Fréttablaðið - 05.10.2015, Side 21
Aldís Axelsdóttir sölustjóri segir nýja baðdeild rúmgóða og því hægt að sýna
fjölbreytt úrval, enda séu bað
herbergi afar misjöfn. „Reyndar
eru þau stærri hér á landi miðað
við víða annars staðar, en í flest
um tilvikum þarf að nýta pláss
ið mjög vel.“ Hún segir að það
sé nánast sama hver stærð bað
herbergisins sé eða að hvaða stíl
fólk sé að leita – það ætti að finna
eitthvað við hæfi í vöruúrvali
IKEA. „Veggfestu skápunum og
vaskaskápunum er hægt að raða
saman eftir þörfum. Flestir vilja
setja upp eins mikið af skápum
og plássið leyfir til að hafa sem
mest af hirslum. Svo er líka hægt
að fá frístandandi skápa á mjög
góðu verði,“ segir Aldís. Þar sem
plássið sé lítið henti best að hafa
handlaugina sem nettasta. „Þar
hentar til dæmis minnsta stærð
in í LILLANGEN línunni full
komlega, enda er hún hönnuð
til að nýta lítið rými sem best.
GODMORGON er svo vinsæl
asta línan okkar í baðherbergis
deildinni.“ Henni tilheyri breitt
úrval af vaskaskápum og vegg
skápum í nokkrum litum, spegl
um og lýsingu. „GODMORGON
hefur verið vinsæl um árabil,
enda falleg og sígild, og svo er
hún með 10 ára ábyrgð, eins
og öll blöndunartækin. Vegg
skápar með spegilhurðum eru
mjög vinsælir enda er tilvalið
að nýta plássið bak við spegil
inn fyrir snyrtivörur og smádót,
sem flestir kannast við að safn
ist upp á baðherberginu. Það
er í raun mjög mikið sem þarf
að koma fyrir á baðherberginu;
snyrtivörur, smádót, hreinlætis
vörur, handklæði, baðleikföng
og annað. Hirslurnar eru því
mjög mikilvægar svo hægt sé að
halda herberginu snyrtilegu,“
segir Aldís.
Einföld uppsetning
Hún segir uppsetningu á inn
réttingunum einfalda, og á
flestra færi að sjá um hana, en
viðskiptavinum standi líka til
boða fjölbreytt þjónusta gegn
vægu gjaldi ef þeir vilji það
heldur. „Ef ætlunin er að hanna
nýtt baðherbergi frá grunni er
Home Planner teikniforritið
okkar fyrsta stoppistöð. Það er
hægt að nálgast það frítt á vefn
um okkar. Þar eru allar innrétt
ingarnar, úrval af nýjum borð
plötum, vaskar, blöndunartæki
og aukahlutir. Það er því hægt
að leika sér með liti, vörur og
útlit þangað til rétta innrétt
ingin og heildarútlitið er fund
ið. Forritið heldur líka utan um
öll vörunúmerin svo ekkert
gleymist þegar komið er í versl
unina. Það er því mjög sniðugt
að nýta sér það sem mest,“ segir
Aldís.
Lítil skref breyta miklu
Ef f járhagurinn, t ími eða
annað bjóða ekki upp á al
gjöra yfirhalningu á baðher
berginu, eða ef innrétting
in er í góðu lagi en þörf á smá
endurnýjun, segir Aldís samt
hægt að gera mikið í smærri
skrefum. „Stundum þarf þó
ekki stórframkvæmdir til að
breyta heilmikið til. Það er
hægt að nota vefnaðarvöru,
spegla, plöntur og aðra auka
hluti til að gjörbreyta baðher
berginu á einfaldan og hag
kvæman hátt. Það getur gert
mikið að skipta aðeins um stíl,
skipta til dæmis stílhreinu stáli
út fyrir mynstur og mýkt – eða
öfugt,“ segir Aldís. Það sé alltaf
gaman að breyta til og að fólk
finni örugglega það sem vant
ar í baðherbergisdeild IKEA –
allt frá nýjum handklæðum til
innréttinga.
Notalegt baðherbergi gerir
daginn svo miklu betri
Baðherbergið er í aðalhlutverki á heimilinu í upphafi dagsins og aftur þegar honum lýkur. Herbergið tengist hreinlæti og snyrtingu
og því sjálfsagt að gera það sem notalegast. Baðherbergisdeildin í IKEA er nú sérstaklega glæsileg eftir umfangsmiklar endurbætur
nýlega. Þar er fjölbreyttum innréttingum stillt upp ásamt aukahlutum eins og speglum, lýsingu, smávöru og vefnaðarvöru þannig að
hver sá sem er að hugleiða endurnýjun á baðherberginu ætti að fá fullt af innblæstri og góðum hugmyndum.
Þegar innréttingin er komin á sinn stað er útlitið fullkomnað með fallegri smávöru. Litrík vefnaðarvara setur sterkan svip á
hvítt baðherbergi – og svo er einfalt að
breyta til eftir þörfum.
LILLÅNGEN línan er tilvalin á lítil baðherbergi. Grunnur vaskaskápur og hár skápur nýta
plássið til fulls.
GODMORGON línan er vinsælasta baðherbergislínan í IKEA, enda sígild og með 10 ára ábyrgð. Hér eru notaðir RÅGRUND aukahlutir úr
hlýlegum bambusvið, sem er umhverfisvænt og sterkt náttúrulegt hráefni.
Það eru ótal smáhlutir sem þarf að geyma á baðherberginu. Með snjöllum hirslum verða skúffurnar skipulagðar og óreiðan er á
bak og burt.
5. október 2015 3Kynning − auglýsing Baðherbergi
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
3
-2
8
1
0
1
6
C
3
-2
6
D
4
1
6
C
3
-2
5
9
8
1
6
C
3
-2
4
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
4
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K