Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.07.2015, Page 6

Fréttatíminn - 03.07.2015, Page 6
 Heilbrigðismál TvöfalT lengri biðlisTi en fyrir fimm árum Þrjú hundruð bíða eftir hjúkrunarrými Tvöfalt fleiri bíða nú eftir plássi á hjúkrunarheimili en fyrir fimm árum, alls ríflega 300 manns. Aldri hafa fleiri legið á Landspítala í bið eftir hjúkrunarrými, 83 sjúklingar. Landlæknir segir að efla þurfi heilsugæslu og heimaþjónustu því hættulegt sé fyrir fólk að dveljast langdvölum í akútum- hverfi því sem spítali er. T vöfalt f leiri bíða nú eftir plássi á hjúkrunarheimili en fyrir fimm árum, alls ríf- lega 300 manns, samkvæmt nýjum tölum frá Landlæknisembættinu. Um 65% þeirra sem bíða eru 80 ára og eldri. Árið 2010 biðu 155 manns eftir plássi á hjúkrunarrýmum en hefur fjöldinn aukist ár frá ári. Að- eins eru taldir þeir sem enn hafa ekki fengið varanlega dvöl á hjúkr- unarheimili. Aldrei hafa fleiri sjúklingar legið á Landspítalanum í bið eftir hjúkr- unarúrræði. Að sögn Dagbjartar Þyríar Þorvarðardóttur innlagnar- stjóra bíða nú 83 sjúklingar á spít- alanum eftir hjúkrunarrými, nær tvöfalt fleiri en í fyrra. „Þetta hefur veruleg áhrif á starfsemi spítalans enda samsvarar þessi fjöldi tveim- ur stórum legu- deildum og virð- ist engin lausn í sjónmáli,“ bendir hún á. Af þeim sem liggja á akút- deildum eru flestir á skurðsviði og lyf- lækningasviði. Birgir Jakobsson landlæknir segir biðl- istana skapa hættu á að gamalt fól k í lend - ist á sjúkra- húsum þar sem það hafi ekki heilsu til að hugsa u m s i g sjálft heima og heima- hjúkrun sé ekki í stakk búin til að taka v ið þv í . „ Það er slæmt fyr- ir fólk og beinlínis hættulegt að dvelj- „Við höfum lagt áherslu á það í okkar ráðleggingum um stefnumótun á heilbrigðissviði að heimahjúkrun og heilsu- gæslan verði efld enda teljum við slíkt vænlegra til árangurs en að fjölga legurýmum á hjúkrunarrýmum sem þessum fjölda nemur þótt nauðsynlegt sé eflaust að fjölga þeim frá því sem nú er,“ segir Birgir Jakobsson landlæknir. Ljósmynd/Hari Dropi Náttúrulegt kaldunnið þorskalýsi Dropi er nýtt íslenskt þorskalýsi, ríkt af omega-3 fitusýrum og 100% náttúrulegum A og D vítamínum. Fyrsta flokks íslensk náttúruafurð. 6 fréttir Helgin 3.-5. júlí 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.