Fréttatíminn - 03.07.2015, Qupperneq 64
TónlisT 27. sumarTónleikaröð lisTasafns sigurjóns ólafssonar
Hildigunnur og Gerrit opna sumartónleikaröð
Tuttugasta og sjöunda sumartón-
leikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafs-
son hefst í safninu á Laugarnesi á
þriðjudagskvöldið næsta, 7. júlí.
Á tónleikunum syngur Hildi-
gunnur Einarsdóttir messósópran
við undirleik Gerrit Schuil píanó-
leikara. Efnisskráin fjallar um hafið
og má þar heyra ljóðaflokkinn Sea
Pictures eftir Edward Elgar og tón-
verk eftir Joseph Haydn, Johannes
Brahms, Gabriel Fauré og Hector
Berlioz. Tónleikarnir hefjast klukk-
an 20.30 og standa í um það bil eina
klukkustund.
Hildigunnur Einarsdóttir lauk
burtfararprófi frá Söngskólanum í
Reykjavík 2010. Hún er mjög virk
í kórastarfi, syngur með Barböru-
kórnum og hefur einnig komið
fram með Schola Cantorum og kór
Íslensku óperunnar. Hildigunnur
kemur reglulega fram sem ein-
söngvari með kórum og hljóð-
færaleikurum og stundar auk þess
nám í skapandi tónlistarmiðlun
við Listaháskóla Íslands. Hún var
tilnefnd til Íslensku tónlistarverð-
launanna sem söngkona ársins 2014
fyrir flutning sinn á lögum Karls
Ottós Runólfssonar, ásamt kamm-
erhópnum Kúbus.
Á sumartónleikaröðinni verða
alls sex tónleikar í júlí og fram í
ágúst og er yfirlit tónleikaraðar-
innar að finna á vefsíðum safnsins,
lso.is.
Hildigunnur Einarsdóttir og Gerrit
Schuil koma fram í Listasafni Sigurjóns
á þriðjudagskvöld.
Veðrið er
ekki bara gott
eða vont.
Bækur sjáðu mig sumar! er Bók fyrir yngsTu lesendurna
Fagnar íslenska sumrinu
Bókin Sjáðu mig sumar! fjallar um íslenska sumarið þar sem sólin skín allan sólarhringinn, far-
fuglarnir koma til landsins og stundum rignir svo vikum skiptir. Bergrún Íris Sævarsdóttir er
höfundur bókarinnar en hún sendi í fyrra frá sér hina vinsælu bók Vinur minn, vindurinn sem var
tilnefnd til Fjöruverðlaunanna og Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
m ig langaði mikið að gera bók sem fagnar íslenska sumrinu – farfuglunum,
flugunum og sólinni sem skín alla
nóttina,“ segir Bergrún Íris Sævars-
dóttir sem var að senda frá sér bók-
ina „Sjáðu mig sumar!“ Hún seg-
ist ekki hafa séð mikið af bókum
sem fjalla um hið einstaka sumar
okkar Íslendinga . „Við fáum jafn-
vel marga kalda daga og rigningu
heilu vikurnar og þurfum að láta
okkur lynda við það, en síðan er líka
fjöldinn allur af einstökum kostum
við sumarið á Íslandi,“ segir hún.
Sjáðu mig sumar! er sjálfstætt
framhald af fyrstu bók Bergrúnar –
Vinur minn, vindurinn – sem kom
út í fyrra og hlaut tilnefningu bæði
til Fjöruverðlaunanna og Barna- og
unglingabókmenntaverðlauna Norð-
urlandaráðs. „Ég skal viðurkenna að
ég var svolítið stressuð þegar ég sett-
ist niður og byrjaði að skrifa þessa
því hinni bókinni var svo vel tekið,
en ég held að mér hafi líka tekist
ágætlega upp í þetta skiptið,“ segir
Bergrún sem bæði skrifar textann
og teiknar þær líflegu myndir sem
einkenna bækurnar. Hugmyndin að
fyrri bókinni kom þegar eldri son-
ur Bergrúnar, sem nú er 5 ára, var
heldur ósáttur við vindinn sem alltaf
var úti og var hann sérlegur ráðgjafi
þegar kom að seinni bókinni sem er
þegar í miklu uppáhaldi á heimilinu,
bæði hjá eldri syninum og þeim yngri
sem er aðeins fimm mánaða gamall.
Bergrúnu er ýmislegt til lista
lagt, hún teiknar barnabækurnar
um Freyju og Fróða sem Forlag-
ið gefur út og tók þátt í forkeppni
Eurovision í fyrra þegar hún samdi
texta við lagið „Eftir eitt lag“ sem
Ásta Björg Björgvinsdóttir samdi
og Gréta Mjöll Samúelsdóttir flutti.
Þegar útgáfuteiti bókarinnar Sjáðu
mig sumar var haldið í Pennanum/
Eymundsson á dögunum flutti Ásta
Björg nýsamið sumarlag sem var
innblásið af bókinni og textinn í lag-
inu að stórum hluta úr bókinni. „Mig
langar að gera smá myndband við
lagið og vonandi verður það tilbúið
sem fyrst. Þetta verður þá veisla fyr-
ir öll skynfæri,“ segir Bergrún.
Hún bendir á að það sé ekki al-
gengt að gefa út bók um mitt sum-
ar og það eigi eftir að koma í ljós
hvernig það gengur. „Ég er mikil
talskona þess að bækur eigi ekki að
fara í sumarfrí. Mér finnst þetta ein-
mitt svo góður tími til að lesa sér til
skemmtunar þegar krakkar eru í fríi
frá skólanum,“ segir hún en „Vinur
minn vindurinn“ var reyndar lesin
nokkuð í neðstu bekkjum grunn-
skóla í vetur þar sem hún opnar á
ýmsar skemmtilegar samræður
um veðrið og eykur á orðaforða
barnanna. „Veðrið er ekki
bara gott eða vont. Það er
svo miklu meira.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Bergrún Íris bæði skrifar og teiknar allar litríku myndirnar í veðurbókunum. Í
sumarbókinni er til að mynda fjallað um farfuglana sem tilheyra sumrinu á Íslandi.
Aftast í bókinni er
að finna eins konar
kort þar sem hin
ýmsu náttúrufyrir-
brigði sumarsins
eru talin upp, svo
sem sólarglenna,
hitaskúr og
morgundögg.
Sjáðu mig sumar! er sjálfstætt framhald
af bókinni Vinur minn, vindurinn sem
naut mikilla vinsælda.
Bergrún Íris byrjaði upphaflega að
skrifa um veðrið til að höfða til eldri
sonar síns sem nú er 5 ára. Mynd/TeiturSími: 5 700 900 - prooptik.is
40% AFSLÁTTUR
AF AIR OPTIX AQUA
MÁNAÐARLINSUM
Það tekur á að fela sig
– við erum tilbúin að hlusta
Ókeypis Trúnaður Alltaf opinn
1717
.isHJÁLPARSÍMI OG NETSPJALL RAUÐA KROSSINS
Perspi
Guard
Bakteríusápa
og svitastoppari
Dreifing: Ýmus ehf
Fæst í apótekum
Til meðhöndlunar
á vandamálum
vegna ofsvitnunar
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
58 menning Helgin 3.-5. júlí 2015