Fréttatíminn - 04.09.2015, Blaðsíða 51
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið: Mán. - föst. kl. 09-18 Lau-
gardaga kl. 11-15
innréttingar
danskar
í öll herbergi heimilisins
Fjölbreytt úrval aF hurðum, Framh-
liðum, klæðningum og einingum,
geFa þér endalausa möguleika á
að setja saman þitt eigið rými.
við hönnum og teiknum Fyrir þig
Komdu með eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu,
þvottahúsinu, anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum,
teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu
í hæsta gæðaflokki og vönduð raftæki á vægu verði.
sterkar og glæsilegar
þitt er valið
Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum,
eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu
önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir
þá sem þess óska – fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
be
tr
i s
to
Fa
n
H
ugmyndin að bók-
inni spratt út frá
útvarpsviðtali sem
ég tók við Kristínu
Guðmundsdóttur
árið 2006 fyrir RÚV í þáttaröðinni
Borgin í hugskoti mannsins, segir
Halldóra Árnadóttir.“ Í aðdraganda
viðtalsins sagði Kristín við Hall-
dóru: „Já, þetta kemur nú ekki oft
fyrir, ég er ávallt annað hvort kona
mannsins mín, móðir barnanna
minna eða systir bróður míns.“
Halldóra komst að því í viðtalinu
að hér væri á ferðinni fagmann-
eskja sem hafði frá mörgu að segja
en hafði ekki endilega fengið
hljómgrunn á sínum tíma.
„Það var erfitt að hasla sér völl
á sviði arkitektúrs og innanhúss-
hönnunar í samfélagi sem stjórnað
var af karlmönnum. Ég vildi því að
gefa Kristínu rödd í gegnum bók
sem myndi fjalla um hugmyndir
hennar og innanhússinnréttingar
og reyna að setja þær í samhengi
við þær samfélagslegu aðstæður
sem hún upplifði bæði í Chicago
þar sem hún stundaði nám sitt og
Íslandi,“ segir Halldóra. Uppruna-
lega stóð til að bókin kæmi út á ní-
ræðisafmæli Kristínar, en vinnsla
bókarinnar tók heldur lengri tíma
en Halldóra gerði ráð fyrir í fyrstu,
eða rúmlega tvö ár. „Það náðist því
ekki, en hún fékk bókina á árinu
sem hún varð 92 ára í staðinn,“
segir Halldóra.
Frú Vigdís leit upp til Kristínar
Kristín var aðeins tvítug þegar
hún steig um borð í Brúarfoss
árið 1943, í miðju stríði, sem sigldi
síðan yfir Atlantshafið og lagðist
að bryggju í New York 21. júlí.
Hún stundaði nám í innanhúss-
arkitektúr við Northwestern há-
skólann í Chicago og sneri heim til
Íslands fjórum árum seinna. Talað
er um að hún hafi komið heim með
ameríska eldhúsið. „Kristín átti
frumkvæði að mörgum nýjungum
í innanhúss arkitektúr, sérstaklega
hvað varðar hönnun eldhúsinnrétt-
inga og notkun litasamsetninga.
Hún var fyrst til að halda þeim við-
horfum á loft að eldhúsið, sem þá
var einkum vinnustaður kvenna,
þarfnaðist heildstæðs skipulags
þar sem tekið væri tillit til hagræð-
ingar í fyrirkomulagi innréttinga,
og innleiðingar vinnusparandi
heimilistækja,“ segir Halldóra.
Kristín innleiddi jafnframt nýjan
hugsunarhátt gagnvart eldhúsinu
og heimilinu. „Sú hugsun hefur
haft áhrif á uppbyggingu bókar-
innar og val á meðhöfundum allt
eftir sérsviðum og þekkingu hvers
og eins,“ segir Halldóra. Meðal
höfunda sem eiga kafla í bókinni
er Vigdís Finnbogadóttir. Hún
talar meðal annars um hversu
mikil fyrirmynd Kristín var. „Hún
var falleg, flott og smart þegar hún
kom heim frá Bandaríkjunum 1947
og við skólastelpur í Reykjavík,
margar væntanlegir sérfræðingar í
einhverju fínu, vildum í laumi allar
verða eins og hún,“ skrifar Vigdís í
aðfaraorðum bókarinnar.
Eldhús sem standast tímans
tönn
Við gerð bókarinnar kom spænski
ljósmyndarinn David Frutos sér-
staklega til landsins til að taka ljós-
myndir af völdum innréttingum
Kristínar. „Þessi sjónræni þáttur
er mikilvægur því eitt markmiða
bókarinnar var að sýna fram á
hversu nútímaleg eldhúsin eru
enn, þrátt fyrir háan aldur. Þau
eiga enn fullt erindi til komandi
kynslóðar og fræða fólk enn um
eiginleika eldhússins,“ segir Hall-
dóra.
Við nánari skoðun á verkum
Kristínar sést hve stíllinn hennar
á vel við þá strauma sem eru
ríkjandi í innanhússhönnun í dag.
„Þetta þýðir aðeins að Kristín var
á undan sínum tíma. Hún bar hug-
myndir heim frá Bandaríkjunum,
Við, skólastelpur í
Reykjavík, margar
væntanlegir sér-
fræðingar í ein-
hverju fínu, vildum
í laumi allar verða
eins og hún.
bæði varðandi tækjabúnað í eld-
húsum og efnis-og litaval. Nú
er gert ráð fyrir öllum þessum
þáttum en nýjungarnar lágu
líka í því að undirbúa eldhúsin
fyrir nýja matreiðslu. Kristín
kom með margar uppskriftir
frá Bandaríkjunum og kenndi
bæði húsmæðrum og Hús-
mæðraskólum að matreiða
þær,“ segir Halldóra. Í bókinni
má finna nokkrar þessara
uppskrifta sem lesendur geta
spreytt sig á.
Þörfin fyrir þessa umræðu
hefur greinilega þótt tímabær.
Á meðan undirbúningur bókar-
innar stóð yfir fékk Halldóra
einstök viðbrögð hjá helstu
rannsókna- og hönnunar-
sjóðum. „Sem dæmi má nefna
RANNÍS, Hagþenki, Miðstöð
íslenskra bókmennta, Hús-
friðunarsjóð, Hönnunarsjóð
Auroru og Hönnunarsjóð. Svo
má ég til með að nefna Kristínu
sjálfa og fjölskyldu hennar. Án
trausts þeirra og stuðnings
hefði bókin aldrei orðið til.“
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Kristín Guðmundsdóttir – híbýla-
fræðingur, er nýútkomin bók um feril
híbýlafræðingsins og frumkvöðulsins
Kristínar Guðmundsdóttur. Hið íslenska
bókmenntafélag sér um útgáfu.
heimili og hönnun 51 Helgin 4.-6. september 2015