Ský - 01.04.2007, Qupperneq 61

Ský - 01.04.2007, Qupperneq 61
 sk‡ 61 Hrólfur hefur víða komið við í tónlistinni, búinn að spila jafnt í rokkhljómsveitum sem norskum lúðrasveitum þótt hans aðalstarfi undanfarin ár hafi verið óperusöngur. Hann er líka mikill athafnamaður, stofnaði Sumaróperuna í Reykjavík árið 2002 og hefur sett upp fimm sýningar með öðrum ungum söngvurum. Hrólfur á ekki langt að sækja tónlistaráhugann því eins og hann segir sjálfur þá er „mikið af tónlistarmönnum í fjölskyldunni, en óþægilega lítið af íþróttaafreksmönnum“. „Pabbi minn er til dæmis ljómandi músíkant. Hann er geðlæknir og fæst við geðsjúka Norðmenn og Svía, en gaf sér samt tíma til að gefa út disk fyrir jólin. Það verður ekki aftur snúið þegar tónlistin er búin að ná tökum á manni,“ segir Hrólfur og hlær tröllahlátri eins eins og sönnum barítón sæmir. „Ég var látinn syngja fyrir fólk á alls konar mannamótum þegar ég var barn. Mest söng ég Megas því hann var átrúnaðargoð mitt á þessum tíma. Ég söng þó fyrst opinberlega í stundinni okkar þegar ég var þriggja ára. Þar söng ég refavísurnar úr Dýrunum í Hálsaskógi og það vildi ekki betur til en svo að ég fipaðist á næstsíðustu línu, leit beint í myndavélina og sagði: „Ég ruglaðist aðeins“. Svo byrjaði ég upp á nýtt og söng allt lagið aftur. Myndatökumaðurinn fullvissaði mig um að mistökin yrðu klippt burt, en mér til mikillar armæðu var allt sýnt. Ég reiddist Ríkisútvarpinu mjög og hef passað mig að rugl- ast ekki í sjónvarpsútsendingu síðan.“ Hrólfur tók snemma stefnuna á tónlistarferilinn. „Ég ætlaði að verða tónlistarmaður frá því að ég man eftir mér. Foreldrar mínir segja að ég hafi sungið frá því að ég fæddist, en ég uppgötvaði samt ekki að ég hefði rödd fyrr en ég var orðinn ungl- ingur. Ég fór í söngskólann og lærði hjá Guðmundi Jónssyni stór- söngvara og eftir það fór ég til Boston og lauk þaðan meistaragráðu í einsöng. Síðan hef ég bara verið að dýrka tónlistargyðjuna því maður er auðvitað bara aumt verkfæri í hennar höndum. Mér líður aldrei betur en þegar tónlistin grípur mig heljartökum. Ég á diskaspilara sem tekur 400 diska og stundum stilli ég bara á „random“ og læt koma mér á óvart, maður veit aldrei hvort það verður Kardimommubærinn, Wagner eða U2. Ég hef mjög breiðan smekk, en tónlistin verður samt að hafa vissan neista, eitthvað sem höfðar til mín og gefur mér eitt- hvað. Ég er svo heppinn að vera þeirrar náttúru að mér finnst alltaf skemmtilegast í því verkefni sem ég er hverju sinni og best líður mér á sviðinu þegar áhorfendur hrífast með. Annars held ég að mitt besta „gigg“ hafi verið þegar ég söng fyrir yngri son minn nýfæddan.“ Það eru spennandi hlutir að gerast hjá Hrólfi sem er nýkominn heim frá því að syngja fyrir umboðsmenn í Þýskalandi. Hrólfur er með kraftmikla, dökka en lýríska rödd sem þeir meta þannig að passi í stóru barítónhlutverkin, en það verða að teljast góð tíðindi fyrir ungan söngvara. „Ég hef starfað hér heima um nokkurt skeið og þroskað röddina og sjálfan mig sem söngvara. Barítónröddin þroskast seint og maður er að toppa svona 45 ára. Þetta er því góður tími fyrir mig að reyna fyrir mér í helsta óperulandi heimsins, þar sem möguleikarnir á því sviði eru mun meiri en hér. Næst á dagskránni hjá mér eru upptökur á diski með tónlist eftir breska tónskáldið sir John Tavener. Þar syng ég, ásamt Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur og Kammerkór Suðurlands, undir stjórn Hilm- ars Arnar Agnarssonar. Svo er það tónleikahald um allt land, bæði einn og með öðrum, og væntanleg tónleikaferð til Ítalíu í sumar með félögum mínum í Rinascente-hópnum. Það eru sem betur fer anna- tímar fram undan hér heima þótt ég sé óneitanlega mjög upptekinn við það að koma mér á framfæri erlendis þessa stundina. Hrólfur Sæmundsson, barítón Besta giggið þegar ég söng fyrir nýfæddan son minn Hrólfi líður best á sviðinu þegar áhorfendur hrífast með. Flottir ungir söngvarar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.