Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.06.2015, Side 41

Fréttatíminn - 26.06.2015, Side 41
Baunir af ýmsu tagi eru ríkar af trefjum og próteini og eru því góður valkostur að hlaupi loknu. Baunir eru einn- ig fyrsta flokks orku- gjafi. Sem dæmi má nefna linsubaunir, en þær eru fullar af sterkju og hafa því góð áhrif á meltinguna. Linsu- baunir eru einnig járn- miklar. Hlauparar þurfa að innbyrða margs konar steinefni, svo sem járn. Þreyta, svimi og fölleiki eru merki um járnskort og þá er gott að grípa í járnríka fæðu, líkt og linsubaunir. Avocado er orkumikill ávöxtur sem inniheldur yfir 20 næringar- efni og vítamín. Avocado er einnig ríkt af kopar, sinki og andoxunarefn- um sem draga úr bólgum og er því tilvalin fæða eftir hlaup. Ágætt er þó að hafa í huga að avocado er einn- ig fituríkt og því gott að neyta þess í hófi. Egg eru frábær próteingjafi. Egg innihalda amínósýrur sem hjálpa til við upp- töku próteins og upp- byggingu vöðva. Egg eru frábær leið til að hefja daginn, þau halda blóðsykrinum í jafnvægi og geta þannig minnkað nartþörf sem getur gert vart við sig yfir daginn. Egg er auk þess ódýr kostur og hægt að matreiða á ótal vegu. Sætar kartöflur eru stútfullar af andoxun- arefninu beta-karótín sem hjálpar líkaman- um að vinna úr A-vít- amíni. Sætar kartöflur henta vel í máltíðir fyr- ir hlaup. Einn bolli af stöppuðum sætum kartöflum inni- heldur um það bil 55 grömm af kol- vetnum sem er næg orka í klukku- tíma langt hlaup. Bláber virðast alltaf komast á lista yfir allt sem er hollt og gott og ekki af ástæðulausu. Í rannsókn sem gerð var við Cornell háskóla árið 2008 kemur fram að enginn ávöxtur inniheldur jafn mikið af andoxunarefnum eins og bláber, miðað við einn skammt. Bláber innihalda einnig steinefni sem eru nauðsynlegur hluti af ferlinu sem breytir kolvetnum, próteini og fitu í orku. Bláber geta því átt þátt í því að bæta árangur í hlaupum. Grænkál er sannkölluð ofur- fæða. Einn skammtur af grænkáli inniheldur 700% af ráðlögðum dag- skammti af K-vítamíni og 200% af ráðlögðum dag- skammti af C-vítamíni. Grænkál inniheldur einn- ig A- og B-vítamín og get- ur dregið úr bólgum sem kemur sér vel eftir lengri hlaup. heilsutíminn 41Helgin 26.-28. júní 2015 REIKNISTOFA BANKANNA | Höfðatorg | Katrínartúni 2 | 105 Reykjavík | Sími: 569 8877 | www.rb.is 100% ÁSTRÍÐA Taktu frá 29. ágúst 2015 Skráðu þig í eitt flottasta götuhjólamót landsins, RB Classic VEGLEG PENINGAVERÐLAUN FYRIR FYRSTU FIMM SÆTIN Í A FLOKKI KARLA OG KVENNA  A flokkur – 2 hringir: 127 km  B flokkur – 1 hringur: 65 km VEGLEG ÚTDRÁTTARVERÐLAUN - MEÐAL ANNARS KEPPNISHJÓL FRÁ Ræst er við ION hótel á Nesjavöllum og hjólað umhverfis Þingvallavatn í frábæru umhverfi Nánari upplýsingar og skráning www.rbclassic.is Ofurfæða fyrir hlaupara Til að ná árangri í hlaupum er mikilvægt að hafa mataræðið í lagi. Því lengri sem hlaupin verða, því mikilvægara er að huga að máltíðum fyrir og eftir hlaup svo að líkaminn bregðist sem best við. Hér má sjá dæmi um nokkrar fæðutegundir sem hlauparar ættu að bæta á matseðilinn og má matreiða með ýmsum hætti.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.