Fréttablaðið - 05.10.2015, Page 8
Þarftu aðstoð við
gerð ársreiknings?
Cand.oecon, viðskiptafræðingur í
reikningsskilum hjá www.skatt.is
S. 661 3703, skatt@skatt.is
Skatt - bókhald&skil ehf
Heilbrigðismál Eins og komið hefur
fram í umfjöllun Fréttablaðsins
síðustu daga geta rakaskemmdir og
myglusveppseitrun valdið alvarlegu
heilsutjóni til skemmri og lengri tíma.
Þeir sem veikjast vegna rakaskemmda
heima hjá sér geta sjálfir brugðist
við. En þeir sem veikjast vegna raka-
skemmda á vinnustað og mæta ekki
skilningi atvinnurekenda þurfa að velja
á milli starfsins og heilsunnar. Þótt
atvinnurekendur taki málin föstum
tökum er ferlið svo langt og óskipulagt
að hætta er á að fólk hrökklist hvort
eð er úr vinnu og geti átt erfitt með
að eiga afturkvæmt á vinnumarkað.
Kostnaðurinn er á herðum fólksins
sjálfs; læknaheimsóknir, lyf, veikinda-
réttur skerðist, atvinnuöryggi er ógnað
og heilsan verður aldrei söm. Til að fá
bætur þarf að fara í einkamál þar sem
sveppaveikindi eru ekki skilgreind sem
atvinnusjúkdómur á Íslandi.
Hrökklast úr starfi vegna myglusvepps
Þeir sem veikjast vegna myglusvepps á vinnustað hafa lítil sem engin réttindi þegar kemur að fjárhagstapi, heilsutjóni eða atvinnuöryggi.
Arndís Kjartansdóttir var að vinna í
átta ár í tölvudeild Hafnarfjarðarbæjar.
Hún var stöðugt með sveppaeinkenni í
fjögur ár af þeim tíma.
„Myglusveppurinn uppgötvaðist
ekki fyrr en síðastliðið haust en þá var
ég nýhætt að vinna þarna. Hafnar-
fjarðarbær átti mjög erfitt með að taka
við fréttunum og engin áætlun var til
staðar um hvernig ætti að bregðast
við. Starfsmenn voru að lokum sendir
í læknisskoðun hjá trúnaðarlækni en
hann skilaði engum niðurstöðum fyrr
en búið var að ganga hart að honum í
sjö mánuði.“
Arndís segir þrettán manns hafa unn-
ið í húsinu og telur hún að um helm-
ingur hafi fundið fyrir einkennum. Hún
segir viðhaldi á húsnæði ábótavant og
Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því
að viðgerðum sé ekki enn lokið. Fólk
vinnur samt enn í húsnæðinu.
„Það eru greinilega engir ferlar til að
fara eftir þegar svona kemur upp. Ég
held það sé allt of algengt að lítið sé
gert úr málinu og reynt að þagga það
niður. Kannski upplifa vinnuveitendur
skömm í kringum þetta. Svo flækir mál-
ið að aðeins hluti starfsmanna finnur
fyrir einkennum og vinnuveitandi getur
gert þannig lítið úr vandanum.“
Arndís situr uppi með viðvarandi
veikindi. „Fyrir utan fjárhagslegt og
líkamlegt tjón þá hugsa ég stundum
hvað hefði gerst ef ég hefði ekki hætt.
Ég hefði ekki viljað fara aftur í hús-
næðið. Ég hefði þurft að velja á milli
starfsins og heilsunnar.“
Vandanum er sópað undir teppi
Arndís segir að það verði að búa til feril
sem atvinnurekendur fara eftir.
FréttAblAðið/Anton brink
Petra Eiríksdóttir hóf störf á nýjum
vinnustað árið 2012 og varð fljótt ólík
sjálfri sér.
„Ég var týpan sem aldrei var þreytt,
stundaði nokkrar vinnur, hafði enda-
lausa orku og fannst svefn vera óþarfi.
En eftir marga mánaða vanlíðan og
endalausa þrautagöngu í leit minni að
svörum hvers vegna heilsu minni hafði
hrakað uppgötva ég að ég er orðin
sjúklingur – alltaf þreytt, skelfileg líðan
og með óbærilegt exem.
Veikindin tengdi Petra við vinnu-
staðinn þar sem henni skánaði alltaf
í fríum. Þá fór Petra í veikindaleyfi
en hún var orðin svo langt leidd að
það var ekki nóg að fara úr mygluað-
stæðum.
„Ég endaði á spítala og var göngu-
deildarsjúklingur þar til í júní síðast-
liðnum. Þá var ég að verða sjálfri mér
lík og hef störf á nýjum vinnustað í
ágúst síðastliðnum en þá blossa öll
einkennin upp aftur. Þá áttaði ég mig
á því að ég verð viðkvæm fyrir þessu
út ævina og mun líklega aldrei geta
verið í húsnæði með vott af raka-
skemmdum.“
Nýr yfirmaður Petru sýndi henni
mikinn skilning. Hún fór strax í veik-
indaleyfi sem dregst þó af veikinda-
rétti hennar, jafnvel þótt hún sé aðeins
veik í vinnunni. Ráðist var strax í að
athuga með rakaskemmdir á vinnu-
staðnum – sem er grunnskóli með
hundruð nemenda. Þetta var fyrir
mánuði og rannsóknum á húsnæðinu
enn ólokið. „Ef þetta væri eitthvað
annað en myglusveppur tel ég að væri
brugðist öðruvísi við. Ef það myndi
kvikna í væri reykhreinsað samdægurs
til þess að reykurinn hefði ekki slæm
áhrif á heilsu kennara og nemenda.“
Þar sem niðurstaða er ekki fengin í
málinu er Petra enn heima í veikinda-
leyfi. Hún viðurkennir að þessi óvissa
hafi tekið ansi mikið á andlegu hliðina.
„Ég var búin að hlakka til að komast
aftur út á vinnumarkaðinn en þarf
svo að fara strax aftur í veikindaleyfi.
Ég elska að vera innan um fólk en er í
hálfgerðri útlegð heima hjá mér. Bara
það eitt og sér að vera kippt út úr
sinni daglegu rútínu eykur vanlíðan.
Þrautagangan sem þessi veikindi hafa
verið er eitt og óvissan um framtíðina
er annað. Í öllum öðrum veikindum
ætti ég afturkvæmt í vinnuna mína.
Ég kæmist í kaffi til vinnufélaga í veik-
indaleyfinu og ég gæti hlakkað til að
hefja störf aftur. En nú er allt svo óvíst.
Kemst ég aftur í vinnuna? Verð ég aftur
veik? Hvað gerist þá – vill einhver ráða
mig ef ég kem alltaf upp um raka-
skemmdir og rándýrar framkvæmdir
fylgja í kjölfarið?“
Er að truflast á því að vera
föst heima í veikindaleyfi
Petra segir óvissuna um vinnuþátttöku sína vera versta. FréttAblAðið/Anton brink
„Við erum fjórar sem erum frá vinnu
á BUGL þessa dagana vegna myglu,“
segir Rósa Steinsdóttir listmeð-
ferðarfræðingur. Hún veiktist fyrst
fyrir tíu árum vegna myglunnar.
„Ég var að vinna í kjallaranum í
gömlu byggingunni og varð mjög
lasin. Þegar ég tengdi veikindin við
myglu bað ég um launalaust leyfi.
Ég var frá vinnu í eitt og hálft ár. Á
þessum tíma var lítil þekking og
umræða um myglusvepp og enginn
möguleiki að fá skrifað upp á veik-
indaleyfi.“
Vinnuaðstaða Rósu í kjallaranum
var gerð upp í kjölfarið. Engin sýni
voru tekin heldur eingöngu málað
yfir skemmdirnar. Svo í mars síðast-
liðnum, tíu árum síðar, þegar farið
var að kanna kjallarann greindust
átta tegundir af myglusvepp.
„Ég sneri aftur til vinnu árið 2007
en fékk nýja vinnuaðstöðu. Það gekk
vel þar til núna í vor, þá fóru ein-
kennin að koma aftur.“
Hvernig var tekið á því? „Í þetta
skipti var hlustað á mig. En það var
ekkert afgerandi gert í því strax. Í
ljós kom að fleiri voru að veikjast og
loksins var kallað til fyrirtæki sem
hefur sérhæft sig í þessu. En ég hef
verið frá vinnu frá því í júní.“
Rósa er enn að eiga við afleiðingar
af myglusveppnum þótt erfiðustu
einkennin hafi gengið til baka.
„Ég fæ enn endurteknar sýkingar í
nefhol og ég er mun viðkvæmari
fyrir sýkingum, til dæmis í munni.
Tannlæknakostnaðurinn vegna þess
er mikill undanfarin tíu ár og það hef
ég greitt úr eigin vasa. Ég reyndi að fá
stéttarfélagið mitt til liðs við mig en
það gat lítið gert þar sem þetta svið
er illa kortlagt.“
Rósa segir það hafa verið erfitt að
mæta úrræðaleysinu fyrir tíu árum.
„Það hefur orðið bylting á þessu
sviði en það þarf að gera betur. Vekja
áhuga fleiri vísindamanna á þessu
fyrirbæri og ferlið þegar myglu-
sveppur finnst þarf að ganga hraðar.
Það er ekki í lagi að veikindi, sem
orsakast af aðstæðum á vinnustað
og þú þarft mögulega að eiga við það
sem eftir er, skerði veikindaréttinn.“
Myglan grasseraði á BUGL í tíu ár
rósa hefur borgað hundruð þúsunda í tannlæknakostnað úr eigin vasa.
Myglueitrun ekki viðurkenndur atvinnusjúkdómur
Eina leiðin til að fá bættan fjárhags-
legan skaða, heilsutjón og skerðingu
á lífsgæðum sem verður vegna
myglusveppseitrunar á vinnustað er
að fara í skaðabótamál við atvinnu-
rekanda. Fólk þarf að greiða máls-
kostnaðinn sjálft.
Þetta staðfestir Víðir Kristjánsson,
deildarstjóri efna- og hollustuhátta-
deildar hjá Vinnueftirlitinu. „Vegna
þess hve erfitt er að sanna samband
á milli veikinda og myglusvepps
þá eru veikindin ekki skilgreind
sem atvinnusjúkdómur. Það sama
má segja um veikindaréttinn, það
er erfitt að fá vottorð frá læknum
sem staðfesta óyggjandi tengsl. Án
veikindavottorðs er lítið hægt að
gera í málinu.“
Víðir segir þó nokkurn fjölda mála
vegna rakaskemmda koma á hans
borð. „Ég get skilið að fólki finnist
eins og það sé ekki brugðist skjótt
við. Það þarf að taka sýni og greina
þau. Ferlið er ansi langt.“
En eru starfsmenn settir í hættu á
meðan? Til dæmis á Bugl?
„Þar eru um mistök að ræða.
Bæði var seint tilkynnt til vinnueftir-
litsins og mistök voru gerð hjá okkur
þegar farið var í húsið í fyrsta skipti.“
Er gert of lítið úr þessum málum?
Er þetta tískubóla? „Þetta er engin
bóla heldur raunverulegt vandamál.
Mögulega var tekið of létt á þessu
áður fyrr en það er öðruvísi í dag.“
Ef það myndi
kvikna í væri
reykhreinsað samdægurs til
þess að reykurinn hefði ekki
slæm áhrif á heilsu kennara
og nemenda.
Petra Eiríksdóttir
Ég reyndi að fá
stéttarfélagið mitt til
liðs við mig en það gat lítið
gert þar sem þetta svið er illa
kortlagt.
Rósa Steinsdóttir
Hafnarfjarðarbær
átti mjög erfitt með
að taka við fréttunum og
engin áætlun var til staðar um
hvernig ætti að bregðast við.
Arndís Kjartansdóttir
Það er erfitt að fá
vottorð frá læknum
sem staðfesta óyggjandi
tengsl. Án veikindavottorðs
er lítið hægt að
gera í málinu.
Víðir Kristjánsson,
deildarstjóri hjá
Vinnueftirlitinu
Erla Björg
Gunnarsdóttir
erlabjorg@frettabladid.is
Þolendur myglusvepps sem hafa orðið veikir á vinnustað
Leikskólar, þjónustumiðstöðvar, endurhæfingarstöð, líkamsræktarstöð, grunnskólar og skrifstofur á vegum ríkis
og sveitarfélaga eru meðal þeirra staða sem nefndir eru. Fjórir höfðu lent í veikindum á fleiri en einum vinnustað.
*Opin órekjanleg könnun á Facebook og einkaskilaboð til blaðamanns. Svör ríflega fjörutíu manns sem höfðu orðið veik á vinnustað voru notuð.
40%
áttu ekki aftur-
kvæmt til starfa á
sama vinnustað
20%
fóru í launað
veikindaleyfi
10%
fóru í ólaunuð
veikindaleyfi
20%
eru enn veik í
vinnunni
10%
áttu ekki aftur-
kvæmt á vinnu-
markað
5 . o k t ó b e r 2 0 1 5 m á N U D A g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
3
-9
9
A
0
1
6
C
3
-9
8
6
4
1
6
C
3
-9
7
2
8
1
6
C
3
-9
5
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
4
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K