Fréttatíminn - 11.09.2015, Blaðsíða 10
Þegar heilsufæðisneysla verður að átröskun
Orthorexía þýðir rétt lyst
og er heitið sem gefið var
nýrri átröskun sem tengist
heilsufæði. Röskunin er ekki
viðurkennd af heilbrigðis-
greiningakerfinu en hefur
engu að síður stungið upp
kolli hérlendis.
N ý átröskun, orthorexía, hef-ur skotið upp kollinum und-anfarin ár og er orðin þekkt
víða á Vesturlöndum, þótt ekki hafi
hún enn fengið viðurkenningu í geð-
greiningarkerfum. Röskunin hefur
verið til umræðu frá árinu 1996, en
þá var henni gefið nafnið „Ortho-
rexia Nervosa“ af bandaríska lækn-
inum Steven Bratman. Orthorexía
er samsett orð, ættað úr grísku og
þýðir bókstaflega „rétt lyst“. Í stuttu
máli þá lýsir orthorexía sér í þrá-
hyggjukenndri sókn í heilbrigt mat-
aræði og þegar þráhyggjan er farin
að raska lífi viðkomandi verulega er
hægt að fara að tala um alvarlegan
vanda, að sögn Sigurlaugar Maríu
Jónsdóttur sálfræðings, teymis-
stjóra átröskunarteymis Landspítal-
ans, sem segist hafa fengið nokkur
slík tilfelli til meðferðar.
Stór hópur gríðarlega upp-
tekinn af heilsunni
„Við erum reyndar ekki að greina
fólk með orthorexíu hér í átröskun-
arteyminu, þar sem sú greining er
ekki viðurkennd í heilbrigðisgrein-
ingakerfinu,“ segir Sigurlaug. „Ég
hef ekki fengið mörg slík mál til
meðferðar, en það hefur þó komið
orthorexíu segir Sigurlaug svo vera.
„En ekki bara ungar konur, til okkar
leita konur á aldrinum frá 18 ára og
upp í fimmtugt, sextugt, en það er
mjög stór hópur þarna úti sem er
gríðarlega upptekinn af heilsunni,
hollustu mataræðisins og réttri
hreyfingu og það er alltaf spurning
hvað við ætlum að sjúkdómsgera.“
Þráhyggjan skerðir lífsgæðin
Sigurlaug segir þó vissulega vera
ýmis viðvörunarmerki um að fólk
sé komið út í átröskun sem þurfi að
vera vakandi fyrir. „Það er til dæmis
hættumerki þegar fólk fer að draga
sig til hlés félagslega, getur ekki
farið út að borða með skólafélögum
eða vinnufélögum, vill yfirleitt ekki
borða með öðru fólki og þarf alltaf
að elda matinn sinn sjálft. Þegar
svo er komið er þráhyggjan farin að
skerða lífsgæðin það mikið að bæði
hugurinn og heimurinn snýst alfar-
ið um mataræði og heilsufar.“
Spurð hvort ýmislegt af því sem
fólk sleppir úr mataræðinu þegar
það fer að hreinsa fæðið sé ekki
nauðsynlegt fyrir eðlilega líkams-
starfsemi játar Sigurlaug strax.
„Jú, það vill verða þannig þegar
fólk vill fara að hafa allan mat svo
hreinan og náttúrulegan og fer að
taka út fæðuflokka þá getur það
haft áhrif á andlega og líkamlega
líðan. Ákveðnar fæðutegundir eru
lífsnauðsynlegar fyrir líkamann og
ef þeim er sleppt þá er voðinn vís.“
Ennþá skömm að vera karl-
maður með átröskun
Á vefsíðu fyrrnefnds Stevens Brat-
man, orthorexia.com, má lesa
reynslusögur fólks sem hefur bein-
línis verið í lífshættu af völdum
orthorexíu. Sigurlaug segist ekki
hafa fengið svo alvarleg tilfelli til
sín, enda geri einstaklingurinn
sjálfur sér oft enga grein fyrir því
að ástandið sé orðið alvarlegt. „Oft
er fólk bara að reyna að gera allt rétt
samkvæmt einhverjum ráðlegg-
ingum og oftast er það fjölskylda
þess eða maki sem tekur fyrst eftir
breytingunum. Það er líka mjög
sterkt viðvörunarmerki þegar ár-
áttan fyrir mataræðinu fer að bitna
á samskiptum viðkomandi við fólkið
sitt.“
Í öllu því ráðleggingaflóði sem
fólk hefur aðgang að um heilbrigt
mataræði og heilsuvernd getur ein-
staklingur með orthorexíu ansi
lengi varið áráttu sína með því að
hún/hann sé bara að gera það sem
sé ráðlagt af heilsugúrúum. Rétt-
lætingin er snar þáttur í öllum át-
röskunarsjúkdómum og Sigurlaug
segir leiðina að því að ná árangri
í meðferð vera m.a. þá að skoða
hver grunnurinn sé, hvað hrindi át-
röskuninni af stað. „Oft snýst þetta
um að fólk er að reyna að ná stjórn
á því sem það hefur ekki stjórn á í
lífi sínu og það þarf líka að skoða á
hvaða þáttum fólk byggir sjálfsmat
sitt. Maður hefur líka heyrt dæmi
um að fólk sem lendir í veikindum
fer að taka út eina og eina fæðuteg-
und vegna þess að hún sé óholl og
svo vindur það upp á sig. Það eru
margir þættir sem geta hrundið
þessu af stað og viðhaldið því.“
Spurð hvort ekki sé hætta á að
þeir sem hafi orthorexíu þrói með
sér anorexíu og búlimíu til að ná
enn betri stjórn á heilsu, þyngd og
útliti segir Sigurlaug það vissulega
vera til í dæminu. „Við sjáum það hjá
okkar skjólstæðingum að sé árátt-
an til staðar er hætt við því að fólk
rokki á milli. Líkaminn þolir tak-
markað eða einhæft mataræði bara
upp að vissu marki og það er tiltölu-
lega algengt að þá fari fólk yfir í át-
röskunarhegðun. Fólk hugsar sem
svo að það ætli bara að taka aðeins
til í lífi sínu og fara að borða hreinan
og náttúrulegan mat en þegar það
fer að léttast og líta betur út fer hug-
urinn á flug og allt hrósið og klappið
hvetur fólk til að halda áfram, gera
betur og ná enn betri árangri. Þá
getur átröskunin farið að „kikka“
inn.“
Undanfarið hefur það verið mikið
í umræðunni að karlmönnum með
átraskanir fari sífjölgandi en þeir
skila sér mun síður til meðferðar-
aðila en konurnar. Sigurlaug segir
skýringuna fyrst og fremst mega
rekja til fordóma. „Það eru ennþá
heilmiklir fordómar í samfélaginu
þegar kemur að átröskunum og það
er litið á þær sem kvennasjúkdóma.
Það leitar alltaf einn og einn karl-
maður til okkar en þeir eru í mikl-
um minnihluta. Það virðist ennþá
fylgja því skömm að vera karlmaður
með átröskun.“
Beðin um ráð fyrir aðstandendur
sem óttast að börn þeirra eða maki
séu að þróa með sér orthorexíu seg-
ir Sigurlaug að öllum sé velkomið að
senda fyrirspurnir til átröskunar-
teymisins. „Við svörum öllum tölvu-
póstum og það er mjög auðvelt að-
gengi til okkar. Við sinnum reyndar
einungis 18 ára og eldri en BUGLið
er með átröskunarteymi sem sinnir
þeim yngri þannig að það er betra
fyrir áhyggjufulla foreldra að snúa
sér til þeirra.“
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
fyrir nokkrum sinnum að til mín
hafa leitað stúlkur sem gætu fallið
undir orthorexíu-hugtakið“.
Sigurlaug segir að það sem helst
greini orthorexíu frá öðrum átrösk-
unum sé áherslan á hreinleika og
hollustu matarins, frekar en að vilja
grennast. „Það er auðvitað mikil
áhersla á heilbrigði og hollustu í
samfélaginu, að vera fitt og flottur,
og þá er mataræðið gjarna tekið
til endurskoðunar og stefnt að því
að reyna að borða hreina og holla
fæðu. Auðvitað getur slík takmörk-
un á mataræði haft áhrif á þyngdina
sem síðan getur kveikt sigurtilfinn-
ingu yfir góðum árangri sem hvet-
ur fólk til að halda áfram. Þá geta
farið að koma fram ákveðin svelti-
einkenni og þráhyggja sem svipar
mjög til átröskunar. Þetta er flókið
samspil sem oft er erfitt að greina.“
Spurð hvort ungar konur séu í
sérstökum áhættuhópi gagnvart
Viðvörunarmerki
um orthorexíu
n Þráhyggja fyrir því að allt
fæði sé hreint
n Einangrast félagslega vegna
ótta við að borða mat sem aðrir
elda
n Sífellt fleiri nauðsyn-
legum fæðutegundum sleppt
úr fæðinu
n Leiðst út í svelti og búlimíu til
að viðhalda „góðum“ árangri
n Réttlætingar og afsakanir
n Forðast að borða svo aðrir
sjái
n Líkamleg einkenni. T.d. stöðv-
un tíðablæðinga hjá konum.
Sigurlaug María Jónsdóttir,
sálfræðingur og teymisstjóri át-
röskunarteymis Landspítalans,
segist hafa fengið til sín nokkra
sjúklinga með orthorexíu-einkenni.
Mynd/Hari
The King’s Singers
Tvöfaldir Grammy–verðlaunahafar
Hinn heimsþekkti breski sönghópur
Nánari upplýsingar í síma 528 5050, á harpa.is og tix.is
Br
an
de
nb
ur
g
www.harpa.is/tks
Eldborg
16. september kl. 20:00
10 fréttaviðtal Helgin 11.-13. september 2015