Fréttablaðið - 05.10.2015, Page 20

Fréttablaðið - 05.10.2015, Page 20
Hvernig myndir þú lýsa baðherbergj- unum þínum? „Baðherbergin eru tvö og hvort með sinn karakterinn. Aðalbað­ herbergið er kvenlegra með frí­ standandi kari, steyptu gólfi og marmara. Það má segja að það sé undir smá Parísar­áhrifum. Gestabaðherbergið er aðeins töffaralegra með svörtum flísum sem lagðar eru í „herringbone“ eða fiskibeinamynstur frá gólfi og upp í loft. Í sturtunni er svo lóðrétt óbein lýsing sem skapar kynþokkafulla stemningu. Inn­ réttingar og blöndunartæki eru eins á báðum baðherbergjunum; sprautulakkaðar með viðarborð­ plötu og vaski á borði. Tækin eru svört.“ Á hvað lagðir þú áherslu – hver var innblásturinn? „Mig langaði til að prufa eitt­ hvað nýtt og njóta þess að hanna fyrir sjálfa mig og mína. Hug­ myndin var að skapa notalega en skemmtilega stemningu – eitthvað í líkingu við herbergi á „boutique“ hótelum þar sem oft ríkir nútímalegt og útpælt þema,“ segir Sæbjörg en henni þykir gaman að hanna baðher­ bergi sem minna á hótelbaðher­ bergi. „Ég vil hafa smá lúxus í bland við notagildi enda verja flestir miklum tíma á baðher­ berginu.“ Gestabaðið var upp­ haflega minna en Sæbjörg og Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is s. 512 5429 Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson. Stærra baðherbergið er kvenlegra með frístandandi kari, steyptu gólfi og marmara. MYNDIR/ANTON Sæbjörg sérpantaði blöndunartækin frá Ástralíu. Gestabaðið er töffaralegra með svörtum flísum sem lagðar eru í fiskibeinamynstur. Sápurnar á gestabaðherberginu eru frá Zara Home. Röndótta skálin var keypt í Marokkó. Höndin er frá Hay. Diskurinn undir Aesop sápunum, sem fást meðal annars í Ilmhúsinu, er frá ILVU og kertastjakinn líka. Svörtu eyrnapinnarnir eru frá Muji. Þessi skreyting er á stærra baðherberginu. Sæbjörg rekur hönnunarstofuna S i D. Hún útskrifaðist sem innanhússhönnuður árið 2011 og hefur unnið við fagið síðan bæði á arkitektastofum erlendis og hérlendis. Hægt er að skoða verk hennar á heima- síðunni sid.is Innréttingarnar og blöndunartækin eru eins á báðum baðherberjum; sprautulakk- aðar með viðarborðplötu og vaski á borði. Eitt mikilvægasta rými heimilisins Innanhússhönnuðurinn Sæbjörg Guðjónsdóttir segir eldhús og baðherbergi þau herbergi heimilisins sem skipta hvað mestu þegar kemur að því að selja eignir. Standi til að gera breytingar á þessum rýmum borgar sig því að vanda vel til verka og hugsa málin til enda. Sjálf keypti hún hús árið 2013 og hannaði meðal annars bæði bað og gestasalerni. Hún féllst á að sýna afraksturinn. eiginmaður hennar stækkuðu það til að rýma fyrir sturtu. „Það er því frekar langt og mjótt en ég ákvað að leika mér að lengd­ inni með því að leggja flísarnar í fiskibeinamynstur sem bein­ ist að endanum og heldur áfram upp vegginn og svo yfir loftið í sturtunni. Ég setti svo sérstak­ lega glært gler án festinga til að trufla ekki mynstrið.“ Hvaðan koma innréttingarnar, gólf- efni og flísar? Ég hannaði þær og fékk GKS til að smíða. Gólfið var steypt, pússað og mattlakkað. Flísarnar á gestabaðinu eru úr Flísabúð­ inni en ég lét saga þær niður til að gera mynstrið. Ég sérpant­ aði svo vaska og blöndunartæki frá Ástralíu því ég fann ekki það sem mig langaði í hér heima,“ segir Sæbjörg en hún er dugleg að fylgjast með nýjungum sem rata ekki alltaf hingað til lands. „Ég reyni alltaf að skapa eitt­ hvað nýtt fyrir hvern viðskipta­ vin og reyni yfirleitt að sérpanta eitthvað frá útlöndum enda ekkert gaman að fá hönnuð til að hanna fyrir þig rými sem er svo bara alveg eins og hjá næsta manni,“ segir Sæbjörg en hún hefur komið að hönnun hótela, veitingastaða og verslana ásamt því að hanna fyrir einkaheimili og skrifstofur.“ Að hverju þarf að huga þegar baðher- bergi er breytt? „Ég mæli auðvitað með að fólk leiti til fagmanns sem kemur með góðar lausnir og hannar rýmið svo það nýtist sem best og með þarfir eiganda í huga. Baðherbergi og eldhús eru þau herbergi sem selja hvað mest og mikilvægt að hugsa sig vel um áður en farið er af stað í breyt­ ingar. Það þarf að hugsa rýmið til enda og skipuleggja það vel.“ Að hverju þarf helst að huga varðandi lýsinguna? „Hún skiptir mjög miklu máli á baðherbergjum og þarf að vera góð til að rýmið nýtist sem best. Að mínu mati virkar góð blanda af beinni og óbeinni lýs­ ingu best. Oft breytir miklu að bæta dimmer á ljósin sem fyrir eru og best er að hafa þau ekki öll á sama slökkvara til að geta skapað mismunandi stemn­ ingu.“ Ljós beint ofan á höfuðið fyrir ofan spegil og vask mynd­ ar að sögn Sæbjargar skugga á andlitið. „Því þarf oft að bæta við vegglýsingu sem skín fram­ an á andlit eins og margir kann­ ast við í förðunarherberjum leik­ húsanna. Þetta skiptir sérstak­ lega máli ef ætlunin er að mála sig við spegilinn.“ Hvaða skraut og fylgihlutir finnst þér tilheyra á baðinu? „Það fer alveg eftir karakter íbúa. Mér finnst fólk þó mega vera að­ eins djarfara ef það er með gesta­ baðherbergi og nota til dæmis hringlaga spegil, skemmtilega vegglampa eða hangandi ljós. Það má líka alveg hugsa út fyrir kassann og skella myndum upp á vegg eða á hillu. Punkturinn yfir i­ið er svo auðvitað góður ilmur, sápur og kannski upprúll­ uð þvottastykki sem bíða gesta.“ Er einhver baðherbergistíska ríkjandi um þessar mundir? „Mér finnst margir vera að gera þau aðeins persónulegri. Blöndunartæki í öðrum litum en krómi eins og messing eða svörtu eru líka áberandi. Sömu­ leiðis opnar sturtur og frístand­ andi baðkör. Þá er ekki endi­ lega verið að skella flísum á öll gólf og upp um alla veggi, enda þarf þess heldur ekki. Það er til dæmis vel hægt að nota máln­ ingu eins og Akrýl 7 frá Lita­ landi en hún er frábær í stað flísa. Þá finnst mér lögun og stærð flísa líka vera að breyt­ ast. Þessar hefðbundnu 30x60 eru að víkja fyrir skemmti­ legum stærðum eins og 80x80 og 10X10 svo dæmi séu nefnd. Þegar kemur að fylgihlutum og skrauti má segja að Aesop og La:Bruket sápurnar tröllríði öllu ásamt fallegum grænum plöntum sem lífga upp á rýmið. Kynning − auglýsing 5. októbeR 2015 MÁNUDAGUR2 Baðherbergi 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 C 2 -A C A 0 1 6 C 2 -A B 6 4 1 6 C 2 -A A 2 8 1 6 C 2 -A 8 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 4 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.