Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.06.2015, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 26.06.2015, Blaðsíða 30
30 viðtal Helgin 26.-28. júní 2015 Að komast yfir ofbeldi tekur langan tíma María Gísladóttir er ein þeirra fjölmörgu einstaklinga sem hefur leitað sér hjálpar í Hlutverkasetri, starfsendurhæfingu þar sem fólk er aðstoðað við að komast aftur úr í samfélagið eftir áföll eða veikindi. María syrgir þau mörgu ár sem það hefur tekið hana að komast yfir ofbeldið sem hún varð fyrir en þakkar fyrir þá dýrmætu vini sem hún hefur eignast í Hlutverkasetri. Hún er meðal þeirra sem í dag opna sýningu á andlitsmyndum í Gerðubergi og fagna um leið tíu ára afmæli setursins. É g varð fyrir mjög slæmu kyn-ferðisofbeldi og hef verið að vinna mig úr þeirri reynslu í mörg ár,“ segir María Gísladóttir, ein þeirra f jöldamörgu einstak- linga sem mætir reglulega í iðju- þjálfun hjá Hlutverkasetri. Hlut- verkasetur er starfsendurhæfing þar sem lagt er upp með að styrkja og efla fólk til að komast aftur út á vinnumarkaðinn, fara í nám eða auka lífsgæði. Ein leiðin er að ýta undir listræna hæfileika með markvissri hvatningu og í dag mun listasmiðjan opna sýn- ingu á andlitsmyndum í Gerðu- bergi. „Ég upplifði mig alltaf svo kaótíska gagnvart listinni áður,“ segir María sem er lærður mynd- listarmaður. „Ég var til dæmis að berjast við að vera ekki að teikna og gera frekar eitthvað annað. Ég var alltaf að ýta sjálfri mér í burtu, en það tengist auðvitað ofbeldinu sem ég varð fyrir, maður ýtir sjálf- um sér í burtu frá því sem maður á að vera að gera.“ Tilfinningarnar allar í hnút María segir það besta við Hlut- verkasetur vera að hver og einn geti þar fundið sína leið, á sínum for- sendum og á sínum hraða. „Að kom- ast yfir ofbeldi og að ná bata getur tekið svakalega langan tíma. Þegar ég leitaði mér hjálpar í fyrsta sinn var ég ein rúst. Ég fór í iðjuþjálfun á Landspítalanum og var þar í ein- hvern tíma, fór svo aftur út á vinnu- markaðinn en datt svo aftur niður í alvarlegt þunglyndi. Ég lifði ennþá í þöggun og brotnaði þar af leiðandi alltaf aftur niður. Í eitt af þessum skiptum sem ofbeldið helltist yfir mig fór ég niður á Hlutverkasetur að leita mér hjálpar. Þar mætti ég frábærum leiðbeinendum en það besta við þessa starfsemi er að hér hjálpast allir að. Við styðjum hvort annað og hér hef ég eignast vini. Þrátt fyrir ólíkan bakgrunn erum við öll að upplifa svipaðar tilfinn- ingar. Áföll eru margslungin og til- finningarnar geta komið aftan að manni löngu eftir erfiða reynslu. Hér áður fyrr voru tilfinningarnar allar í hnút því ég lokaði mig af og leyfði þeim ekki að koma fram. Það er fyrst núna, mörgum árum eftir ofbeldið sem ég þurfti að þola, sem ég leyfi mér að hlusta á mínar eigin tilfinningar.“ Skömmin og þöggunin María segir mikilvægt að breyta viðhorfum þjóðfélagsins til þolenda ofbeldis. „Þegar ég steig fram með það ofbeldi sem ég varð fyrir þá var skömmin mikil og hún fór ekki neitt vegna viðhorfsins í þjóðfélag- inu. Og það er bara ekki hægt að takast á við það ofan á allt annað. Þetta er aðeins að breytast, það er verið að opna á þessa þöggun og skömmin því hægt og rólega að fara þangað sem hún á heima. Múrarnir eru að hrynja sem betur fer, en það gerist hægt. Ég fylgist með umræðunni og það er ennþá lit ið á það hvernig manneskja kona sem hefur verið nauðgað er. Það finnst mér mjög gallað. Ekki er horft á það hvernig manneskja þú er ef það er brotist inn á heimili þitt.“ María segir eina afleiðingu kyn- ferðisofbeldis vera þá að geta ekki beðið um hjálp, því skömmin sé of mikil. „Ég er að læra að þiggja hjálp og fæ mikla hjálp í dag, bæði frá Hlutverkasetri og líka frá félags- þjónustunni í Breiðholti. Það er að bjarga mér. Núna er ég til dæmis að standa í málum varðandi Trygg- ingastofnun en það hefur tekið mig langan tíma að byrja á því ég á mjög erfitt með að ganga í svo- leiðis mál. Þegar maður er svona veikur þá á maður mjög erfitt með að bara vakna og drífa í hlutunum. Það er svo dýrmætt þegar maður er búin að lifa lengi í skömm, hvort sem það er vegna geðræns vanda, ofbeldis eða hvað það nú er, að geta talað við fólk sem hefur upp- lifað það sama. Smátt og smátt lærir maður að biðja um hjálp.“ Syrgir horfinn tíma „Fólk sem verður fyrir kynferðis- legu ofbeldi líkt og öðrum áföllum þarf að taka út sorgina og það fer gríðarlegur tími í það. Tími sem ég hefði viljað nota í annað. Félags- þjónustan hefur batnað til muna en þegar ég þurfti mest á henni að halda fyrir rúmlega tíu árum þá stóð hún sig ekki,“ segir María sem bjó á þeim tíma í þorpi úti á landi með börnum sínum tveimur. „Börnin mín þurftu að upplifa mig veika vegna ofbeldisins sem ég hafði upp- lifað og það hjálpaði okkur enginn. Kerfið brást mér og börnunum mín- um gjörsamlega. Bæði félagsþjón- ustan og skóli barnanna minna,“ segir María sem vill ekki benda á neina sérstaka aðila. „Félags- þjónustan er enn þann dag í dag magnlaus þegar kemur að svona málum. Þegar einhver deyr þá er það viðurkennt sem áfall sem við- komandi þarf að vinna sig út úr og það er umvafið af öllum hlekkjum samfélagsins, sem er frábært. En þegar kemur að svona áfalli þá er eins og allir séu lens, enn þann dag í dag. En þar kemur Hlutverkasetur svo sterkt inn. Þar má maður vera maður sjálfur og það myndast eng- in elíta þar. Það eru allir jafnir. Ég veit ekki hvað ég gerði án þess. Ég hef eignast svo góðar vinkonur og við vorum síðast í gær þrjár saman í strætó að spjalla saman um okkar reynslu. Bara í strætó. Það er rosa- lega dýrmætt.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is María Gísladóttir mynd- listarmaður segir kerfið hafa brugðist sér og börn- unum sínum þegar hún sökk niður í veikindi eftir að hafa upplifað alvarlegt ofbeldi. Myndir/Hari Sjálfsmynd Maríu Gísladóttur. „Það sem er svo frábært við klippimyndirnar er að þær segja svo mikla sögu,“ segir María sem sýnir líkt og aðrir á sýningunni andlitsmyndir. „Þær hafa haft ótrúleg áhrif á mig og mína sjálfsvinnu því klippimyndin er ofboðs- lega góð aðferð til að koma tilfinningum út sem maður veit stundum ekki að eru til staðar.“ Myndlistarsýningin Sönn ásjóna opnar í Gerðubergi í dag, föstudaginn 26. júní, klukkan 16. Það er ennþá litið á það hvernig mann- eskja kona sem hefur verið nauðgað er..... Ekki er horft á það hvernig manneskja þú ert ef það er brotist inn á heimili þitt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.