Fréttatíminn - 17.07.2015, Side 62
Símamótið 2015 Helgin 17.-19. júlí 201510
V it Hit fæst í fimm bragðteg-undum og inniheldur hver f laska 16-35 hitaeiningar.
Drykkirnir eru náttúrulegir og án
viðbætts sykurs. Þeir hafa allir til-
tekna virkni og innihalda dagskammt
af átta mismunandi vítamínum, þar
á meðal C-vítamíni og B-1 vítamíni
sem hjálpar til við að draga úr þreytu
og auka orku.
Fylgdu Vit Hit á Instagram: www.
instagram.com/vithit.island og á Fa-
cebook: Vit Hit Iceland
Unnið í samstarfi við
Arka
Ný kynslóð vítamíndrykkja
VIT HIT eru nýir vítamíndrykkir
á Íslandi. Drykkirnir eru hitaein-
ingasnauðir og frískandi.
Detox: Hreinsandi
drykkur með mandar-
ínum og grænu tei sem
hressir líkamann við.
Stútfullur af andoxunar-
efnum og flavoníði sem
hefur bólgueyðandi
áhrif.
Immunitea: Einstak-
lega bragðgóð blanda af
dreka- og yuzuávöxtum
ásamt svörtu tei. Inni-
heldur sólhatt og zink,
er ríkur af C-vítamíni og
er því tilvalin styrking
fyrir ónæmiskerfið.
Revive: Inniheldur hvítt
te, sítrusávexti og gin-
seng. Hressandi andox-
unarblanda sem hefur
vatnslosandi áhrif. Hvítt
te inniheldur mikið af
andoxunarefnum og
styrkir ónæmiskerfið.
Lean & Green:
Frískandi blanda epla,
ylliblóma og maté-tes
sem hraðar efnaskipt-
um líkamans. Inniheldur
meðal annars L-carnitín
sem hefur jákvæð áhrif
á uppbyggingu vöðva
og ýtir undir fitu-
brennslu.
Berry Boost: Ljúffeng
berjablanda sem
inniheldur ginseng og
rauðrunnate. Ginseng
er talið auka andlega
og líkamlega orku og
rauðrunnateið er ríkt
af andoxunarefnum
og steinefnum. Tilvalið
orkuskot sem ýtir undir
efnaskiptin.
Spennustigið á Símamótinu í ár verður
væntanlega mjög hátt eins og á fyrri á
mótum. Í öllum spenningnum skiptir hins
vegar miklu máli að nærast vel á milli
leikja. Ingibjörg Gunnarsdóttir, næringar-
fræðingur, segir að mikilvægast sé að
skapa ró í kringum aðalmatmálstíma,
það er morgunverð, hádegisverð og
kvöldverð. „Einnig skiptir máli að
taka tillit til þess að einstaklingar
eru mislengi að borða. Eins er orkuþörf
einstaklinga mjög mismunandi á þessum
aldri og mikilvægt að taka tillit til þess
bæði á matmálstímum og eins þegar liðin
eru nestuð yfir daginn,“ segir Ingibjörg.
Hér koma nokkrar sniðugar hugmyndir
að nesti sem má grípa í milli leikja.
Næring
milli
leikja
Rúsínur og döðlur: Nokkrar
rúsínur eða döðlur eru góðir
orkugjafar á milli leikja.
Gróft brauð: Fínt eða milligróft brauð með áleggi gefur góða orku á milli leikja. Passið
samt að velja ekki of gróf brauð ef stutt er í næsta leik þar sem trefjarnar gætu valdið
óþægindum í maga.
Ávaxta- og berjaveisla:
Hvernig væri svo að fagna
góðum og vonandi sólríkum
degi með fallegu ávaxta- og
berjahlaðborði fyrir liðið?
Heimatilbúinn íþróttadrykkur: Ef stutt er í leik, innan við
klukkustund eða svo, getur verið sniðugt að búa til heimatilbúinn
íþróttadrykk með því að blanda hreinum ávaxtasafa til helminga
við vatn. Þynntur safi minnkar líkur á óþægindum í maga meðan
á leik stendur, en smá orka (kolvetni) getur gert gæfumuninn,
sérstaklega þegar líða tekur á mótið. Þennan drykk má líka sötra í
hálfleik, sérstaklega í leikjum sem eru seinni partinn og þegar líða
tekur á mótið.
Ávextir: Auðvelt er að nálg-
ast ferska ávexti í næstu
verslun í nágrenni keppnis-
svæðisins á Símamótinu,
t.d. banana og epli.
Vatn, vatn og meira
vatn: Munið að drekka
vel af vatni í gegnum allt
mótið.
Safar: Ef matarlyst er lítil er gott að velja drykki sem gefa orku (kolvetni), t.d. ávaxtasafa,
mjólk eða kókómjólk.