Fréttablaðið - 05.10.2015, Síða 2
Fjórar sýningar að eigin vali
á besta verðinu.
Áskriftarkort
Borgarleikhússins
Vertu með
í vetur!
Miðasala
borgarleikhus.is
568 8000
Gæsaveiðin fór hægt af stað í haust vegna þess að vorið og sumarið var kalt og engar kjöraðstæður fyrir fugla að koma upp ungum. Dúi J. Landmark,
formaður Skotveiðifélags Íslands, segir að veiðin hafi breyst mikið undanfarin ár. Hlýrra sé í veðri og menn geti veitt fram í nóvember. Vilhelm
Gunnarsson ljósmyndari rakst á þennan hóp gæsa og álfta þegar hann var á ferð undir Eyjafjöllum. Fréttablaðið/VilhelmNáttúra Óttast er að brúin yfir Eldvatn
við Ása gæti hrunið í hlaupinu í Skaftá.
Hlaupið hefur grafið undan undir-
stöðum brúarinnar en um helmingur
þeirra stendur berskjaldaður við árfar-
veginn.
Þrátt fyrir varhugaverðar aðstæður
við Eldvatn er hlaupið í rénun en
Sveinn Kristján Rúnarsson yfirlög-
regluþjónn, segir að enn sé áin nokkuð
straumhörð.
„Fólk verður að fylgjast með því ef
eitthvað verður um lokanir á þjóð-
veginum og aka eftir merkingum.
Við getum lækkað hámarkshraðann
í kring um dyngjurnar. Fólk þarf að
fylgjast vel með og fara varlega.“
Skaftárhlaupið þetta árið er það
allra mesta á undanförnum árum en
við upptök hlaupsins, við Sveinstinda,
náði vatnsmagnið rúmum 2.100 rúm-
metrum á sekúndu.
Rennslið við Eldvatn náði hámarki
um hádegisbil á föstudaginn eða um
2.200 rúmmetrum á sekúndu. Vatnið
flæðir inn á hraunið sem umlykur
svæðið og gerir Veðurstofan ráð fyrir
að þar flæði meira næstu daga.
Hlaupið náði lágmarki í gær og
mælingar Veðurstofu sýndu að vatns-
magnið var rétt yfir 250 rúmmetrum
á sekúndu en flóðið byrjaði að aukast
rétt fyrir klukkan sex í gær og var
þá um 320 rúmmetrar á sekúndu. – srs
Brúin
hangir á
bláþræði
hlaupið náði hámarki um hádegisbil á
föstudaginn. Fréttablaðið/Vilhelm
Flogið yfir SuðurlandVeður
Samfélag „Ég er hæstánægður
með þessi verðlaun og það er
gaman hvað íslenskum kvik-
myndum gengur vel þessa dag-
ana,“ segir Grímur Hákonarson.
Kvikmynd hans, Hrútar, vann
um helgina Gullna augað á kvik-
myndahátíðinni í Zürich í Sviss.
Þetta eru aðalverðlaunin í flokki
alþjóðlegra kvikmynda í fullri
lengd en alls tóku fimmtán
myndir þátt í keppninni.
Grímur var viðstaddur verð-
launaafhendinguna í Zürich og
tileinkaði verðlaunin íslenskri
kvikmyndagerð. - ngy
Hrútar unnu
aðalverðlaunin
Grímur
hákonarson
Allhvöss suðaustanátt á austur-
helmingi landsins í dag, en mun
hægari um landið vestanvert.
Rigning sunnan til og á köflum
talsverð suðaustanlands, en lengst
af úrkomulítið fyrir norðan.
lögreglumál Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu lagði hald á tugi
kílóa af sterkum fíkniefnum sem
fundust í bifreið síðastliðinn
mánudag. Bifreiðin kom hingað til
lands með Norrænu 22. september
síðastliðinn.
Fjórir einstaklingar sitja nú í
gæsluvarðhaldi vegna málsins.
Tveir þeirra eru Íslendingar og tveir
Hollendingar og eru þeir á þrítugs
og fertugsaldri.
„Þetta er mjög stórt mál á
íslenskan mælikvarða en rann-
sóknin gengur vel,“ segir Aldís
Hilmarsdóttir, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn hjá Lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu, um málið.
Hún bætir við að ekki sé hægt að
veita upplýsingar um hvaða efni
ræði né magn þeirra. Hins vegar sé
um mikið magn fíkniefna að ræða.
Þá segir Aldís að efnagreining hafi
farið fram og að rannsókn málsins
sé í fullum gangi.
Þrír einstaklinganna voru
úrskurðaðir í þriggja vikna gæslu-
varðhald og einn þeirra í viku.
Hæstiréttur hefur staðfest alla
úrskurðina.
Þetta er þriðja stóra fíkniefna-
málið sem komið hefur upp á
Íslandi á stuttum tíma. Tollverðir
á Seyðisfirði fundu 80 kílógrömm
af MDMA í húsbíl sem kom einn-
ig með Norrænu til Seyðisfjarðar
í byrjun september síðastliðins.
Fundust efnin í niðursuðudósum,
varadekki bifreiðarinnar sem þau
grunuðu voru á og tveimur gaskút-
um. Hollenskt par situr nú í gæslu-
varðhaldi vegna málsins. Bæði
málin eru með stærstu fíkniefna-
málum sem komið hafa upp hér á
landi. Þá voru hollenskar mæðgur
stöðvaðar með tæplega tuttugu
kíló af fíkniefnum í Leifsstöð um
páskana.
„Það er mikið áhyggjuefni hversu
mikið magn virðist flæða hér inn í
landið en að sama skapi ánægjulegt
að vita að lögregla og tollur séu að
ná árangri í að hindra flæðið að ein-
hverju leyti,“ segir Aldís.
nadine@frettabladid.is
Fundu tugi kílóa af
sterkum efnum í bíl
Hámarksrefsing 12 ár
Þau grunuðu gætu átt yfir höfði
sér tólf ára fangelsisdóm vegna
málsins en það er hámarksrefsing
fyrir innflutning fíkniefna. Almenn
hegningarlög segja að hver sem
andstætt ákvæðum laga um ávana-
og fíkniefni flytur inn, flytur út,
kaupir eða lætur af hendi ávana- og
fíkniefni skuli sæta fangelsi allt að
12 árum. Samkvæmt tölum sem
Fangelsismálastofnun tók saman
fyrir vefritið Kjarnann í nóvember á
síðasta ári var meðallengd refsinga
þeirra fanga sem þá afplánuðu fyrir
stórfelld fíkniefnabrot í íslenskum
fangelsum, eða öðrum úrræðum
utan þeirra, um 68 mánuðir. Það
þýðir að meðallengd dóms hvers
og eins þeirra er fimm ár og sjö
mánuðir.
Það er mikið
áhyggjuefni hversu
mikið magn virðist flæða her
inn í landið
Aldís Hilmarsdóttir
aðstoðaryfirlög-
regluþjónn
Lögreglan lagði hald á tugi kílóa af sterkum fíkniefnum sem fundust í bifreið.
Bifreiðin kom til Íslands með Norrænu. Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna
málsins. Lögreglan segir áhyggjuefni hve mikið af fíkniefnum flæðir inn í landið.
5 . o k t ó b e r 2 0 1 5 m á N u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
1
-E
2
3
0
1
6
C
1
-E
0
F
4
1
6
C
1
-D
F
B
8
1
6
C
1
-D
E
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
4
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K