Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.09.2015, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 04.09.2015, Blaðsíða 12
ŠKODA Octavia G-TEC sameinar kosti metans og bensíns; þú nýtir íslenska orku og lækkar eldsneytiskostnað um allt að 35%. Með metantank og 50 lítra bensíntank kemstu 1.330 km án þess að fylla á og svo færðu líka frítt í stæði. Komdu og reynsluaktu ŠKODA Octavia G-TEC. Þú kemst lengra en borgar minna ŠKODA Octavia G-TEC verð frá 3.420.000 kr. G-TEC FYRIR NÁTTÚRUNA OG VESKIÐ HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is Evrópa tekur á móti 6% sýrlenskra flóttamanna Stríðið í Sýrlandi hefur staðið yfir frá árinu 2011 og hefur orsakað einhvern alvarlegasta flóttamannavanda okkar tíma. Nú eru rúmlega fjórar milljónir Sýrlendinga á flótta. Um 2,2 milljónir flóttamanna eru í Tyrklandi, Líbanon, Jórdaníu, Írak og Egyptalandi en langstærstur hluti þeirra er í Tyrklandi, eða um 1,7 milljónir. Í júlí höfðu rúmlega 250.000 manns hafa fengið hæli í Evrópu frá því í apríl árið 2011, en það eru 6% allra sýrlenskra flóttamanna. Björn Teitsson, verkefnisstjóri hjá Rauða krossinum. „Okkar kerfi hefur burði til að taka á móti ákveðið mörgum flóttamönnum en ákvörðunin er auðvitað alltaf pólitísk. Fulltrúi Rauða krossins hefur í vikunni farið yfir stöðuna í samvinnu við velferðarráðuneytið til að meta hversu mörgum við getum tekið við innan okkar kerfis. Það hafa verið nefndar einhverjar tölur en enn er engin niðurstaða komin. Við erum mjög ánægð að þessi mála- flokkur fái loks þessa athygli og að almenningur sýni honum áhuga. Einnig er jákvætt að stjórnvöld eru að bregðast við og við bindum miklar vonir við þessa nýju ráðherranefnd, að hún starfi vel og greitt eins og yfirlýst markmið hennar segir til um,“ segir Björn Teitsson, verk- efnisstjóri hjá Rauða krossinum, en Rauði krossinn hefur látið í ljós þá skoðun að hann hafi burði til að taka á móti hundruðum flóttamanna til ársloka 2017. „Árið 1999 tók Rauði krossinn á móti 75 manna hópi flóttamanna frá Kosovo, sem dæmi, þá með mun færri virka sjálfboða- liða en nú. Þannig að það er margt hægt, sé viljinn fyrir hendi.“ Evrópa hefur tekið á móti 6% flóttamanna frá Sýrlandi n Þýskaland og Svíþjóð n Serbía, Kosovo, Ungverjaland, Austurríki, Búlgaría og Holland n Aðrir 47% 33% 20% Ísland hefur tekið á móti 14 sýrlenskum flóttamönnum, það eru 0,005% af þeim sem sækja um að komast til Evrópu. Ísland er því miður ekki mjög ofarlega á listanum yfir þau lönd sem bjóða flóttamönnum hæli. Sýrlendingar sem koma til Íslands eru 0,005% af þeim sem sækja um að komast til Evrópu en það eru 0,0003% af þeim fjórum milljónum Sýrlendinga sem hafa flóttamannastatus. Talan er fáránleg lág og við gætum gert betur.“ „Við sendum 90% af fólkinu sem hingað kemur til baka út af Dyflinarsáttmálanum sem segir að fólk eigi að sækja um hæli í landinu sem það kemur fyrst til. Að sjálfsögðu eru mjög fáir flóttamenn sem koma fyrst til Íslands, það er varla hægt. En það sem Ísland hefur sagst ætla að gera, þar sem við höfum skrifað undir alla sáttmála, er að við munum taka á móti kvótaflóttamönnum. Við erum að gera það en talan er bara ofboðslega lág. Ef við berum okkur saman við Svíþjóð í þessum málum, eins og við gerum í svo mörgum öðrum, þá ætti Ísland að taka við 1500 flóttamönnum á ári en ekki 14.“ H ei m il d : Fl ót ta m an na hj ál p SÞ ( U N H CR ) Steinunn Björgvinsdóttir, starfar í Jórdaníu sem yfirmaður barnaverndar- mála International Medical Corps. 12 fréttir Helgin 4.-6. september 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.