Fréttatíminn - 11.09.2015, Blaðsíða 70
Einstök safari ferð til Tanzaniu á slóðir villtra dýra,
ósnortinna náttúru og fornrar menningar.
Tanzania
22. janúar – 4. febrúar
Við sjáum óviðjafnanlegt dýralíf í sínu náttúrulega umhverfi og
kynnumst menningu heimamanna m.a. Masai þjóðflokknum.
Ferðin er eitt ævintýri, einstök upplifun sem lætur engan ósnortin.
*Verð per mann í 2ja manna herbergi
675.900.-*
588-8900
Transatlantic.is
Innifalið:
Allt flug með sköttum og gjöldum. Allur flutningur milli staða með
5–7 manna safaríbílum. Innlendur og íslenskur fararstjóri.
Gisting og matur á upptöldum (eða sambæri-legum)
gististöðum eins og er í ferðalýsingu.
Öll gjöld vegna aðgangs í þjóðgarða eins og lýst er.
Fararstjóri er Dr. Anna Elísabet Ólafsdóttir, eigandi TanzaNice Farm í Tansaníu.
588-8900
Transatlantic.is
Innifalið:
Allt flug með sköttum og gjöldum. Allur flutningur milli staða með
5–7 manna safaríbílum. Innl ndur og íslensk r fararstjóri.
Gisting og matur á upptöldum (eða sambæri-legum)
gististöðum eins og er í ferðalýsingu.
Öll gjöld vegna aðgangs í þjóðgarða eins og lýst er.
Fararstjóri er Dr. Anna Elísabet Ólafsdóttir, eigandi TanzaNice Farm í Tansaníu.
588 8900 – transatlantic.is
Bókmenntahátíð í
Reykjavík hófst með
látum á miðvikudag-
inn þegar Kristín
Ómarsdóttir og Vil-
borg Dagbjartsdóttir
fóru á kostum í sam-
tali í Iðnó. Dagskráin
heldur áfram í dag,
föstudag og á morg-
un laugardag, og að
sögn Stellu Soffíu Jó-
hannesdóttur, fram-
kvæmdastjóra hátíðarinnar, rekur
hver merkisviðburðurinn annan.
„Við erum með tvo panela í hádeg-
inu á föstudag,“ segir hún. „Annars
vegar fjalla David Mitchell, Emil
Hjörvar og Vilborg Davíðsdóttir
um áhrif íslenskra bókmennta að
fornu og nýju á skrif sín og hins
vegar verða umræður og spjall í til-
efni af því að nú hefur í fyrsta sinn
verið veitt heiðursviðurkenning
til þýðenda íslenskra bókmennta
á önnur mál. Í pallborðinu verða
handhafar heiðursviðurkenningar-
innar, þau Catherine Eyjólfsson og
Erik Skyum-Nielsen, ásamt rithöf-
undunum Bergsveini Birgissyni og
Auði Övu Ólafsdóttur.“
Áhugaverðasta
prógrammið, að mati
Stellu, fer fram í Iðnó
í kvöld þar sem flutt
verður útvarpsleikrit
frammi fyrir áhorf-
endum í myrkvuðu
leikhúsi. Leikrit ið
er byggt á nýjustu
skáldsögu Kim Stan-
ley Robinson, Aurora,
höfundur sjálfur flyt-
ur og undir er leikið
nýtt tónverk eftir Marinu Abramo-
vic. „Ég held að þetta sé rosalega
sérstakt og áhugavert prógramm,“
segir Stella.
Á morgun, laugardag, rekur hver
viðburðurinn annan, meðal annars
ræðir Sjón við íranska blaðamann-
inn Maziar Bahari sem stendur á
bak verkefnið Journalism is Not a
Crime og hátíðinni lýkur svo með
hinu rómaða Bókaballi í Iðnó annað
kvöld.
Alla dagskrá Bókmenntahátíðar
má kynna sér á heimasíðunni bok-
menntahatid.is.
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
Blaðamaður með
myndavél
Sýningin Blaðamaður með myndavél
verður opnuð á Veggnum í Myndasal
Þjóðminjasafnsins á morgun,
laugardaginn 12. september. Sýnt
verður úrval ljósmynda Vilborgar
Harðardóttur en hún var blaðamaður
Þjóðviljans á árunum 1963-1981. Á þeim
tíma höfðu ljósmyndarar ekki sérstaka
stöðu í íslenskri blaðamannastétt og
því var það í höndum blaðamanna að
mynda umfjöllunarefni sitt.
Vilborg fór víða og myndir hennar
varpa ljósi á tíðaranda, störf fólks og
viðburði en myndirnar á sýningunni eru
frá árunum 1963-1975.
Myndasafn Vilborgar var afhent
Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminja-
safni haustið 2013 og nefnd um 100 ára
afmæli kosningaréttar kvenna styrkti
skönnun myndanna. Sýningarhöf-
undur er Sigurlaug Jóna Hannesdóttir,
sýningin stendur til áramóta 2015.
Laugardaginn 3. október munu
Rauðsokkur halda málþing í fyrir-
lestrarsal Þjóðminjasafnsins til heiðurs
Vilborgu en hún var ein af stofnendum
hreyfingarinnar.
Sjósetning. Margar hendur vinna létt
verk. Mynd Vilborg Harðardóttir
Bækur ÓhefðBundin ævisaga stuðmanns
Egill segir sögur
Egilssögur
– Á meðan
ég man
er nafn
óhefð-
bundinnar
ævisögu
Egils
Ólafs-
sonar,
söngvara
og leikara,
sem Páll
Valsson
skrifaði í
samvinnu
við Stuð-
manninn.
v ið Egill erum að reyna að fara pínulítið nýjar leiðir og þetta er engan
veginn hefðbundin ævisaga,“
segir Páll Valsson, meðhöf-
undur einnar þeirrar bókar sem
mesta forvitni vekur í bóka-
flóðinu; sögu Egils Ólafssonar.
„Egill stígur þarna pínulítið
fram sem höfundur. Hann á
merkilegan feril að baki í tónlist
og leiklist, en hann er líka
sagnamaður af guðs náð, sem
ég vissi reyndar fyrir. Þetta
er tilraun til að segja ævisögu
manns í gegnum sögurnar sem
hann segir og þegar upp er
staðið siturðu eftir með mynd af
manninum.“
Páll segir Egil vera í aðalhlut-
verki flestra sagnanna þótt auð-
vitað leiki samferðamenn hans,
forfeður og fólkið í kringum
hann einnig stór hlutverk.
„Sögumaðurinn er þó nátt-
úrulega alltaf fyrirferðarmesta
persónan í öllum sögum, eins
og við vitum.“
Spurður hvort sagan spanni
allt frá getnaði Egils til dagsins
í dag, dregur Páll örlítið við sig
svarið. „Jaaá, en þetta er mósa-
íkmynd af ævi hans og líka
tilraun til að spegla tímann og
reyna að bregða birtu yfir hann.
Auðvitað er þetta í leiðinni
mannlífssaga, byggðasaga og
Reykjavíkursaga og við vorum
mikið að hugsa um tíðarand-
ann þegar við vorum að byggja
þetta. Að vera í takt við tímann,
sem menn ná kannski aldrei.“
Bókin hefur verið lengi í
smíðum og Páll segir að þeir
hafi bara gefið sér þann tíma
sem þeir þurftu til að ljúka
henni. „Við höfum hist reglu-
lega í nokkur ár og gefið okkur
góðan tíma. Þetta hefur verið
hliðarprójekt hjá okkur báðum
og svo höfum við tekið hlé inn á
„Það var alltaf markmiðið að þetta yrði skemmtileg bók,“ segir Páll
Valsson um bók þeirra Egils Ólafssonar; Egilssögur – Á meðan ég man.
Ljósmynd/JPV
BÓkmenntir BÓkmenntahátíð á Blússandi ferð
Egill Ólafsson.
milli til að melta þetta betur.“
Bókin hlaut heitið Egils-
sögur – Á meðan ég man og
Páll fullyrðir að hún sé óskap-
lega skemmtileg. „Það segja
allavega þeir sem hafa lesið
hana,“ bætir hann við af hóg-
værð. „Það var líka alltaf mein-
ingin að þetta yrði skemmti-
legt. Menn vanmeta oft það
skemmtilega og það þykir
ekki eins fínt og merkilegt og
harmurinn, en við Egill erum
ekki á þeirri skoðun og það var
alltaf markmiðið að þetta yrði
skemmtileg bók.“
Lesendur verða þó að
bíða enn um stund eftir
því að fá að meta hvort það
markmið hafi náðst því
bókin er ekki væntanleg í
búðir fyrr en um eða upp úr
miðjum október.
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
Flytur útvarpsleikrit
í myrkvuðum sal
Stella Soffía Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Bókmenntahátíðar, er spenntust
fyrir flutningi á verki Kim Stanley Robinson og Marinu Abramovic í Iðnó í kvöld.
Kim Stanley Robinson.
70 menning Helgin 11.-13. september 2015