Fréttatíminn - 03.07.2015, Qupperneq 29
Seiðkarl
sem styrkir
íslenskt
systralag
Shaman Durek er seiðkarl sem er kominn hingað til
lands til að hjálpa Íslendingum til betra lífs, konum að
styrkja systralagið og kenna þeim að fylla á tankinn
sinn þannig að þær séu ekki alltaf úrvinda vegna
þess að aðrir í lífi þeirra eru í meiri forgangi en þær.
S haman Durek er seiðkarl (e. Shaman) sem er staddur hér á landi með það fyrir augum
að hjálpa Íslendingum í átt að betra
lífi. Hann kom hingað fyrst í febrúar
og átti þá meðal annars fund með
Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi
forseta, sem hafði heyrt af honum
úr nokkrum áttum, en Shaman Du-
rek hefur getið sér nafn í heima-
landi sínu og víðar fyrir að hjálpa
fólki. Hann er af margbrotnu þjóð-
erni, alinn upp í Bandaríkjum en
móðir hans er hálf norsk og hálf
austur-indversk, pabbi hans er ætt-
aður frá Afríku og Haítí. Amma
hans var seiðkona í Bandaríkjunum
sem fékk vitranir löngu fyrir fæð-
ingu Dureks sem sögðu henni að
hann yrði seiðkarl.
„Ég byrjaði ekki þjálfun mína
fyrr en ég var orðinn 12 ára,“ seg-
ir Durek. „Pabbi og mamma vildu
að ég næði nægilegum þroska til
að gera mér grein fyrir því hvað
ákvörðunin um að gerast seiðkarl
myndi hafa í för með sér,“ segir Du-
rek. Hann segist alltaf hafa verið
sérstakt barn. „Ég fékk vitranir
og sá sýnir allt frá frumbernsku
og var skrýtni strákurinn í skólan-
um,“ segir hann. „Ég hef helgað líf
mitt fólki og þróun okkar tegundar.
Ég hef viðað að mér þekkingu frá
mörgum ólíkum menningarheim-
um, trúarbrögðum og heimspeki
og hlotið þjálfun í heildrænum
lækningum hjá mögnuðum lækn-
um,“ segir Durek.
Þeir sem þekkja til seiðkarla
tengja þá ósjálfrátt við frumskóga
og náttúru. Shaman Durek segir að
þannig séu flestir seiðkarlar í sínu
náttúrulega umhverfi. „Mér finnst
hins vegar stóra áskorunin felast
í því að fara inn í borgir í ýmsum
löndum víða um heim og hjálpa
fólki þar. Jafnvel fólki sem hefur
efasemdir. Það er stórkostlegt að
sýna þeim hvað getur gerst,“ segir
hann.
Hjálpar konum að styrkja
systralagið
Aðaláhersla hans um þessar mund-
ir er að hjálpa konum að styrkja
systralagið. „Það hefur verið frábær
reynsla að koma hingað til Íslands.
Hér er mikið verk fyrir höndum.
Mig langar að styrkja bönd sem
eru milli kvenna og gera þeim ljóst
hversu mikilvægt það er fyrir þær
að efla systralagið og styrkja að ný
þau tengsl sem eru milli kvenna,“
segir hann. Durek ætlar jafnframt
að færa fólki hér verkfæri til þess
að öðlast betri líðan, ekki síst til að
vinna gegn þunglyndi sem eykst
verulega í því mikla skammdegi
sem hér ríkir á veturna.
„Ég legg mikla áherslu á að konur
fylli á tankinn sinn – mér sýnist að
það sé stórt vandamál hér hve marg-
ar konur huga ekki að því. Ég get
ekki lýst því hvað ég sé margar kon-
ur á götu úti algjörlega úrvinda. Þær
setja upp gervibros og gerviútlit en
þegar ég sest niður með þeim sé ég
Við kynnum
nýja þjónustuþætti
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Önnumst alla þætti útfararinnar með virðingu að leiðarljósi
Minn hinsti vilji · Erfðaskrár · Kaupmálar
Dánarbússkipti · Reiknivélar · Minningarsíður
Vesturhlíð 2 · Fossvogi · Sími 551 1266 · utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
Kynnið ykkur nýja heimasíðu
www.utfor.is
26 viðtal Helgin 3.-5. júlí 2015