Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Page 23

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Page 23
Hvemig kyn og kyngervi spila saman og eru mótuð af samfélaginu getur samkvæmt þessu verið mjög misjafnt. í vestrænum samfélögum er reglan sú að kyn og kyngervi haldist í hendur. Konur klæða sig og hegða sér eins og konur meðan karlar klæða sig og hegða sér eins og karlar. Sé hins vegar einhver brestur á þessari fylgni, þá höfum við ýmsar skilgreiningar á slíkum undantekningum. Við tölum um strákastelpur og stelpustráka fyrir k\'nþroska í einhveijum tilfellum en slíkt er oftast litið nokkuð saklausum augum og þessir krakkar hafa sömu stöðu og aörir af þeirra eigin kyni innan samfélagsins. Svo eru til kynþroska einstaklingar sem hafa ánægju eða þörf fyrir að klæðast eins og aðilar af hinu kyninu. Þeir fvlgja augljóslega ekki reglunni en staða þeirra í samfélaginu er í raun og vem sú sama og annarra af þeirra eigin kyni. Þeir eða þær þurfa ekki þar með sagt að vera í felum með hneigðir sínar en hvað samfélagið og opinbem þætti snertir er staða þeirra óbreytt. Þeir eru flestir í sínum viðurkenndu hlutverkum yfir daginn og á opinberum vettvangi, hvemig sem þeir kjósa að haga sínu einkalífi. Annað gildir hins vegar um kynskiptinga en þeir skipta í raun algjörlega um hlutverk bæði í einka- og opinberu lífi. Enn aðrir laðast kyn- ferðislega aö sínu eigin kyni, en samkynhneigð er víðast hvar orðin viðurkennd í vestrænum samfélögum og samkynhneigöir hala öðlast ákveðinn sess sem þjóðfélagshópur. Það er rétt að taka það fram að í umræðunni um kyngervi fólks snýst málið ekki um orsakir hneigða fólks heldur um orsakir og ástæður þess hvemig einstaklingar líta á sjálfa sig og hvemig samfélagið lítur á þá. Kvngervi virðist því geta tekið á sig ýmsar myndir, a.m.k. í vestrænum samfélögum en kyn virðist einfaldara og í fastari skorðum. Það virðist hægt að úrskuröa um kvn einstaklings með einföldum hætti, annað hvort hefur viðkomandi karlkyns eða kvenkyns æxlunarfæri og kynið er eftir því. Eina óvissan sem upp getur komið í þessum efnum er þegar náttúran tekur upp á einhverju óvæntu. Það hendir annað slagið að böm fæðast með litningagalla þar sem kynlitningum er ofaukið eða þá vantar. Þar sem tæknin og þekkingin er til staðar er kyn þessara bama oftast ákvarðað á skurðarborðinu eða með lyfjagjöf. Það er aðeins um tvennt að velja, að vera karl eða kona. En er einliver nauðsyn fólgin í þessari tvískiptingu og er hún alls staðar fyrir hendi? II Samkvæmt Nordbladli og Yates má líta á karlkyn og kvenkyn sem sitthvorar öfgamar á sama líkamlega skalanum, og kyn afstætt frekar en fastskorðað ástand eins og gjaman er haldið fram (Nordbladli og Yates, 1990. bls. 222-37). Þeir telja upp níu flokka á milli XX (venjulegs kvenkyns) og XY (venjulegs karlk\ ns) í mögulegum samsetningum fynlitninga. I þessum flokkum er m.a. að finna ein- staklinga með samsetningar eins og XXY (sem eru stundum eins og kvenlegir karimenn en oft tvíkynja), XO (konur með lítil kvenleg einkenni) og XXX (svokallaðarofurkonur, þótt einkennin séu sjaldan mikil) o.s.frv. Þrátt fy rir að þetta séu tiltölulega óalgengar undantekningar þá dregur þetta úr algildi líffræðilegrar tvískiptingar fólks eftir kvni (Nordbladh og Yates, 1990, bls. 225).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.
https://timarit.is/publication/1111

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.