Fréttatíminn - 03.07.2015, Side 6
Heilbrigðismál TvöfalT lengri biðlisTi en fyrir fimm árum
Þrjú hundruð bíða
eftir hjúkrunarrými
Tvöfalt fleiri bíða nú eftir
plássi á hjúkrunarheimili en
fyrir fimm árum, alls ríflega
300 manns. Aldri hafa fleiri
legið á Landspítala í bið eftir
hjúkrunarrými, 83 sjúklingar.
Landlæknir segir að efla þurfi
heilsugæslu og heimaþjónustu
því hættulegt sé fyrir fólk að
dveljast langdvölum í akútum-
hverfi því sem spítali er.
T vöfalt f leiri bíða nú eftir plássi á hjúkrunarheimili en fyrir fimm árum, alls ríf-
lega 300 manns, samkvæmt nýjum
tölum frá Landlæknisembættinu.
Um 65% þeirra sem bíða eru 80 ára
og eldri. Árið 2010 biðu 155 manns
eftir plássi á hjúkrunarrýmum en
hefur fjöldinn aukist ár frá ári. Að-
eins eru taldir þeir sem enn hafa
ekki fengið varanlega dvöl á hjúkr-
unarheimili.
Aldrei hafa fleiri sjúklingar legið
á Landspítalanum í bið eftir hjúkr-
unarúrræði. Að sögn Dagbjartar
Þyríar Þorvarðardóttur innlagnar-
stjóra bíða nú 83 sjúklingar á spít-
alanum eftir hjúkrunarrými, nær
tvöfalt fleiri en í fyrra. „Þetta hefur
veruleg áhrif á starfsemi spítalans
enda samsvarar
þessi fjöldi tveim-
ur stórum legu-
deildum og virð-
ist engin lausn í
sjónmáli,“ bendir
hún á. Af þeim
sem liggja á akút-
deildum eru flestir
á skurðsviði og lyf-
lækningasviði.
Birgir Jakobsson
landlæknir segir biðl-
istana skapa hættu
á að gamalt
fól k í lend -
ist á sjúkra-
húsum þar
sem það hafi
ekki heilsu
til að hugsa
u m s i g
sjálft heima
og heima-
hjúkrun
sé ekki í
stakk búin
til að taka
v ið þv í .
„ Það er
slæmt fyr-
ir fólk og
beinlínis
hættulegt
að dvelj-
„Við höfum lagt áherslu á það
í okkar ráðleggingum um
stefnumótun á heilbrigðissviði
að heimahjúkrun og heilsu-
gæslan verði efld enda teljum
við slíkt vænlegra til árangurs
en að fjölga legurýmum á
hjúkrunarrýmum sem þessum
fjölda nemur þótt nauðsynlegt
sé eflaust að fjölga þeim frá
því sem nú er,“ segir Birgir
Jakobsson landlæknir.
Ljósmynd/Hari
Dropi
Náttúrulegt kaldunnið þorskalýsi
Dropi er nýtt íslenskt þorskalýsi, ríkt af omega-3 fitusýrum og 100%
náttúrulegum A og D vítamínum. Fyrsta flokks íslensk náttúruafurð.
6 fréttir Helgin 3.-5. júlí 2015