Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.09.2015, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 04.09.2015, Blaðsíða 44
volundarhus.is · Sími 864-2400 VERÐTILBOÐ - GESTAHÚS 25 m² með 9 m² yrbyggðri verönd kr. 1.599.000,- án fylgihluta. kr. 1.899.000,- með fylgihlutum og byggingarnefndar teiknisetti. Grunnmynd og nánari upplýsingar á heimasíðu volundarhus.is www.volundarhus.is Vel valið fyrir húsið þitt HAUSTTILBOÐ Á GESTAHÚSUM OG GARÐHÚSUM VH /1 4- 04 34 mm bjálki / Tvöföld nótun TILBOÐ - GARÐHÚS 9,9 m² - án gólfs kr. 299.900,- án fylgihluta kr. 339.900,- m/fylgihlutum 70 mm bjálki / Tvöföld nótun 28 mm bjálki / Einföld nótun TILBOÐ - GARÐHÚS 9,7m² kr. 269.900,- án fylgihluta kr. 299.900,- m/fylgihlutum TILBOÐ - BARNAHÚS 2,2m² kr. 149.900,- án fylgihluta kr. 169.900,- m/fylgihlutum 28 mm bjálki / Einföld nótun 50% afsláttur af utningi á GARÐHÚSUM og GESTAHÚSUM á allar þjónustu- stöðvar Flytjanda. GESTAHÚS og GARÐHÚS sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður Sjá eiri GESTAHÚS og GARÐHÚS á tilboði á heimasíðunni volundarhus.is Vönduð húsgögn og falleg gjafavara Heimahúsið er fjölskyldurekið fyrirtæki sem flytur inn mikið úrval af húsgögnum alls staðar að úr heim- inum. PB Home er sænskt hönnunarmerki sem á það sameiginlegt með Heima- húsinu að vera fjölskyldurekið fyrirtæki. Vönduð húsgögn og falleg gjafavara frá PB Home eru fáanleg í Heimhúsinu. H elsta ástr íða sænsku hjónanna Pia og Benn er klassísk nútímahönnun. Árið 1991 varð PB Home til, en þannig náðu þau að tvinna saman áhugamál og störf sín. Þau líta þó ekki á fyrirtækið sem vinnu, heldur sem hluta af fjölskyldunni, sem hefur farið stækkandi með ár- unum. PB Home er nú alþjóðlegur heildsali fyrir innanhúshönnunar- vörur ásamt því að vera með eigin framleiðslu. Tæp 25 ár eru frá því að Pia og Benn seldu sitt fyrsta húsgagn og eiga þau tryggan hóp viðskiptavina sem hefur fylgt þeim alla tíð. PB Home hefur hlotið ýms- ar viðurkenningar fyrir vörur sín- ar, en fyrirtækið vann til dæmis til verðlauna fyrir bestu vöruna á alþjóðlegri hönnunarsýningu í Singapore. Húsgögn og gjafavörur frá PB Home eru fáanlegar hjá Heimahús- inu í Ármúla 8. Meðal húsgagna má nefna skápa, sófaborð og stóla og meðal gjafavara má nefna lampa, spegla, bakka, ilmkerti, kerta- stjaka og fleiri smávörur. Í október á Heimahúsið von á stórri sendingu af gjafavörum frá PB Home og í desember mun verslunin fyllast af fallegum viðarhúsgögnum frá PB Home. Heimahúsið hefur nú opnað glæsilega nýja heimasíðu þar sem hægt er að skoða vöruúrvalið og finna tengla á þau hönnunarmerki sem í boði eru. Nánari upplýsingar má nálgast á www.heimahusid.is Unnið í samstarfi við Heimahúsið Tempere eldhús- eða borðstofustóll frá PB Home. Riri hægindastóll ásamt fótskemli frá PB Home. Ný skemmtilega lífleg teppi úr merino ull og bómull frá Sveinbjörgu. Koma í stærð 140x100 cm og með tveimur mynstrum í fjórum litum. Lít- il örsaga fylgir hverju teppi – kósí í stofuna sem og í barna- herbergið. Fást hjá Epal, Dúka, Kraum og Garðheim- um sem og á sölustöðum um land allt. www.sveinbjorg.is Litríkt haust Fimm öpp fyrir heimilið Heima er best, það er einfaldlega bara þannig. En heimilin eru jafn misjöfn eins og þau eru mörg. Á sumum heimilum á hver hlutur sinn stað en á öðrum er sífellt verið að raða upp á nýtt, breyta og bæta. Ef þitt heimili tilheyrir seinni flokknum ættir þú að kíkja á eftirfarandi lista yfir fimm öpp sem eru kjörin fyrir áhugafólk um innanhúshönnun. Color Snap Sniðug og skemmtileg lausn fyrir þá sem ætla að fara að mála til að máta hina ýmsu liti. Notast er við litagrunn frá Sherman-Williams. Appið getur einnig greint liti eftir myndum sem hlaðið er inn og virkar því á báða vegu. Color Snap inniheldur yfir 1500 liti sem má leika sér með á ýmsa vegu. Appið hefur nýlega verið uppfært og er því í toppstandi. Frítt fyrir Android og iOS Pinterest Vinsældir Pinterest hafi vaxið hratt og keppir það nú við samfélagsmiðila líkt og Facebook og Instagram. Pinterest appið er algjör gullnáma fyrir fólk í framkvæmdaham því þar má finna fjöldann allan af myndrænum hugmyndum og tenglum á DIY (do it yourself) verkefni og með réttu leitarorðunum má finna innlit inn á dásamlega falleg heimili. Frítt fyrir Android og iOS Houzz Hvort sem þú ert að endurbyggja eða skreyta heimilið er Houzz app fyrir þig. Appið hefur að geyma yfir sjö milljónir mynda af fallegum heimilum og hægt er að flokka mynd- irnar eftir stíl, rýmum og staðsetningu. Myndirnar koma frá hinum og þessum fagaðilum úr innanhúsgeiranum, svo sem arkitektum, smiðum og hönnuðum. Houzz er á lista New York Times yfir bestu öppin fyrir heimilið. Frítt fyrir Android og iOS Homestyler Langar þig að sjá hvernig einstaka húsgögn og innan- stokksmunir taka sig út í íbúðinni þinni áður en þú kaupir þau? Homestyler gerir þér það kleift auk fjölda annarra möguleika. Þú getur til dæmis tekið mynd af herbergi og hannað það algjörlega eftir þínu höfði í þrívídd með appinu og deildu því svo með öðrum notendum. Með því að skoða hönnun frá öðrum notendum er svo hægt að fá fjöldann allan af hugmyndum um hvernig hægt er að setja saman alls konar rými. Homestyler fær frábæra einkunn frá notendum sínum. Það komst til að mynda í hóp bestu „appanna“ frá Apple árið 2013 og tímaritið Architectural Digest telur Homestyler vera meðal innanhúsappa sem ekki sé hægt að lifa án. Frítt fyrir Android og iOS IKEA Catalogue Nýi IKEA bæklingurinn datt inn um lúguna á heimilum landsins fyrir stuttu. Þeir sem vilja grípa í bæklinginn hvenær sem er geta glaðst yfir því að nú er hægt að sækja IKEA appið. Auk þess býður appið upp á aðra skemmtilega möguleika. Með því að skanna ákveðnar síður í prentaða bæklingum með appinu fæst aðgangur að fleiri myndum, myndböndum og hægt er að skoða rýmin í 360°. Með hjálp þrívíddartækni er svo mögulegt að sjá IKEA húsgögn fyrir sér í sínu eigin rými. Frítt fyrir Android og iOS  Sveinbjörg kynnir 44 heimili og hönnun Helgin 4.-6. september 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.