Ský - 01.04.2007, Qupperneq 88
88 sk‡
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
F
LU
3
45
61
10
/2
00
6
Safety on board
During take-off and landing seat belts must be securely fastened
and seats and tables in an upright position. Seat belts must also
be used at all times when the seat belt sign above the seats is
illuminated. Air Iceland also recommends that passengers use
the seat belts at all times when sitting in their seats. Smoking is
not permitted in domestic air services and on flights between
Iceland and other European destinations. Above the passenger
seats in the Fokker 50 you will find closed overhead
compartments for your hand baggage.
Electronic devices in the passenger cabin
The use of portable telephones, walkie-talkies, remote controlled
toys and other devices specifically designed to transmit radio
signals is strictly forbidden at all times as radio waves could
affect the very sensitive navigation equipment and digital
computers used in modern aircraft. The use of portable tape
recorders, CD players, lap-top computers, vido cameras and
electronic games is limited to the cruising phase of the flight and
forbidden during takeoff and climb as well as descent and landing
phases of the flight. Please show consideration for your fellow
passengers and only use these devices with earphones and
switch off the sound effects of computer games. The use of
heart pacemakers, hearing aids and other devices required for
medical reasons is of course not restricted.
Service on board
Air Iceland crews will do their utmost to make your flight as
pleasant and comfortable as possible. You can call a cabin
attendant by using the call button above your seat. On the
domestic routes Air Iceland offers complimentary coffee, tea,
water and soft drinks for children.
Öryggi um borð
Við flugtak og lendingu er ætíð skylt að hafa sætisbeltin spennt
og sætisbök og borð í uppréttri stöðu. Einnig er skylt að hafa
sætis- beltin spennt þegar kveikt er á viðeigandi
upplýsingaskiltum fyrir ofan sætin. Mælt er eindregið með því að
farþegar hafi sætisbeltin ætíð spennt. Reykingar eru hvorki leyfðar
í innanlandsflugi né í flugi milli Íslands og annarra Evrópulanda.
Fyrir ofan farþegasætin í Fokker 50 eru lokaðar hillur fyrir
handfarangur.
Rafeindatæki í farþegarými
Notkun farsíma, „lab rabb“ tækja, fjarstýrðra leikfanga og annarra
tækja sem sérstaklega eru hönnuð til að senda frá sér útvarps-
bylgjur, er ætíð stranglega bönnuð um borð í flugvélum Flugfélags
Íslands. Notkun ferðasegulbandstækja, geislaspilara, fartölva,
sjónvarpsmyndavéla og leiktækja er aðeins leyfð í láréttu farflugi
flugvélanna og þar með bönnuð í klifurflugi, lækkunarflugi og
aðflugi til lendingar. Notið þessi tæki aðeins með heyrnartólum.
Ætíð skal vera slökkt á hljóðgjafa leiktækja. Notkun hjartagang-
ráða, heyrnartækja og annarra tækja, sem farþegi þarf að notast
við af heilsufarsástæðum, er að sjálfsögðu án takmarkana.
Þjónusta um borð
Áhafnir Flugfélags Íslands leggja sig fram um að gera farþegum
ferðina sem ánægjulegasta. Með því að ýta á hnapp fyrir ofan
sætið getur farþegi kallað á flugfreyju eða flugþjón. Í boði er kaffi,
te, vatn og svaladrykkir fyrir börnin.
Welcome on board Velkomin um borð
flugfelag.is / Sími 570 3030og er það Richard Gere sem leikur Irving.
Meðal annarra leikara eru Alfred Molina,
Hope Davis, Julie Delpy, Stanley Tucci, Eli
Wallach og Marcia Gay Harden. Leikstjóri
er Svíinn Lasse Hallström.
Paul Verhoeven, til hægri á myndinni
við tökur á Svörtu bókinni.
Svarta bókin
Það hafa skipst á skin og skúrir á ferli hol-
lenska leikstjórans Pauls Verhoeven. Eftir
glæsilega byrjun í heimalandi sínu náði
Hollywood að freista hans og þar lét hann
til sín taka svo um munaði, leikstýrði
Robocop, Total Recall og Basic Instinct, sem
allar fengu mikið umtal og metaðsókn.
Síðan kom Showgirls sem nánast gekk frá
ferli hans. Í kjölfarið fylgdu tvær miðlungs-
myndir, Starship Troopers og Hollow Man
sem báðar fengu litla aðsókn. Í kjölfarið
tók Verhoeven sér fimm ára frí, sneri aftur
til Hollands og þaðan kemur nýjasta kvik-
mynd hans, Zwartboek, sem hefur fengið
frábærar viðtökur og fína dóma gagnrýn-
enda. Gerist myndin í seinni heimstyrjöld-
inni í Hollandi og fjallar um gyðingastúlku
og hvernig hún fer að því að halda lífi.
Burt frá henni
Ekki veit ég hvort
Sarah Polley og
Julie Christie
kynntust fyrst
þegar þær voru við
tökur á No Such
Thing á Íslandi.
Allavega valdi
Polley Christie til
að fara með aðal-
hlutverkið í fyrstu
kvikmyndinni
sem hún leikstýrir,
Away From Her, kvikmynd sem vakið hefur
verðskuldaða athygli og bætir enn einni
rós í hnappagat hinnar ungu og frábæru
leikkonu. Fjallar myndin um konu sem á
við geðræn vandamál að glíma. Hún sam-
þykkir að verða sett á hæli og að hitta ekki
eiginmann sinn í 30 daga. Þegar eiginmað-
urinn fær loks að heimsækja hana þekkir
hún hann ekki og hefur auk þess orðið
ástfangin af öðrum sjúklingi. Mótleikarar
Julie Christie eru Michael Murphy, Gordon
Pinsent og Olympia Dukakis. sky
,
Einn af fyrstu stóru stóru sumarsmellunum verður Spider-Man 3, sem er í leik-
stjórn Sams Raimi. Það er Tobey Maguirre, sem hætti við að hætta og leikur
köngulóarmanninn í þriðja sinn og Kirsten Dunst leikur sem fyrr stúlkuna sem
hann elskar. Aðrir leikarar eru Thomas Hayden Church, sem er á myndinni með
Tobey Maguire, James Franco, Bryce Dallas Howard, James Cromwell og Cliff
Robertson. Spider-Man 3 verður frumsýnd hér á landi 4. maí, en það er sama
frumsýningarhelgi og í Bandaríkjunum.
Adam Sandler á
dramatískum nótum
Í Reign Over Me sjáum við dramatísku
hliðina á Adam Sandler. Leikur hann mann
sem missti eiginkonu og dætur í hryðju-
verkaárásinni 11. september. Hann hefur
einangrað sig frá vinum og ættingjum og
kemur ekki úr skel sinni fyrr en gamall
skólafélagi hans leitar hann uppi. Sandler
hefur einu sinni áður leikið í dramatískri
kvikmynd, Punch-Drunk Love með góðum
árangri, en eitthvað virðist Reign Over
Me hafa farið fyrir brjóstið á þeim sem
framleiða hana. Í upphafi átti að frumsýna
myndina í byrjun desember svo hún væri
gild til óskarsverðlaunanna, en var seinkað
þar til í lok mars. Leikstjóri Reign Over
Me er Mike Binder (The Upside of Anger).
Helstu mótleikarar Sandlers eru Don
Cheadle, Jada Pinkett Smith, Liv Tyler og
Donald Sutherland.
Adam Sandler brosir ekki í Reign Over Me.
Svindlið
Það eru sjálfsagt margir sem kannast við
nafnið Clifford Irving, en snemma á átt-
unda áratugnum hélt hann því fram að
hann hefði skrifað ævisögu Howards Hug-
hes sem byggð væri á viðtölum við Hughes.
Tókst honum að selja virtu bókaforlagi
handritið fyrir metfé. Ekki voru allir sáttir
við bókina og áður en hún fór í prentun
höfðu margir efast um sannleiksgildi skrifa
Irvings. Um síðir viðurkenndi hann að hafa
samið bókina án þess að hafa nokkurn tíma
hitt Hughes og var dæmdur í 16 mánaða
fangelsi. The Hoax segir frá þessum atburði
Julie Christie í hlut-
verki sínu í Away
From Her.
Bíófréttir