fengu Samtökin 24,7% greiddra atkvæða og Hannibal komst á þing með glans og tók Karvel Pálmason, kennara og lögregluþjón í Bolungarvík, með sér sem landskjörinn þingmann. Á landsvísu fékk flokkurinn alls 8,9% greiddra atkvæða og fimm menn kjörna. Þeir voru, auk þeirra sem framan eru nefndir, Björn Jónsson varaforseti ASÍ, Bjarni Guðnason prófessor og Magnús Torfi Ólafsson sem um þær mundir reið á öldufaldi aðdáunar alþjóðar sakir afburða frammistöðu í spurningakeppni Útvarpsins. Magnús Torfi var fyrr- verandi ritstjóri Þjóðviljans en var um þessar mundir starfsmaður Bókabúðar Máls og menningar. Felldu Viðreisnarstjórnina Hin stóru tíðindi kosninganna 1971 voru að Viðreisnarstjórnin missti meirihluta sinn á Alþingi, en slíkar aðstæður höfðu þá ekki komið upp síðan 1927 þegar stjórn Íhaldsflokksins undir forsæti Jóns Þorlákssonar féll. Landslagið var því gjörbreytt og Kristján Eldjárn forseti Íslands hafði í hendi sér hver formanna stjórn- málaflokkanna fengi umboð til stjórnarmyndunar. Eftir viðræður við flokksformennina fól forseti Ólafi Jóhannessyni, formanni Framsóknarflokksins, umboðið. Engu að síður voru Samtök frjáls- lyndra og vinstri manna í lykilaðstöðu, en innan flokksins var tekist á um tvær meginleiðir, það er hvort ganga skyldi til samstarfs við Alþýðuflokk og Sjálfstæðisflokk og endurreisa Viðreisnarstjórnina eins og Hannibal vildi – ellegar fara í vinstra samstarf. Viðhorfin voru annars mjög mótsagnakennd því „ ... þótt Hannibal segðist í nafni Samtaka frjálslyndra og vinstri manna koma viðreisnarstjórn- Sérframboð eru algeng í íslenskri pólitík en lifa sjaldnast lengi. Fjórflokkurinn er fastur í sessi: Texti: Sigurður Bogi Sævarsson • Ljósmyndir: Ýmsir P

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.