Ský - 01.04.2007, Blaðsíða 87
sk‡ 87
fyrstu kvikmynd, Waiting To Exhale, sem naut mikilla vinsælda. Í
nánast öllum hlutverkum voru svartir leikarar og í aðalhlutverkum
Whitney Houston og Angela Bassett. Hann leikstýrði síðan tveimur
kvikmyndum til viðbótar, Hope Floats (1998) með Söndru Bullock
og Harry Connick jr. í aðalhlutverkum og First Daughter (2004)
þar sem Katie Holmes lék forsetadóttur sem ekki lætur að stjórn.
Þá stofnaði hann eigið framleiðslufyrirtæki sem hefur bæði framleitt
kvikmyndir og sjónvarpsefni.
Forest Whitaker hefur ekki slakað á eftir leiksigur sinn í The Last
King of Scotland. The Air of Breath og Ripple Effect, sem hann lék í
áður en The last King of Scotland var tekin til sýningar, bíða frumsýn-
ingar. Myndirnar Vantage Point og Where The Wild Things Are eru í
lokavinnslu og um þessar mundir leikur Whitaker í sakamálamynd
sem nefnist Winged Creature þar sem mótleikkonur hans eru Kate
Beckinsale og Dakota Fanning.
Tengsl við Ísland
Það þótti tíðindum sæta þegar Baltasar Kormákur fékk Forest
Whitaker til að leika eitt aðalhlutverkið í A Little Trip To Heaven,
sem var tekin upp hér á landi þótt hún eigi að gerast í Minnesota.
Leikur hann rannsóknarmann á vegum tryggingafyrirtækis sem
vinnur að því að leysa tryggingasvindl. Eftir að grunsamlegt mál um
árekstur lendir á borði tryggingafyrirtækisins er hann sendur á stjá
til að kanna málið. Myndin fékk ágætar viðtökur þótt ekki hafi hún
fengið mikla dreifingu úti í hinum stóra heimi. Lagði Whitaker sitt
af mörkum til að gera hana eftirminnilega.
Ekki er Forest Whita-
ker laus við Ísland þar
sem Valdís Óskarsdóttir
klippir Vantage Point sem
verður frumsýnd í október
en í henni leikur Whitaker
eitt aðalhlutverkið. Valdísi
til aðstoðar er Sigvaldi J.
Kárason, en hann var ein-
mitt einn þriggja klippara
A Little Trip To Heaven.
Forest Whitaker hefur
alla tíð verið annálað
góðmenni, hann kemur
vel fyrir og er yfirleitt hinn alúðlegasti í viðkynningu. Ekki græðir
slúðurpressan mikið á honum. Whitaker hefur verið kvæntur leik-
konunni Keishu Nash í tíu ár. Þau hittust þegar bæði léku í Blown
Away. Þau eiga fjögur börn, tvö saman, Sonnet og True. Einn son,
Ocean, átti hann fyrir og hún átti fyrir dóttirina Autumn.
Þegar Forest Whitaker var nýlega spurður hverjar væru minn-
isstæðustu kvikmyndirnar af þeim sem hann hefur leikið í nefndi
hann þrjár: „Bird, vegna þess að í þeirri mynd tel ég mig hafa
þroskast sem listamaður. Ghost Dog: The Way of The Samurai vegna
þess að við gerð hennar fór ég að skilja sitthvað um sjálfan mig sem
ég hafði ekki áður gert mér grein fyrir. The Last King of Scotland,
vegna þess hvernig mér tókst að koma í eina persónu allt sem ég hef
lært á mínum leikferli.“ sky
,
hlutverkum sem urðu síðan þekktir, eins og Sean Penn, Jennifer
Jason Leigh, Nicolas Cage, James Russo, Anthony Edwards og Judge
Reinhold. Næstu árin lék Whitaker jöfnum höndum í kvikmyndum
og sjónvarpi og fékk smátt og smátt stærri hlutverk, meðal annars
gott hlutverk í Platoon, lék á móti Robin Williams í Good Morning
Vietnam, á móti Paul Newman í Color of Money og á móti Richard
Dreyfuss í Stakeout, misstór hlutverk sem hann gerði góð skil, en
ekki aðalhlutverk.
Eitthvað hefur Clint Eastwood séð í Forest Whitaker sem
tengdi hann við goðsögnina Charlie Parker þar sem Eastwood bauð
Whitaker titilhlutverkið í Bird. Sú mynd var byggð á síðustu árum
Parkers, sem hafði viðurnefnið Bird. Whitaker olli Eastwood ekki
vonbrigðum, stóð sig frábærlega í hlutverkinu, var sannfærandi með
saxófóninn og eins og áður segir hlaut hann verðlaun sem besti
leikarinn í Cannes. Í kjölfarið gat Whitaker farið að vanda betur
hlutverkavalið. Hann lék nú í mörgum gæðamyndum; einna eft-
irminnilegastur var hann í hlutverki hermannsins í The Crying Game
og sem mafíumorðinginn í Ghost Dog: The Way of the Samurai.
Forest Whitaker lék í mörgum myndum á tíunda áratugnum
en fór í leiðinni að líta í aðrar áttir og 1995 leikstýrði hann sinni
Idi Amin (Forest Whitaker)
í skotapilsi.
Forest Whitaker við tökur á A Little
Trip to Heaven.
Kvikmyndir
Hvernig
Forest
Whitaker
nálgaðist
Idi Amin
„Þetta var lífsreynsla sem
breytti lífi mínu. Ég fór til
Úganda með það í huga
að reyna að skilja hvernig
það væri að vera fæddur
og uppalinn í Úganda.
Ég vildi skilja hvernig þeir
matast, hvernig þeir ala
upp börnin sín og koma fram við eiginkonur sínar. Ég
fékk leyfi yfirvalda til að kanna allt sem mig langaði að
kanna. Ég settist með bróður Idi Amins undir mangótré
og hann sagði mér sögur af bróður sínum, hvernig
hann hefði verið og að hann hefði haldið tryggð við
fæðingarbæ sinn með því að stofna til knattspyrnu-
eða rugbyleikja. Allur þessi undirbúningur hjálpaði mér
við að skilja Amin, komast nærri hugsunum hans og af
hverju hann hagaði sér eins og raunin varð. Í lokin var
ég 24 tíma á sólarhring í hlutverki Amins, í vöku sem
draumi. Það var ekki fyrr en kvikmyndatökum lauk að
ég leyfði mér að sleppa persónunni. Það fyrsta sem ég
gerði þá var að fara í sturtu vegna þess að mér fannst
ég þurfa að skrúbba hann af mér. Ég lét það ekki
nægja heldur byrjaði að kalla og öskra til að losna við
rödd Amins og öðlast aftur mína eigin rödd.“