Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.10.2015, Qupperneq 60

Fréttablaðið - 05.10.2015, Qupperneq 60
Kristján Þ. Hauksson Sölufulltrúi. 696 1122 kristjan@fastlind.is Fermetraverð í ölbýli á höfuðborgarsvæðinu eftir hverfum árið 2014 662 6163 Bjarni Blöndal Löggiltur fasteignasali. bjarni@fastlind.is Allar tölur eru í íslenskum krónum. Miðað er við kaupverð. Heimild Þjóðskrá Íslands. 321.143 314.972 217.542 237.389 267.287 352.005 284.146 332.150 274.462 331.514 305.475 242.402 232.417 351.425 271.601 284.334 264.657 278.553 290.504 287.226 244.715 349.985 . . 334.899 . . 286.612 . 264.304 . . Innan Hringbrautar og Snorrabrautar Melar og Hagar Grandar Hlíðar Háaleitisbraut Lönd Teigar og Tún Vogar Heimar Hólar Sel Hraunbær 382.146 . 315.628 . . 318.476 . 291.121 . . 270.112 . . . 266.728 . . 276.898 . 296.502 309.569 . 290.329 Hús Foldir Sjáland (Garðb) Akrar (Garðb) Vangur (Hafn) Álfaskeið (Hafn) Hraun (Hafn) Ás(Hafn) Berg(Hafn) Vellir(Hafn) Seltjarnarnes Mosfellsbær Garðabær utan Akrar og SjálandsBorgir Engi Víkur Rimar Grafarholt Lindir (Kóp) Smárar (Kóp) Salir (Kóp) Kórar, Hvörf, Þing (Kóp) Norðan Kópavogslækjar Hversu mikið hefur eignin þín hækkað í verði ? Framúrskarandi þjónusta í þína þágu 5 . o k t ó b e r 2 0 1 5 M Á N U D A G U r28 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð Lífið Þetta byrjaði þannig að við kynntumst allar í lokahóp í inntöku­prufum Listaháskóla Íslands fyrir leikara­braut fyrir tveimur árum. Við vorum á svona frekar miklum bömmer að hafa ekki komist inn og langaði til að gera eitthvað og vildum ekki láta það stoppa okkur í því,“ segir Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, ein af höf­ undum og leikkonum í verkinu Konubörn sem snýr aftur á fjalir Gaflaraleikhússins þann 9. október en það var frumsýnt í byrjun þessa árs. Auk Þórdísar sömdu og leika þær Ásthildur Sigurðardóttir, Ebba Katrín Finnsdóttir, Eygló Hilmars­ dóttir, Sigurlaug Sara Gunnars­ dóttir og Þórey Birgisdóttir verkið og stíga þær allar aftur á svið að Ásthildi undanskilinni en hún er búsett í útlöndum. Eftir prufurnar komu þær saman og hugmyndin að sýningunni kviknaði. „Við erum náttúrulega allar ungar konur og kannski í smá millibilsástandi, ekki stelpur og ekki konur,“ segir Þórdís en verkið fjallar um þetta millibilsástand, hvenær verður stelpa kona? „Við erum líka svolítið að gera grín að okkar heimi, því sem við lifum í á hverjum degi.“ Handritið sömdu þær sjálfar ásamt leikstjóranum Björk Jak­ obsdóttur og segir Þórdís það hafa tekið nokkra mánuði að setja það saman en leikritið er í hálfgerðum sketsastíl og húmorinn í fyrirrúmi. „Við tökum á ótrúlega mörgu. Samfélagsmiðlum, strákum og svona skyldum okkar eins og að borga skatta og gera fullt af dóti sem okkur finnst við kannski ekki alveg tilbúnar í af því að við erum svo miklar stelpur ennþá,“ segir Þórdís og bætir við: „Og femínisma, hvað það er að vera femínisti.“ Þórdís segir viðtökurnar eftir frumsýningu síðastliðinn janúar hafa verið framar vonum og færri komist að en vildu og því hafi verið ákveðið að setja verkið upp aftur eftir örlita uppfærslu á hand­ ritinu. „Ásthildur er flutt til Kaup­ mannahafnar þannig að við erum bara fimm núna. Við eiginlega skiptum hennar hlutverki á milli okkar. Okkur fannst ekki passa að taka einhvern inn af því við erum orðnar svo mikill hópur og okkur þykir gott að vinna saman. Við uppfærðum handritið pínulítið. Gerðum það aðeins skarpara og hnitmiðaðra.“ Þær Þórdís, Þórey, Eygló, Ebba og Sigurlaug stunda allar nám í Listaháskóla Íslands, fjórar á Leikarabraut og ein á Sviðshöf­ undabraut og því nóg að gera hjá þeim. „Við erum alltaf í skólanum langt fram á kvöld og svo þetta um helgar. Það er ótrúlega skemmtileg vinna, eiginlega algjör forréttindi að fá að gera þetta með skólanum og nýta námið okkar,“ segir hún og bætir við að það sé stórskemmti­ legt að fá að vinna að verkefni sem þessu ásamt vinkonum sínum og það sé alltaf stutt í hláturinn. „Við höldum alveg klárlega áfram, þetta er bara byrjunin,“ segir Þórdís glöð í bragði þegar hún er spurð að því hvort hópurinn stefni á að vinna að frekari verkefnum saman. Konubörn verður sýnt í Gaflara­ leikhúsinu í Hafnarfirði þann 9. október næstkomandi. Ekki stelpur og ekki ko nur Sýningar hefjast aftur á leiksýningunni Konubörn í vikunni. Verkið leitast við að því svara hvenær stelpa verður fullorðin. Ebba, Þórdís, Sigurlaug, Eygló og Þórey eru Konubörn. Fréttablaðið/PjEtur „Fyrir mig er búið að vera frábært að fá að kíkja inn í þennan heim. Þær eru svo húmorískar og gera svo mikið grín að sjálfum sér. Samt fær maður svo vel á tilfinninguna þessa pressu á þessum aldri. Hvað ætlar þú að verða? Ætlar þú ekki að fara að koma þér í samband? Ætlar þú ekki að eignast eitthvað Iittala?“ segir Björk Jakobsdóttir sem leikstýrir Konubörnum. Björk leikstýrir einnig söngleik Verzlunarskóla Íslands í ár og segir það gefa sér mikið að vinna með ungu fólki. „Það er náttúrulega ein besta endurmenntunin og vítamín- sprautan fyrir listamann að vinna með ungu fólki. Það er einhvern veginn allt hægt, maður gleymir því þegar maður er búinn að vera að vinna í mörg ár.“ Hún segir að hún hafi ekki síður grætt á samstarfinu og hafi skemmt Skemmtilegt samstarf Við tökum á ótrú- lega mörgu. Sam- félagSmiðlum, Strákum og SVona Skyldum okkar einS og að borga Skatta og gera fullt af dóti Sem okkur finnSt Við kannSki ekki alVeg tilbúnar í af þVí að Við erum SVo miklar Stelpur ennþá. Þórdís Björk Þorfinnsdóttir Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 C 2 -C F 3 0 1 6 C 2 -C D F 4 1 6 C 2 -C C B 8 1 6 C 2 -C B 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 4 1 0 2 0 1 5 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.