Fréttatíminn - 26.06.2015, Qupperneq 16
Ísland
þarf á
sirkus
að halda
Loftfimleikakonan Eyrún Ævarsdóttir og súludansarinn
Jóakim Kvaran eru kærustupar og samstarfsfélagar. Þau
búa í Rotterdam þar sem þau stunda nám í sirkusfræðum
en á sumrin ferðast þau um landið með Sirkus Íslands
sem þau eru stofnfélagar. Parið dreymir um að sirkus-
listin nái að festa hér rætur og blómstra. Annað væri
synd því sirkusinn færir svo mikla gleði.
Þ egar ég var sautján ára sá ég einhjól í glugga á hjólabúð og keypti það á staðnum,“ seg-
ir Jóakim aðspurður um upphafið
að sirkusævintýrinu. „Við vinirnir
höfðum aldrei prófað neitt þessu líkt
og vorum úti á götu að æfa okkur
allan daginn. Einn daginn gengur
Lee Nelson, sem í dag er stjórnandi
Sirkus Íslands, upp að okkur og
býður okkur á sirkusnámskeið. Við
slógum til og fórum að mæta á æf-
ingar í Kramhúsinu. Ég hafði aldrei
stundað neinar uppbyggilegar hóp-
íþróttir en alltaf verið mjög aktívur
og haft gaman að því að „jöggla“ eða
vera á línuskautum og fíflast eitt-
hvað. Svo þetta hentaði mér mjög
vel og ég kolféll fyrir sirkusnum.“
„Svo vantaði sirkuslistamenn í
leikritið sem ég var að vinna í,“ segir
Eyrún sem var þá sextán ára að setja
upp sýningu með bæjarleikhúsinu í
Mosfellsbæ þar sem hún er alin upp.
„Jóakim mætti þarna og lék listir sín-
ar og þar sem ég kunni á „diablo“,
sem er stórt jójó sem er kastað í loft-
ið, var ákveðið að ég mundi vera með
í sirkusatriðinu. Svo þar kynntumst
við fyrst og þar byrjaði minn sirkus-
ferill,“ segir Eyrún.
Háskólanám í sirkusfræðum
Til að byrja með var Sirkus Íslands
lítill hópur áhugafólks sem æfði
saman þegar tími gafst til en árið
2009, árið sem Eyrún kom í hópinn,
var sirkusinn formlega stofnaður.
„Allt í einu vorum við bæði komin á
fullt í sirkusinn og öll menntaskóla-
árin fóru í þetta,“ segir Jóakim sem
var nemi í Borgarholtsskóla á þess-
um tíma en Eyrún var í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð. „Ég var á
margmiðlunarbraut og var að spá í
að fara í grafíska hönnun en áhug-
inn á því varð alltaf minni og minni
eftir því sem ég kynntist sirkusnum
betur. Allt í einu varð raunverulegt
að þetta væri hægt, að vinna í sirk-
us,“ segir Jóakim.
„Við vorum auðvitað mikið að
ræða það á þessum tíma hvað við
myndum gera eftir menntaskóla en
þegar við komumst að því að það
væri hægt að fara í háskólanám í
sirkus ákváðum við að prófa það,“
segir Eyrún sem fór ásamt Jóakim
og Bjarna, öðrum vini úr Sirkus Ís-
lands, til Rotterdam vorið 2012 til að
reyna við inntökuprófið.
„Við Bjarni komumst ekki inn því
vorum ekki í nógu góðu formi og
áttum bara ekki heima þarna,“ segir
Jóakim. „En Eyrún flaug bara beint
inn því hún var orðin svo góð í loft-
fimleikum. Sem var dálítið erfitt því
þarna vorum við nýbyrjuð að vera
saman.“
„Ég bjóst alls ekkert við þessu og
fékk hálfgert áfall. Nýútskrifuð úr
MH og allt í einu komin í háskóla-
nám í sirkus. En ég flutti ein út um
haustið og var ein þarna fyrsta árið,
sem var pínu þungt, því planið var
að vera saman.“
„Ég fór að sjálfsögðu á fullt í að
æfa og koma mér í form til að kom-
ast inn árið á eftir,“ segir Jóakim.
„Kennararnir fengu líka sjokk
þegar þeir sáu þig ári síðar svona
líka stæltan,“ segir Eyrún og bæði
skella upp úr.
Súludans og loftfimleikareipi
Að fá BA gráðu í sirkusfræðum
tekur fimm ár. Fyrsta árið er al-
mennt undirbúningsnám þar sem
grunnstoðirnar eru kenndar; „ac-
robatics“, sem eru nokkurskonar
fimleikar, „jöggl“ og „object mani-
pulation“, sem er að halda hvers
kyns hlutum á lofti, og að síðustu
eru það loftfimleikar. Þar að auki
læra allir leiklist, dans og hreyfi-
spuna. Á öðru ári þarf svo að velja
sér sérhæfingu. „Sirkus er bland
af svo mörgu,“ segir Eyrún. „Þetta
er listform þar sem leiklist, nú-
tímadans og spuni koma mikið við
sögu og allt er mjög líkamlegt. Hið
klassíska sirkusatriði er 5 til 7 mín-
útur og innan þess ramma þarftu
að geta tjáð sögu, mestmegnis án
orða og helst komið fólki á óvart
með einhverju mögnuðu,“ segir Ey-
rún sem valdi sér loftfimleika sem
sérhæfingu. „Ég er að sérhæfa mig
í reipi og hef til dæmis verið að æfa
í vetur að sveifla mér, snúa mér í
hringi og sleppa svo og grípa aft-
ur.“ Aðspurð um lofthræðslu seg-
ist hún aldrei vera hrædd hafi hún
tak á einhverju. „Ég fer nú ekkert
mikið hærra en 8 metra.“
„Mín sérhæfing er það sem kall-
ast „chinese pole“,“ segir Jóakim.
„Það er 6 metra há súla sem er húð-
uð með gúmmíi og á henni bý ég til
atriði úr blöndu af fimleikum og loft-
fimleikum. Þetta er svipað og súlu-
dans nema aðeins „dýnamískara“ og
„agressívara“.“
Sirkus Íslands færði Íslendingum
sirkuslistina árið 2009 svo listform-
Sirkus er bland af svo mörgu. Eyrún Ævarsdóttir og Jóakim Kvaran. Mynd/Hari
16 viðtal Helgin 26.-28. júní 2015
Framhald á næstu opnu