Ský - 01.04.2007, Qupperneq 69
sk‡ 69
ingar auðveldar innlendum verkfræðistofum og verktökum að
taka að sér framkvæmdir og nota innlent vinnuafl. Ennfremur
er vert að geta mikilvægs hlutverks íslenskra flutningafyrirtækja
og annarra þjónustuaðila og síðast en ekki síst fulltingis íslenskra
banka sem hafa haft forystu um fjármögnun á uppbyggingu
álversins.
Norðurál er fjölmennur og eftirsóttur vinnustaður og störfin
eru fjölþætt. Hjá fyrirtækinu starfa m.a. verkfræðingar, tækni-
fræðingar, viðskiptafræðingar, sálfræðingar, efnafræðingar, eðl-
isfræðingar, líffræðingar, tölvunarfræðingar, vélvirkjar, vélstjórar,
rafvirkjar og rafsuðumenn, auk ófaglærðra starfsmanna sem öðl-
ast verðmæta þjálfun við störf sín og nám hjá álverinu.
Góður granni
Stefna Norðuráls er að þar starfi sem flest fólk úr nágranna-
byggðum enda hefur Norðurál skipað öflugan sess í samfélaginu
og átt veigamikinn þátt í að efla búsetu og atvinnutækifæri. Frá
því Norðurál tók til starfa á Grundartanga hafa þjónustugreinar
í nærliggjandi byggðarlögum blómstrað og eftirspurn eftir hús-
næði aukist til muna. Þessi jákvæðu áhrif eru meðal forsendna
þess að fyrirtækið geti talist ábyrgur þegn í samfélaginu.
Fyrirhugað álver í Helguvík
Frá árinu 2005 hefur verið unnið markvisst að undirbúningi
álvers í Helguvík. Við slíka vinnu þarf að fara í einu og öllu
eftir viðamiklu lögformlegu ferli. Lokahnykkurinn á því ferli er
kynning á mati á umhverfisáhrifum sem mun fara fram í maí.
Áformað er að jarðvegsframkvæmdir hefjist í lok árs 2007 og að
fyrsta afhending orku til álvinnslu verði árið 2010.
Gerður hefur verið samningur við Reykjanesbæ og Garð um
lóð undir álverið. Það verður á mörkum sveitarfélaganna, verk-
smiðjan sjálf að stærstum hluta í Garðinum en athafnasvæði
og hafnaraðstaða í Helguvík eru í Reykjanesbæ. Þannig hafa
sveitarfélögin tekið höndum saman um atvinnuuppbyggingu á
svæðinu, sem mátti nýverið þola stærstu hópuppsagnir í sögu
þjóðarinnar. Ljóst er að heimamönnum yrði mikill akkur í verk-
efninu enda yrði mikil aukning í framboði á fjölþættum og vel
launuðum störfum sem kæmu í stað þeirra 700 starfa sem glöt-
uðust með brottför varnarliðsins á síðasta ári.
Viljayfirlýsing liggur fyrir frá Hitaveitu Suðurnesja og Orku-
veitu Reykjavíkur um að tryggja orku til álversins og verið er að
ganga endanlega frá samningum þar að lútandi. Gert er ráð fyrir
að lagður verði háspennustrengur neðanjarðar 7-8 km leið frá
Fitjum að Helguvík en Fitjar eru vinstra megin við Keflavíkur-
veginn, rétt áður en komið er að afleggjaranum inn á gamla
Ábyrgur þegn
í íslensku samfélagi
Svona kemur aðkomubygging álversins í Helguvík til með að líta út.
Norðurál hefur frá upphafi valið það sem kalla mætti „íslensku leiðina“.