Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Síða 74
„Um siðfar áa
vorra ..."
Mynd 2
Dæmi frá Reykjanesbæ
um sköpun ímyndar og
sögu (Ijósm. höfundar).
Staða af jjessu tagi var til dæmis svo eftir-
sótt í býsanska heimsveldinu að foreldrar
buðu ffam sjni sína til geldingar (Gilchrist,
1999, bls. 58-60). Leiða má líkur að því
að eitthvað álíka hafí átt sér stað með
einstaklinginn sem grafinn var á Önd-
verðamesi, þ.e. að hann hafí verið álitinn
einstakur og af þeim sökum hlotið ríkulegt
haugfé.
Ekki er margt vitað um vönun á land-
námsöld. Samkvæmt Grágás virðist slíkt
ekki hafa verið litið jákvæðum augum.
Gelding var leyfileg við ákveðnar
kringumstæður en í Grágás segir: „Rétt
er að gelda göngumenn, og varðar eigi
við lög jtótt þeir fái örkumbl af eða bana”
(Grágás, 1992, bls. 108). Fyrir utan þessar
aðstæður var gelding refsiverð og
flokkaðist undir „hin meiri sár". Fólk var
dæmt til skóggangs ef það var fundið sekt
um slíkt: „Um víg ... Ef maður vegur
mann, og varðar það skóggang ... Svo er
og ef maður geldir mann eða höggur
klámhögg um þjó þver" (Grágás, 1992,
bls. 211). Ekkert fiessara atriða hjálpar þó
til við að varpa ljósi á tengslin milli
einkenna beinagrindarinnar á Öndverðar-
nesi og haugfjárhennar.
Kyn og kyngervi
Mike Parker Pearson segir í bók sinni The
Archaeology of Death and Bnrial, að
ítarlegar beinafræðilegar greiningar geti
ýtt undir staðlaðar ímyndir kynjanna og
að þær geti útilokað um leið aðrar
mögulegarkvngerðir (Pearson, 1999, bls.
97). Vissulega hefur hann mikið til síns
máls, því ef einblínt er um of á einhæfa
flokkun eftir líffræðilegn tvískiptingu kvns
er sú hætta fyrir hendi að farið sé á mis
við mörg mikilvæg atriði. I einstaka
tilvikum. líkt og á Öndverðamesi, gefúr
beinafræðin mikla innsýn inn í þá
óvenjulegu líffræðilegu eiginleika sem
Jxssi manneskja bjó yfír og hvert líkamlegt
útlit hennar var í augum samfélagsins.
Haugféð getur hugsanlega gefið innsýn
inn í hvaða stöðu manneskjan hafði í
lifanda lífi.
Sá möguleiki er jafnframt ætíð fvrir
hendi að beinagrindur úr kumlum séu
ranglega kyngreindar en þar hallar á hlut
kvenna því staðreynd er að í grafreitum
em karlmenn yfírleitt í meirihluta. Talið
72