Fréttatíminn - 03.07.2015, Page 14
B
Borgaryfirvöld í Reykjavík hafa unnið að
því ljóst og leynt um alllanga hríð að losna
við Reykjavíkurflugvöll. Þegar er byrjað
að þrengja að honum með byggingarfram-
kvæmdum. Vilji Reykjavíkurborg koma flug-
vellinum burt er erfitt að standa gegn því,
hvað sem líður hugmyndum á þingi um að
taka skipulagsvaldið af borginni í þessum
efnum. Borgaryfirvöld vilja nýta það land-
svæði sem fer undir flugvöllinn í annað og
hafa fært fyrir því rök, þótt
einhugur ríki ekki um málið
í borgarstjórninni. Svæðið er
vissulega dýrmætt, svo nærri
miðborginni. Ýmsir eru ósam-
mála þessum fyrirætlunum,
einkum þeir sem á lands-
byggðinni búa og eiga erindi
með flugi til höfuðborgarinn-
ar, auk þeirra sem líta til hags-
muna þeirra sem treysta verða
á sjúkraflug til Reykjavíkur
og skjótan akstur frá flugvelli
á sjúkrahús. Þá eru skoðanir borgarbúa og
íbúa á höfuðborgarsvæðinu vitaskuld skiptar
í afstöðu til staðsetningar vallarins.
Svokölluð Rögnunefnd, sem í sátu Ragna
Árnadóttir formaður, Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, Matthías Sveinbjörnsson og
Dagur B. Eggertsson, skilaði í liðinni viku
áliti sínu um framtíðarflugvallarstæði á
höfuðborgarsvæðinu þar sem sjónir beind-
ust að fjórum nýjum flugvallarsvæðum,
auk breyttrar legu flugbrauta í Vatnsmýri,
Bessastaðanesi, Hólmsheiði, Hvassahrauni
og Lönguskerjum. Niðurstaða hópsins var
að Hvassahraun, sem er á mörkum sveitar-
félaganna Hafnarfjarðar og Voga, kæmi best
út þegar horft væri til möguleika flugvallar-
stæða til að taka við flugumferð eða starf-
semi umfram það sem nú er í Vatnsmýri, auk
þess sem Hvassahraun kæmi vel út í saman-
burði við aðra flugvallarkosti þegar litið væri
til þátta eins og veðurfars, rýmis og hindr-
ana, kostnaðar og umhverfismála.
Vandinn við annars ágætt starf Rögnu-
nefndarinnar er hins vegar sá að hún lagði
ekki mat á þann kost sem augljósastur er,
verði Reykjavíkurflugvöllur lagður af, að flytja
innanlandsflugið til Keflavíkurflugvallar þar
sem er stærsti og langbest búni flugvöllur
landsins. Að ætla sér að fara þann milliveg
í þessum langvarandi flugvallarvandræða-
gangi að koma upp nýjum flugvelli í landi Voga
á Vatnsleysuströnd er langsóttur kostur. Flug-
völlur á því svæði er kominn svo nærri Kefla-
víkurflugvelli að hreint óráð virðist vera að
ætla sér í tugmilljarðaframkvæmdir þar en
Rögnunefndin áætlar að stofnkostnaður flug-
vallar og bygginga sem tækju við allri starf-
semi Reykjavíkurflugvallar næmi um 22 millj-
örðum króna. Reynsla af stórframkvæmdum
hér á landi segir okkur auk þess að kostnaður
fer yfirleitt talsvert fram úr áætlunum.
Fari flugvöllurinn úr Vatnsmýrinni innan
einhvers gefins árafjölda, eins og allar líkur
eru á, er einboðið að innanlandsflugið flytjist
til Keflavíkurflugvallar. Því fylgja ókostir, um
það þarf ekki að deila. Það er hagur þeirra
sem heimsækja Reykjavík af landsbyggð-
inni að geta lent í miðri borg í stað þess að
þurfa að ferðast til eða frá Keflavíkurflug-
velli. Sama gildir um sjúkraflugið. Það liggur
hins vegar fyrir að með bættum vegasam-
göngum hafa styttri flugleiðir, sem áður voru
í notkun, verið lagðar af. Með betra vegakerfi
og aukinni vegaþjónustu styttist enn sá tími
sem fer í akstur á langleiðum. Ef menn ætla
á annað borð að leggja Reykjavíkurflugvöll
af virðist því vera skynsamlegri kostur að
setja aukið fé í bættar vegasamgöngur en
grafa fyrir nýjum flugvelli, nánast við hliðina
á Keflavíkurflugvelli. Þetta á við um hring-
veginn, ekki síst leiðina milli Reykjavíkur
og Akureyrar, en sérstaka áherslu verður
að leggja á leiðina á milli Reykjavíkur og
Keflavíkurflugvallar. Hluti þeirrar leiðar
hefur verið tvöfaldaður en það verk verður
að klára að fullu svo örugg og óhindruð hrað-
braut sé alla leið frá flugvellinum til Reykja-
víkurborgar. Slík braut myndi stytta þann
tíma verulega sem tæki að fara á milli – og
auðvelda og stytta tíma bíla í neyðarakstri,
meðal annars vegna sjúkraflugs. Uppi hafa
verið hugmyndir um lestarsamgöngur á milli
Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur en hvort
þær eru raunhæfar með tilliti til kostnaðar og
annars skal ósagt látið.
Raunhæfir flugvallarkostir vegna innanlandsflugs eru tveir
Vatnsmýri eða Keflavíkurflugvöllur
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson
teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
niðurhal
einfalt
ótakmarkað
6.990
ljósleiðari ljósnet
vortex.is 525 2400
Sími: 5 700 900 - prooptik.is
ÚTSALA HJÁ PROOPTIK
20-50% AFSLÁTTUR
AF GLERAUGNAUMGJÖRÐUM
FULL VERSLUN AF:
www.frittverdmat.is
Ég vil vinna fyrir þig
Hannes Steindórsson
Löggiltur fasteignasali
699 5008
hannes@fastlind.is
Heyrðu í mér og leyfðu
mér að segja þér frá
minni þjónustu.
12 viðhorf Helgin 3.-5. júlí 2015