Fréttablaðið - 05.10.2015, Page 46

Fréttablaðið - 05.10.2015, Page 46
Sápur til SkrautS Það fer ekki fram hjá neinum sem skoðar íslensk jafnt sem erlend heimilis- og lífsstílblöð að sápur í hvers kyns pumpum njóta vinsælda á baðherbergjum. Það þykir smart að hafa fljótandi handsápu í fallegri pumpu við vaskinn og góðan handáburð í sams konar pumpu þar við hlið. Helst á lyktin að vera sú sama. Þarna bera Aesop-sápurnar höfuð og herðar yfir aðrar en þær koma í dökkbrúnum pumpum með einföldum hvítum miða og minna um margt á meðalaglösin í apótekum forðum. Sömuleiðis þykir smart að hafa sjampóið og hárnæringuna í stórum pumpum við baðkarið eða sturtuna. Það má því í raun segja að sápurnar hafi öðlast nýjan tilgang. Kynning − auglýsing 5. október 2015 MÁNUDAGUr8 Baðherbergi tækni á klóinu Margir vilja lesa blöðin á meðan þeir sitja á klósettinu, öðrum til mikils ama. Aðrir taka með sér spjaldtölvu eða snjallsíma. Nú hefur verið þróaður standur fyrir klósettpappír þar sem er sér- stakur haldari fyrir spjaldtölvuna. Fólk þarf því ekki að halda á iPadinum á meðan það gerir þarfir sínar. Það er amazon.com sem býður þennan „nytsama“ fyrir þá tölvuóðu. Söluaðilar segja að þetta auki þægindin á heimilinu, hægt sé að stilla spjaldtölvuna eftir þörfum hvers og eins. Hægt er að lesa bók, kíkja á blöðin eða jafnvel horfa á sjónvarpið án þess að þurfa að halda á spjaldtölv- unni. Standurinn er úr vönduðu krómi og hann kostar frá 3.832 krónum á amazon.com. Heilnæmt fótadekur Það er fátt betra en að fara í fóta- bað og láta þreytuna líða úr sér. Sé það gert reglulega og fæturnir snyrtir um leið eykst vellíðan um allan skrokkinn. Það er líka miklu skemmtilegra að vera með fallega snyrta fætur og þó tær þyki ekki endilega hin allra mesta prýði getur góð umhirða gert mikið fyrir útlit þeirra. Hér er uppskrift að góðu fóta- dekri. Fylltu hæfilega stóran bala með volgu vatni og bættu smá salti við en það virkar vel á sprungna hæla. Láttu fæturna hvíla í vatninu í um það bil 20 mínútur. Þerraðu fæturna vel á eftir. Stundum getur verið gott að raspa þurr svæði á eftir, sömu- leiðis að klippa neglur og þrýsta naglaböndum niður. Eftir það má skola fæturna og þerra á ný. Síðan er gott að bera á þá feit krem eða góðar olíur. Það er óþarfi að hlaupa út í búð eftir þeim. Alveg eins gott að nota ólífuolíu eða kókosolíu. Því næst er ráð að smeygja sér í góða sokka og skríða upp í rúm. Þannig mýkjast fæturnir yfir nóttina og verða fínir daginn eftir. Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 flísar fyrir vandláta PORCELANOSA 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 C 2 -8 5 2 0 1 6 C 2 -8 3 E 4 1 6 C 2 -8 2 A 8 1 6 C 2 -8 1 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 4 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.