Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.06.2015, Side 37

Fréttatíminn - 26.06.2015, Side 37
Hagkvæm bílafjármögnun fyrir viðskiptavini Með reiknivélinni á arionbanki.is getur þú skoðað greiðslubyrði og hvaða fjármögnunarkostir henta þér. PEPSI MAX OG WOW AIR KYNNA KINGS OF LEON NÝJA LAUGARDALSHÖLLIN 13. ÁGÚST #KOLICELAND WWW.SENA.IS/KOL Cross opnaði síðar sama ár. Hund- arnir sem keppa eru mjóhundar af tegundinni Greyhound en þeir eru ekki ræktaðir á Íslandi. Frá árinu 1958 hefur The Irish Greyhound Board verið starfrækt. Spurningar vöknuðu meðal okkar blaðamanna um velferð þeirra hunda sem keppa, við fengum að heyra að þeir keppa að jafnaði aðeins í eitt til tvö ár en verða síðan prýðisgóðir heimilis- hundar. Starfsmaður verðhlaupa- hringsins fræddi okkur til að mynda um að hann ætti sjálfur tvo Greyhounds sem hefðu áður verið keppnishundar. Í gegnum tíðina hefur verið algengt að bændur ali keppnishunda til að drýgja tekjur heimilisins. Ungir og aldnir Það voru engar ýkjur þegar Mark sagði okkur að lítið væri um ein- sleitan hóp Íra á hvers konar við- burðum, og á hundaveðreiðunum mátti sjá virðulegar eldri konur og fyrrverandi forsætisráðherra Ír- lands með þingflokksfélögum sín- um. Ungir foreldrar með börnin sín gæddu sér á frönskum kartöflum og gosi á meðan heldra fólkið pantaði sér fínni mat á veitingastaðnum, mun fínni en ég hafði reiknað með á veðhlaupastað. Skemmst er frá því að segja að eftir að hafa veðjað í tveimur hlaup- um var ég komin upp á lagið með þetta þó mér hafi í fyrstu fundist al- gjörlega óskiljanlegt hvernig bera ætti sig að. Þjónar áttu einfaldlega ákveðið svæði og gengu á milli borða þar sem þeir tóku á móti veð- málum, og gáfu kvittun á móti. Eftir hvert hlaup gengu þeir aftur á milli til að athuga hvort fólk hefði unnið og greiddu út vinninga. Við þurfum því ekki einu sinni að standa upp til að veðja. Þrátt fyrir þau fínu söfn sem við heimsóttum í ferðinni, dásamlega gönguferð í sveitum Írlands, falleg- asta herragarð Írlands sem raunar heitir einfaldlega The Garden of Ireland, tebollann sem við fengum í smábænum Hollywood (þeim upp- runalega), hádegisverðinn sem við snæddum á uppáhaldsveitingastað Bono úr U2 – að ógleymdri versl- anamiðstöðinni Dum Drum – þá voru það veðhlaupahundarnir sem stóðu upp úr þessari ferð og ég er mjög þakklát fyrir að skipuleggj- endur hættu ekki við að hafa þá í dagskránni, eins og þeir raunar ætluðu, því þeir héldu að íslensku blaðamennirnir myndu ekki hafa neitt gaman af þeim. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.