Fréttablaðið - 05.10.2015, Qupperneq 22
Steindór Elísson, verslunarstjóri hjá Slippfélaginu í Dugguvogi, segir að algengt sé að fólk máli baðherbergi.
Það sé ódýrari kostur en að flísaleggja.
Einnig þurfi yfirleitt að mála eitthvað
meðfram flísum. „Gæta þarf að þegar
málað er í kringum baðkar eða sturtu að
hreinsa vel með góðum fituhreinsi. Það er
til mjög gott hreinsiefni sem heitir Delf-
in fettlösare sem vinnur vel á fitumynd-
un. Það er blandað einn á móti einum í
vatni og úðað á flötinn. Síðan er efnið látið
standa í 20 mínútur áður en það er skolað
af. Gott er að nota efnið í sturtuklefum og
á veggi í kringum baðkar.“
Steindór segir að ef málningin sé farin
að flagna við baðkarið þurfi að skafa allt
slíkt í burtu og spartla með rakaþolnu
spartli. Síðan er grunnað með vatnsheld-
um akrýlgrunni og síðan er mikilvægt að
mála með akrýl-málningu sem er til í fjór-
um gljástigum, 7, 20, 35 og 85% gljáa. Hún
er myglu- og sveppaþolin. Við ráðleggjum
fólki alltaf að nota slíka málningu á bað-
herbergi og jafnvel í þvottahúsum líka.“
Steindór segir að oft þurfi að mála loft-
in á baðherbergjum þótt veggir séu flísa-
lagðir og þá er þessi sama málning notuð.
Hún er miklu sterkari en venjuleg inni-
málning og hentar vel þar sem er mikill
raki og bleyta. Raki getur skapað sveppa-
myndun. „Ef notuð eru rétt efni gefst vel
að hafa baðherbergið málað í stað flísa,“
segir Steindór.
Þegar hann er spurður um vinsældir
lita um þessar mundir, segir hann að ljósir
litir séu alltaf vinsælastir. „Allir ljósir litir
eru vinsælir, alveg hvítir eða hvíttónað-
ir. Ég seldi reyndar svartan lit á baðher-
bergi fyrir stuttu, þannig að þetta er auð-
vitað misjafnt. Gráir tónar hafa sömuleið-
is verið vinsælir lengi en eru á útleið fyrir
pastelliti,“ segir Steindór sem hefur unnið
í málningarbransanum í 32 ár og veit hvað
hann syngur í þessum efnum. „Litatískan
fer alltaf í hringi.“
Steindór segir að ef málað er af fag-
mennsku og með vönduðum efnum geti
málningin dugað í sex ár og jafnvel leng-
ur. „Oft er fólk bara að skipta um liti frek-
ar en að málningin sé orðin ljót.“
Mikið hefur verið rætt um myglusvepp
undanfarið. Steindór segir að ef einhver
svartur blettur sjáist í hornum eða ann-
ars staðar á málningunni þurfi þeir sér-
staka meðhöndlun. „Við eigum til klór-
sápu sem heitir Alg & Mögeltvätt en hún
drepur alla virkni í blettinum. Efninu er
úðað á blettinn og látið standa í 20 mínút-
ur. Síðan þrifið á eftir. Þá er óhætt að mála
yfir án þess að eiga á hættu að myglu-
sveppur breiðist út.“
Þrífa þarf fitu af veggjum áður en
baðherbergið er málað aftur
Margir kjósa að mála allt baðherbergið í stað þess að flísaleggja. Oft eru flísar lagðar til hálfs á móti málningu. Það þarf þó að hafa
ýmislegt í huga áður en málað er og vanda skal til verksins. Ljósir litir eru vinsælastir um þessar mundir en pastellitir að koma.
Ljósir litir eru vinsælir á baðherbergið. Hægt er að fá fallega liti með handklæðum.
Hvít baðherbergi eru vinsæl um þessar mundir.
Pastel-litir eru þó að koma sterkir inn.
Hægt er að koma í veg
fyrir myglusvepp.
Sá allra dýrasti
Dýrasti klósettpappír sögunnar er úr 22 karata gullflögum og kostar rúllan
um 163 milljónir króna. Um er að ræða þriggja laga pappír sem fram-
leiddur er af ástralska fyrirtækinu Toilet Paper Man. Eftir að starfsmenn
þess höfðu notað gullslegið klósett í Dubai í Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum fyrir nokkrum árum kom þessi hugmynd eðlilega upp: Hvers
vegna ekki að fara alla leið og framleiða klósettpappír úr gullflögum?
Undirbúningur hófst strax við heimkomuna og nú er varan loks komin
á markað. Á þessu stigi hefur fyrirtækið þó bara framleitt eina rúllu enda
tæpast mikil eftirspurn eftir slíkri lúxusvöru.
Eðalvara á borð við þessa er seld í glæsilegum gjafaumbúðum auk þess
sem dýrindis kampavín fylgir að sjálfsögðu hverri rúllu. Viti menn ekki aura
sinna tal má skoða þann möguleika að fjárfesta í gullhúðuðu klósetti sem
Hang Fung Gold Technology Group selur en stykki kostar um 315 milljónir
króna.
Að sögn talsmanns fyrirtækisins er klósettpappírinn 100% öruggur fyrir
afturendann.
Gullklósettpappír
BAÐHERBERGIS-
Mán. - fim. kl. 09-18 - Föstud. kl. 09-17
Lokað á laugardögum í sumarÞitt er valið
Þú velur að kaupa innréttinguna í
ósamsettum einingum, eða lætur okkur um
samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við
líka uppsetningu og endanlegan frágang.
Fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
Fjölbreytt úrval aF hurðum, Framhliðum,
klæðningum og einingum
styrkur - ending - gæði
HÁGÆða DaNSKar
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
15Ára
StofNað 2000
iNNrÉttiNGar
Opið ánud. – föstud. kl. 09-18
laugard ga 11-15
Kynning − auglýsing 5. október 2015 MÁNUDAGUr4 Baðherbergi
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
3
-4
F
9
0
1
6
C
3
-4
E
5
4
1
6
C
3
-4
D
1
8
1
6
C
3
-4
B
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
4
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K