Fréttatíminn - 03.07.2015, Page 52
hann fyrstu drög að síðunni í for-
ritunartíma. „Okkur var sett fyrir
það verkefni að búa til eigin síðu
og koma eigin hugmynd á fram-
færi og ég ákvað þá að búa sjálfur
til tískublogg fyrir stráka. Ég hef
síðan þróað þetta áfram, skref fyr-
ir skref,“ segir hann.
Alex fylgist vel með tískunni
og spurður hv að sé heitast í dag
fyrir unga karlmenn, leggur hann
áherslu á að hver finni sinn eigin
stíl. „Ég tek hins vegar mikið eftir
því að það er mjög vinsælt að vera
í Nike-skóm, þröngum svörtum
buxum og síðum bol,“ segir hann.
Hann kaupir mikið af fötum er-
lendis og heldur þar mest upp á
verslanirnar Primark og Topman.
„Ég hreinlega stenst ekki verðið
í Primark og kaupi allt of mikið
af fötum þar. Mér finnst Topman
vera geðveikt flott búð og þeir
skara fram úr þegar kemur að
nýjustu trendunum,“ segir Alex.
Hann kaupir mest af sínum fötum
erlendis eða í gegnum netið en
hér heima er það verslunin Neon
í Kringlunni sem er í mestu upp-
áhaldi. „Hún er á þriðju hæð í
Kringlunni og ekki margir sem
vita af henni en þetta er virkilega
flott búð með mikið af stílum sem
höfða til mín. Þeir selja alls konar
„trendy“-föt með öðruvísi sniðum
en hefðbundnar búðir og ég versla
oft þar.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is W
tíska 47Helgin 3.-5. júlí 2015
Herratrend TV hefur gert nokkra þætti.
Hér er Alex í þættinum um Reykjavík
Fashion Festival.
ÚTSALA
30-50%
AFSLÁTTUR
AF FATNAÐI STÆRÐUM 42-56
VERTU VELKOMIN Í VERSLUN
OKKAR AÐ FÁKAFENI 9
EÐA PANTAÐU Á CURVY.IS