Fréttatíminn - 26.06.2015, Side 30
30 viðtal Helgin 26.-28. júní 2015
Að komast yfir ofbeldi tekur langan tíma
María Gísladóttir er ein þeirra fjölmörgu einstaklinga sem hefur leitað sér hjálpar í Hlutverkasetri, starfsendurhæfingu þar sem fólk er aðstoðað við að komast aftur
úr í samfélagið eftir áföll eða veikindi. María syrgir þau mörgu ár sem það hefur tekið hana að komast yfir ofbeldið sem hún varð fyrir en þakkar fyrir þá dýrmætu
vini sem hún hefur eignast í Hlutverkasetri. Hún er meðal þeirra sem í dag opna sýningu á andlitsmyndum í Gerðubergi og fagna um leið tíu ára afmæli setursins.
É g varð fyrir mjög slæmu kyn-ferðisofbeldi og hef verið að vinna mig úr þeirri reynslu í
mörg ár,“ segir María Gísladóttir,
ein þeirra f jöldamörgu einstak-
linga sem mætir reglulega í iðju-
þjálfun hjá Hlutverkasetri. Hlut-
verkasetur er starfsendurhæfing
þar sem lagt er upp með að styrkja
og efla fólk til að komast aftur út
á vinnumarkaðinn, fara í nám
eða auka lífsgæði. Ein leiðin er
að ýta undir listræna hæfileika
með markvissri hvatningu og í
dag mun listasmiðjan opna sýn-
ingu á andlitsmyndum í Gerðu-
bergi. „Ég upplifði mig alltaf svo
kaótíska gagnvart listinni áður,“
segir María sem er lærður mynd-
listarmaður. „Ég var til dæmis að
berjast við að vera ekki að teikna
og gera frekar eitthvað annað. Ég
var alltaf að ýta sjálfri mér í burtu,
en það tengist auðvitað ofbeldinu
sem ég varð fyrir, maður ýtir sjálf-
um sér í burtu frá því sem maður á
að vera að gera.“
Tilfinningarnar allar í hnút
María segir það besta við Hlut-
verkasetur vera að hver og einn
geti þar fundið sína leið, á sínum for-
sendum og á sínum hraða. „Að kom-
ast yfir ofbeldi og að ná bata getur
tekið svakalega langan tíma. Þegar
ég leitaði mér hjálpar í fyrsta sinn
var ég ein rúst. Ég fór í iðjuþjálfun
á Landspítalanum og var þar í ein-
hvern tíma, fór svo aftur út á vinnu-
markaðinn en datt svo aftur niður í
alvarlegt þunglyndi. Ég lifði ennþá
í þöggun og brotnaði þar af leiðandi
alltaf aftur niður. Í eitt af þessum
skiptum sem ofbeldið helltist yfir
mig fór ég niður á Hlutverkasetur
að leita mér hjálpar. Þar mætti ég
frábærum leiðbeinendum en það
besta við þessa starfsemi er að hér
hjálpast allir að. Við styðjum hvort
annað og hér hef ég eignast vini.
Þrátt fyrir ólíkan bakgrunn erum
við öll að upplifa svipaðar tilfinn-
ingar. Áföll eru margslungin og til-
finningarnar geta komið aftan að
manni löngu eftir erfiða reynslu.
Hér áður fyrr voru tilfinningarnar
allar í hnút því ég lokaði mig af og
leyfði þeim ekki að koma fram. Það
er fyrst núna, mörgum árum eftir
ofbeldið sem ég þurfti að þola, sem
ég leyfi mér að hlusta á mínar eigin
tilfinningar.“
Skömmin og þöggunin
María segir mikilvægt að breyta
viðhorfum þjóðfélagsins til þolenda
ofbeldis. „Þegar ég steig fram með
það ofbeldi sem ég varð fyrir þá var
skömmin mikil og hún fór ekki
neitt vegna viðhorfsins í þjóðfélag-
inu. Og það er bara ekki hægt að
takast á við það ofan á allt annað.
Þetta er aðeins að breytast, það
er verið að opna á þessa þöggun
og skömmin því hægt og rólega
að fara þangað sem hún á heima.
Múrarnir eru að hrynja sem betur
fer, en það gerist hægt. Ég fylgist
með umræðunni og það er ennþá
lit ið á það hvernig manneskja
kona sem hefur verið nauðgað er.
Það finnst mér mjög gallað. Ekki
er horft á það hvernig manneskja
þú er ef það er brotist inn á heimili
þitt.“
María segir eina afleiðingu kyn-
ferðisofbeldis vera þá að geta ekki
beðið um hjálp, því skömmin sé of
mikil.
„Ég er að læra að þiggja hjálp
og fæ mikla hjálp í dag, bæði frá
Hlutverkasetri og líka frá félags-
þjónustunni í Breiðholti. Það er að
bjarga mér. Núna er ég til dæmis
að standa í málum varðandi Trygg-
ingastofnun en það hefur tekið
mig langan tíma að byrja á því ég
á mjög erfitt með að ganga í svo-
leiðis mál. Þegar maður er svona
veikur þá á maður mjög erfitt með
að bara vakna og drífa í hlutunum.
Það er svo dýrmætt þegar maður
er búin að lifa lengi í skömm, hvort
sem það er vegna geðræns vanda,
ofbeldis eða hvað það nú er, að
geta talað við fólk sem hefur upp-
lifað það sama. Smátt og smátt
lærir maður að biðja um hjálp.“
Syrgir horfinn tíma
„Fólk sem verður fyrir kynferðis-
legu ofbeldi líkt og öðrum áföllum
þarf að taka út sorgina og það fer
gríðarlegur tími í það. Tími sem
ég hefði viljað nota í annað. Félags-
þjónustan hefur batnað til muna
en þegar ég þurfti mest á henni að
halda fyrir rúmlega tíu árum þá stóð
hún sig ekki,“ segir María sem bjó
á þeim tíma í þorpi úti á landi með
börnum sínum tveimur. „Börnin
mín þurftu að upplifa mig veika
vegna ofbeldisins sem ég hafði upp-
lifað og það hjálpaði okkur enginn.
Kerfið brást mér og börnunum mín-
um gjörsamlega. Bæði félagsþjón-
ustan og skóli barnanna minna,“
segir María sem vill ekki benda
á neina sérstaka aðila. „Félags-
þjónustan er enn þann dag í dag
magnlaus þegar kemur að svona
málum. Þegar einhver deyr þá er
það viðurkennt sem áfall sem við-
komandi þarf að vinna sig út úr og
það er umvafið af öllum hlekkjum
samfélagsins, sem er frábært. En
þegar kemur að svona áfalli þá er
eins og allir séu lens, enn þann dag
í dag. En þar kemur Hlutverkasetur
svo sterkt inn. Þar má maður vera
maður sjálfur og það myndast eng-
in elíta þar. Það eru allir jafnir. Ég
veit ekki hvað ég gerði án þess. Ég
hef eignast svo góðar vinkonur og
við vorum síðast í gær þrjár saman
í strætó að spjalla saman um okkar
reynslu. Bara í strætó. Það er rosa-
lega dýrmætt.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
María Gísladóttir mynd-
listarmaður segir kerfið
hafa brugðist sér og börn-
unum sínum þegar hún
sökk niður í veikindi eftir
að hafa upplifað alvarlegt
ofbeldi. Myndir/Hari
Sjálfsmynd Maríu Gísladóttur. „Það sem er svo frábært við klippimyndirnar er að þær segja svo mikla sögu,“ segir María sem
sýnir líkt og aðrir á sýningunni andlitsmyndir. „Þær hafa haft ótrúleg áhrif á mig og mína sjálfsvinnu því klippimyndin er ofboðs-
lega góð aðferð til að koma tilfinningum út sem maður veit stundum ekki að eru til staðar.“ Myndlistarsýningin Sönn ásjóna
opnar í Gerðubergi í dag, föstudaginn 26. júní, klukkan 16.
Það er ennþá
litið á það
hvernig mann-
eskja kona sem
hefur verið
nauðgað er.....
Ekki er horft
á það hvernig
manneskja þú
ert ef það er
brotist inn á
heimili þitt.