Fréttatíminn - 04.09.2015, Blaðsíða 66
66 matur & vín Helgin 4.-6. september 2015
Brauðið ber
uppi borgarann
N ú fer hinu formlega grilltímabili að ljúka. Í það minnsta hjá þeim sem nenna ekki að grilla með höfuðljós og lopavettlinga. Það
þýðir hins vegar ekki að hamborgartímabilinu sé
að ljúka – því lýkur aldrei. Góður pönnusteiktur
ostborgari í dúnmjúku brauði gefur þeim grillaða
ekki tommu eftir. Þar er gott kjöt og góður ostur
skynsamlegt val en það sem fullkomnar borgarann
er mjúkt brauðið. Jafnvel léttsteikt upp úr kjötsafan-
um sem eftir verður á pönnunni. Það er bragð sem
erfitt er að leika eftir á grillinu og erfitt að toppa.
Það fjölgar líka alltaf í brauðflórunni, ef svo má
segja, því nú er ekki lengur einungis boðið upp
á eina ríkistegund – flöffí sesambollu. Nei, nú er
hægt að velja um þær nokkrar. Með sesam eða án
og nýjasta útspilið; brioshe bollur. Smjör- og eggja-
brauð af
frönskum upp-
runa. Metnað-
urinn er því sem
betur fer á upp-
leið. Athugum hvað
er í boði og líka hvað
er ekki í boði hérna á
eyjunni köldu.
Besta brauðið
Eitt bragðbesta hamborgarabrauð landsins er
Búllubrauðið. Bakað sérstaklega, eftir leyniupp-
skrift fyrir Búlluna, hjá Gæðabakstri. Það brauð
sem kemst næst Búllubrauðinu sem okkur pöplin-
um er boðið upp á er sesamlausa brauðið frá Gæða-
bakstri. Þetta sem einu sinni var bara í boði í Víði
en er nú hægt að fá í öllum stærri búðum. Brauðið
á Dirty Burgers and Ribs er líka frábært og það
hefur eitt umfram Tomma og það er stærðin. Það er
aðeins minna og látið rísa hærra. Fullkomin stærð á
brauði og getið hvaðan þau koma – frá Gæðabakstri.
Heitasta nýjungin
Margir ferðalangar, sér í lagi þeir sem borða hip-
steraskyndibita í Brooklyn og á Portlandsvæðinu
í henni Ameríku, kannast við að fá hamborgarann
sinn í Brioshbollu. Briosh er þétt brauðbolla lituð
gul af eggjarauðum og sméri. Hingað til hefur svo
til eina Briosh brauðið verið fáanlegt sem hleifur
hjá Sandholt en nú hefur Myllan sett á markað
Briosh hamborgarabrauð. Steikt upp úr hamborg-
arafarinu lyftir það Brioshbollunni á næsta plan.
Mesta ruglið
Extra large hamborgarabrauð. Hamborgari á í eðli
sínu að vera mátulegur. Hamborgari er mömmu-
bangsinn í Gullbrá. Ekki of lítill og ekki of stór. Í
raun eru öll hamborgarabrauð á Íslandi of stór. Of
flöt í það minnsta. Ef sama brauðmagnið á venju-
legri bollu væri látið rísa hærra svo flatarmálið
myndi minnka en rúmmálið héldist það sama
værum við með hina fullkomnu bollu. En
XL er bara rugl enda þarf hamborgarinn
sem passar í svona bollu að vera um 250
grömm, eða þar um bil og það er
líka bara rugl.
Bollan sem vantar
Slæder er venjuleg-
ur hamborgari, bara
helmingi eða svo
minni. Ekki munn-
bitaborgari eins og
fást á fermingar-
bökkum. Nei,
venjulegur ham-
borgari – bara
minni. Í dún-
mjúku brauði svo
ekki fari allt út um
allt. Ekkert brauð hefur fundist til sölu á
Íslandi sem stenst þessar kröfur. Ruby Tuesday er
reyndar með frábæra slædera á matseðlinum og
brauðið í þeim er svo til fullkomið slæderabrauð.
Mjúkt en þó þétt en það er því miður sérinnflutt
Ruby brauð og því ekki fáanlegt fyrir okkur hérna
megin við salatbarinn. Gæðabakstur, við erum að
bíða.
Heilsubollur
Það er hægt að fá nýbakað brúnt og grófkorna
hamborgarabrauð úti í þarnæstu búð. En hver vill
það? Hamborgari á ekki að vera hollustuvara. Hvar
er fúttið í því? Þá er eins gott að sleppa kjötinu bara
líka og skella grænmetisplatta á milli heilkhveiti-
klíðshelminganna. Og já, það er enginn með glúte-
nofnæmi. Það er bara eitthvað sem heilsumafían
bjó til. Glúten, ef það er þá til yfir höfuð, er gott.
Bakaríið
Fyrir tíð „úrvalsins“ í brauðdeildum stórmarkað-
anna varð bakaríið oft fyrir valinu í staðinn fyrir
ríkisbrauðið. Franskbrauð skorið í stórar sneiðar
er lúmskt gott sem og kjallarabollan, jafnvel aðeins
steikt upp úr smjöri. En allt þarf þetta að vera
mjúkt. Hamborgari virkar til dæmis ekki í stökku
birkirúnstykki. Það er bara rugl og chiabatta er of
seigt til að nota í borgara. Fínt í skinkuloku en ekki
viðkvæman hamborgarann.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
Baileysterta
pekanpæ
jarðarBerjakaka
kökur og kruðerí
að hætti jóa Fel
rósaterta með
Frönsku súkkulaði-smjörkremi
sími: 588 8998