Fréttatíminn - 03.07.2015, Síða 42
Skundum á Þingvöll
Reynir Ingibjartsson er mikill útivistarmaður og hefur komið að mörgum verkefnum sem snúa
að því að útbúa leiðarlýsingar og kort um áhugaverða staði og landsvæði. Bókin 25 gönguleiðir á
Þingvallasvæðinu er sjötta og síðasta bókin í göngubókaflokki um gönguleiðir á Suðvesturlandi
og Vesturlandi. Í þessari nýju bók er að finna gönguleiðir í Þingvallaþjóðgarði, umhverfis Þing-
vallavatn og við fornar og nýjar leiðir til Þingvalla.
Þ essi bók er ákveðinn enda-punktur. Í þessum sex bók-um er búið að fara um allt
Vesturland og Suðvesturland. Þetta
eru orðnar 150 gönguleiðir og þegar
ég fór að taka þetta allt saman þá
rann upp fyrir mér að ég hef gengið
það sem nemur ríflega hringinn í
kringum Ísland á þessum fimm
árum frá því að fyrsta bókin kom
út,“ segir Reynir Ingibjartsson, en
hann hafði það fyrir reglu að ganga
hverja leið að minnsta kosti tvisvar
sinnum. Flestar gönguleiðirnar eru
hringleiðir og er meðalgönguleið
um 3-6 kílómetrar. Göngurnar eru
því við hæfi flestra og tæpast er um
neinar fjallgöngur að ræða.
Sögulegt landsvæði
Reynir segir að það sé við hæfi að
enda á þessum slóðum því til forna
lágu allar leiðir til Þingvalla. „Það
er náttúrulega hvergi á Íslandi að
finna meiri sögu en á Þingvöllum
og þar í grennd.“ Hann segir að vel
sé hægt að upplifa söguna í gegn-
um gönguleiðirnar. „Þetta er sögu-
ferð jafnt sem gönguferð en svo má
ekki gleyma því að náttúran á Þing-
völlum og svæðinu þar í kring er
stórbrotin og sérstök. Þar samein-
ast jarðfræði, náttúra, menning og
saga á einum stað.“
Gönguleiðirnar sem finna má í
bókinni eru á umfangsmiklu svæði,
allt frá Gljúfrasteini til Nesjavallar-
vegarins. Aðspurður hvort ein-
hver gönguleið standi upp úr segir
Reynir að erfitt sé að nefna eina.
„Flestir láta sér nægja að fara hin-
ar hefðbundu leiðir um Þingvelli
og nágrenni og því tók ég saman
gönguleiðir sem er ætlað að leiða
göngufólk um minna þekktar slóðir,
til dæmi umhverfis Þingvallavatn
og leiðanna sem liggja að Þingvöll-
um, gömlum sem nýjum.“
Gönguleiðir sem örva ímynd-
unaraflið
„Í bókinni er að finna gönguleiðir
fyrir alla fjölskylduna og ekki síst
börnin því á þessum leiðum er að
finna fjölda staða sem örva ímynd-
unaraflið, segir Reyni.“ Hann segir
jafnframt að bókin sé tilvalin fyrir
hinn venjulega Íslending sem vill
taka eitt skref út fyrir það sem allir
þekkja. „Við eigum öll Þingvelli og
svæðið þar í kring. Lengi vel gátum
við gengið niður Almannagjá og á
fleiri þekkta staði og verið ein með
sjálfum okkur. Nú eru hins vegar
breyttir tímar og allur heimurinn
getur notið þessa svæðis. En þá er
tækifæri fyrir okkur Íslendingana
að átta okkur á að Þingvellir eru
meira en bara Almannagjá. Bren-
nugjá, Höggstokkseyri og Gálga-
klettar eru til dæmis staðir sem
göngufólk ætti að kynna sér betur.“
Hverjum gönguhring fylgir kort
með fjölda örnefna sem geyma sögu
svæðisins. Einnig fylgir leiðarlýs-
ing og ljósmyndir sem gefa glögga
mynd af því sem fyrir augu ber.
Hátt í 1000 örnefni eru tilgreind í
bókinni og segir Reynir það vera al-
gjöran heim út af fyrir sig. „Hvert
einasta örnefni á sér ríka sögu og
það er gaman að spá í þeim. Þannig
er þetta land okkar, það er varla til
hóll, lækur eða vatn hér á landi sem
hefur ekki örnefni,“ segir Reynir,
sem útilokar því ekki bókaútgáfu
tengda örnefnum í nánustu framtíð.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Reynir Ingibjartsson ásamt Sigurði Kristjánssyni, leiðsögumanni hjá Ferðafélagi Íslands. Saman gengu þeir um mest allt Þing-
vallasvæðið síðastliðið sumar. Afraksturinn má finna í nýjustu gönguleiðabók Reynis: 25 gönguleiðir á Þingvallasvæðinu sem
Nýhöfn gefur út. Ljósmynd/Kristján Pétur Guðnason.
Gönguleið 5: Meyjarsæti og Hofmanna-
flöt
Vegalengd: Frá hliði á Hofmannaflöt og
um Meyjarsæti, um 1,9 km.
Gönguleið: Grasflatir, slóði, óstikaðar
skriður.
Upphafs- og endastaður: Við girðingar-
hlið á Hofmannaflöt hjá Uxahryggjarvegi
nr. 550.
Lýsing: Þegar komið er að Hofmanna-
flöt að sunnan eða norðan liggur gamli
slóðinn út af Uxahryggjaveginum og
yfir vesturenda flatarinnar. Þar er
fyrir girðing og ágætt að leggja þaðan í
göngu og muna að loka hliðinu.
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Helgin 3.-5. júlí 2015
Ómissandi í útileguna
Sjampó og hárnæring sem hreinsar
hárið á mildan hátt, nærir og lagfærir.
Argan olía gefur hárinu vítamín og Keravis
prótein byggir upp styrk og þrótt.
Fæst m.a. í verslunum Hagkaupa, Fjarðarkaupum, Lyfju og Krónunni Lindum
Þurrsjampóið
hreinsar hárið
án þess að
það þurfi vatn.
Einstök formúla
sem endurlífgar
líflaust hár
og fjarlægir
umframolíu í
feitu hári.
38 útivist