Fréttablaðið - 05.10.2015, Page 50
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hera Karlsdóttir
ljósmóðir,
Hjallaseli 55, áður að Neðstaleiti 4,
lést á hjartadeild Landspítalans 28. september.
Fanney Davíðsdóttir
Ingibjörg Snorradóttir Guðm. Geir Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gottskálk S. Rögnvaldsson
fyrrverandi útsölustjóri ÁTVR
á Siglufirði
lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar,
Siglufirði, þann 29. september.
Útför hans fer fram frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 17. október kl. 14.
Rögnvaldur Gottskálksson Auður B. Erlendsdóttir
Gunnar Gottskálksson Erla Ó. Hermannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar og amma,
Arnbjörg Jónsdóttir Waage
lést 29. september.
Útförin verður frá Kópavogskirkju
8. október kl. 13.
Guðbjörg H. Waage
Ágústa Waage Ingólfur Tryggvason
Guðný Waage
og barnabörn.
1143 Konungsríkið León viðurkenndi sjálfstæði
Portúgals.
1923 Albert Guðmundsson, knattspyrnu- og stjórn-
málamaður, fæddist.
1944 Konur í Frakklandi fengu kosningarétt.
1946 Alþingi samþykkti að veita Bandaríkjunum
afnot af landi á Miðnesheiði.
Samningurinn olli miklum
deilum.
1946 Melaskóli í Vest-
urbæ Reykja-
víkur hóf starfsemi
sína.
1991 Blönduvirkjun var
vígð.
2011 Steve Jobs, banda-
rískur frumkvöðull og
hugvitsmaður á sviði
tæknivísinda, lést.
Merkisatburðir
„Jafnréttisstefnan sem við vinnum
að innan háskólans er mjög góð. Við
reynum að hafa dagana í ár skemmti-
lega og yfir þeim verður hátíðarbragur,“
segir Arnar Gíslason, kynjafræðingur
og jafnréttisfulltrúi Háskóla Íslands, en
Jafnréttisdagar 2015 hefjast í dag.
Viðburðurinn eru haldinn sjöunda
árið í röð og lýkur dagskránni föstudag-
inn 16. október næstkomandi.
„Jafnréttisdagar tvinna saman hinar
ýmsu víddir jafnréttis og skoða fjöl-
breytileika, forréttindi, þöggun, jafn-
réttisbaráttu, vald og mismunun,“ segir
Arnar og nefnir sem dæmi að fléttað
verði saman jafnrétti kynjanna og
íslamófóbíu. Áhersla verði lögð á þau
tækifæri sem skapast með því að setja
hugmyndir um hið „eðlilega“ og hið
undirskipaða undir smásjána.
„Dagskráin er fjölbreytt og byggist á
þverfaglegu samstarfi þar sem gerð er til-
raun til að sameina hátíðarbrag og gagn-
rýna sýn á jafnréttismál,“ segir Arnar.
Hann segir að leitast verði við að
skapa opna umræðu og aukinn skilning
á jafnrétti ásamt því að auka sýnileika
jafnréttismála og virkja þá fjölmörgu
aðila sem vinna að jafnrétti.
Jafnréttisdagar eru samstarfsverk-
efni Háskóla Íslands og Listaháskóla
Íslands en allir háskólar á Íslandi taka
þátt í dögunum í ár. „Síðan byggist þetta
líka á samstarfi milli fólks sem kemur úr
ólíkum áttum. Til dæmis vinna sumir
sem mæta í stjórnsýslunni, sumir eru í
námi og aðrir í kennslu eða rannsókn-
um. Einnig kemur fólk með mismunandi
pælingar. Til dæmis koma sumir með
hinsegin pælingar, til dæmis um mál-
efni trans fólks og aðrir með pælingar
um jafnrétti kynjanna.“
Fyrsti viðburður Jafnréttisdaga er í
kvöld og er myrkvaður viðburður. „Ég
er mjög spenntur fyrir þessum viðburði
og verður þetta klárlega öðruvísi upp-
lifun, að minnsta kosti fyrir sjáandi gesti.
Sjáandi og blindir listamenn koma fram
og verður hið sjónræna lagt til hliðar og
önnur skilningarvit virkjuð.“
Ókeypis er á alla viðburði Jafnréttis-
daga 2015 og er aðgangur öllum heimill.
nadine@frettabladid.is
Tvinna saman hinar
ýmsu víddir jafnréttis
Jafnréttisdagar 2015 hefjast í dag í sjöunda árið í röð. Leitast verður við að skapa opna
umræðu og aukinn skilning á jafnrétti. Arnar Gíslason, jafnréttisfulltrúi Háskóla Íslands,
segir að leitast verði við að skapa opna umræðu og aukinn skilning á jafnrétti.
Dalai Lama, andlegur trúarleiðtogi
Tíbeta, hlaut friðarverðlaun Nóbels
þann 5. október 1989 fyrir friðsamlega
baráttu fyrir frelsi þjóðar sinnar. Hann
barðist fyrir friðsamlegum lausnum
sem byggðust á umburðarlyndi og
gagnkvæmri virðingu til að viðhalda
sögulegri og menningarlegri arfleið
Tíbets.
Egil Ári, formaður norsku nóbels-
nefndarinnar, afhenti verðlaunin og
við það tækifæri sakaði Dalai Lama
Þ ETTA G E r ð i ST
5 . o kTÓ b E r 1 9 8 9
Dalai Lama hlaut friðarverðlaun Nóbels
Dalai Lama hefur skrifað margar bækur um
frið, kærleika, hamingju og andleg málefni.
NorDicphotos/afp
Kínverja um að herða stöðugt tökin á
Tíbetum.
Árið 1959 lögðu Kínverjar Tíbet
undir sig og hraktist Dalai Lama í út-
legð ásamt fjölda munka til Indlands.
Þar var hann í þrjá áratugi. Hann hefur
síðan þá ferðast um allan heim til að
kynna búddadómi og talað fyrir frelsi
Tíbets.
Dalai Lama hefur skrifað margar
bækur um frið, kærleika, hamingju og
andleg málefni. – ngy
Dagskráin er fjölbreytt
og byggist á þverfaglegu
samstarfi þar sem gerð er tilraun
til að sameina hátíðarbrag og
gagnrýna sýn á jafnréttismál.
Arnar Gíslason,
jafnréttisfulltrúi Háskóla Íslands
5 . o k t ó b e r 2 0 1 5 M Á N U D A G U r18 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
1
-E
2
3
0
1
6
C
1
-E
0
F
4
1
6
C
1
-D
F
B
8
1
6
C
1
-D
E
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
4
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K