Ský - 01.04.2007, Blaðsíða 74
74 sk‡
Dalvíkurbyggð:
Það er mikið um að vera í Dalvíkurbyggð allt árið og menningarlíf
er þar fjölbreytt. Íslandsmót í hestaíþróttum verður í Dalvíkurbyggð
12. – 14. júlí, Fiskidagurinn mikli verður 11. ágúst í ár og Þorvalds-
dalsskokkið verður 30. júní. Dalvíkurbyggð er við utanverðan Eyja-
fjörð og samanstendur af Dalvík, Svarfaðardal og Árskógsströnd.
Íbúar sveitarfélagsins eru tæplega tvö þúsund.
„Sjávarútvegur, einkum fiskvinnsla og tengdar greinar, skipa
öndvegi í atvinnulífi sveitarfélagsins,“ segir Svanfríður Jónasdóttir
bæjarstjóri. „Árlega er vakin athygli á þessari staðreynd með Fiskideg-
inum mikla sem er haldinn hátíðlegur laugardaginn eftir verslunar-
mannahelgi. Á Dalvík rekur Samherji fullkomnasta fiskvinnsluhús
á Íslandi og þar eru einnig starfandi fleiri öflug fiskvinnslufyrirtæki.
Ferðaþjónusta er fjölbreytt og gistiaðstaða við allra hæfi. Í Dalvík-
urbyggð getur fólk t.d. stundað fuglaskoðun í Friðlandi Svarfdæla,
gönguferðir í Tröllaskagann, hvalaskoðun og heimsótt einstakan hús-
dýragarð að Krossum. Hér er einnig frábært berjaland.“
Mikil uppbygging og góður búsetukostur
Mikil gróska og uppbygging er í sveitarfélaginu, bæði á vegum ein-
staklinga og opinberra aðila. Nú er unnið er að gerð aðalskipulags
fyrir sveitarfélagið og deiliskipulags fyrir einstök svæði, m.a. höfnina
á Dalvík þar sem gera á aðstöðu fyrir Grímseyjarferju.
Unnið er að uppbyggingu innviða samfélagsins með lagningu
hitaveitu í dreifbýli og fyrsta skóflustungan að stækkun leikskólans
Krílakots var tekin í byrjun mars. Stuttu áður tilkynnti Sparisjóður
Svarfdæla að í kjölfar góðrar afkomu sjóðsins mundi hann standa að
byggingu menningarhúss og færa samfélaginu að gjöf.
Svanfríður segir að búsetukostir séu fjölbreyttir í Dalvíkurbyggð,
í sveit og í bæ, og þjónustustig hátt m.a. vegna nálægðarinnar við
Akureyri. „Þar er líka margbreytileg og góð þjónusta og þar af leið-
andi er Dalvíkurbyggð eftirsóknarverður búsetukostur fyrir fólk sem
vill njóta þess að búa í rólegu umhverfi en hafa samt greiðan aðgang
að fjölbreyttu atvinnulífi, menningu og þjónustu.“
Menningarlíf
Menningarlíf í Dalvíkurbyggð er öflugt. Starfandi er metnaðarfullt
leikfélag og í byggðasafninu Hvoli má einnig finna einstakt nátt-
úrugripasafn. Þar er líka hægt að skoða eigur, og máta skó, Jóhanns
Svarfdælings sem er hæsti Íslendingur sem uppi hefur verið en hann
var 2,34 metrar á hæð. Tónlistarlíf er fjölbreytt og stór hluti íbúanna
syngur í einhverjum hinna fimm kóra sem starfa í byggðarlaginu.
Svarfdælskur mars er menningarhátíð sem haldin er í mars hvert ár.
Þar er lögð áhersla á svarfdælska menningu og svarfdælska sérvisku af
ýmsum toga.
Í ár verða tvær stórar hátíðir til viðbótar í sveitarfélaginu: Íslands-
mót í hestaíþróttum, sem haldið verður 12.-14. júlí, og Fiskidagurinn
mikli þann 11. ágúst. Landsmótið í hestaíþróttum verður sannkölluð
veisla fyrir alla þá sem áhuga hafa á hestum og Fiskidagurinn mikli er
viðburður sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Af öllu þessu má sjá að Dalvíkurbyggð er kjörinn áfangastaður
fyrir alla fjölskylduna þar sem dvelja má í lengri eða skemmri tíma. sky
,
NORÐAUSTURKJÖRDÆMI
Svanfríður Jónasdóttir
bæjarstjóri við sundlaugina
í Dalvíkurbyggð.
Íslandsmót í hestaíþróttum
og Fiskidagurinn mikli meðal
ævintýra sumarsins
K
Y
N
N
IN
G