Fréttatíminn - 11.09.2015, Blaðsíða 32
Haust sófakartöflunnar
J ú, jú haustið er komið og allir miðlar fullir af „fréttum“ um hvernig best sé að rækta líkam-
ann í hinni eða þessari líkamsræktar-
stöðinni í vetur. Minna fer fyrir grein-
um um það hvernig rækta beri sína
innri sófakartöflu og löngu tímabært
að bæta úr því. Við erum ekki öll með
líkamsrækt á heilanum og sum okkar
eru meira að segja fullkomlega sátt
við það að fiska værðarvoðina niður
úr efsta skápnum, kaupa birgðir af
kertum og súkkulaði og búa okkur
undir að verja kvöldunum í mak-
indum við bóklestur eða áhorf góðs
sjónvarpsefnis. Eina vandamálið er
að ákveða hvað á að lesa eða horfa
á því jafnvel áköfustu sófakartöflur
komast ekki yfir að fylgjast með öllu
því bitastæða sem haustið býður upp
á í þessum geirum – ekkert frekar
en líkamsræktartröllin komast yfir
að stunda allar gerðir líkamsræktar
sem í boði eru. Hér eru nokkrar hug-
myndir um skipulagða sófadagskrá
sem ætti að halda kartöflunum upp-
teknum flest kvöld fram að jólum.
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
Sunnudagur: Strax núna á sunnudag-
inn, 13. september, hefur RÚV sýningar
á bresku framhaldsþáttunum Poldark,
sem fengið hafa mikla kynningu hér-
lendis á þeim forsendum að íslenska
leikkonan Heiða Rún Sigurðardóttir
leikur eitt aðalhlutverkanna. Það er þó
ekki það eina sem þessir þættir hafa
til brunns að bera, þetta eru vandaðir
períóðuþættir, sem fengið hafa mikið
áhorf og umtal í Bretlandi. Þættirnir eru
framleiddir af BBC og hafa slegið hressi-
lega í gegn, ekki síst vegna yfirþyrmandi
kynþokka leikarans í aðalhlutverkinu,
Aidans Turner. Mér skilst að hann sé
meira og minna ber að ofan í senunum
og að breskar konur beinlínis kikni í
hnjánum við áhorfið.
Ný þáttaröð af Rétti, hefst um miðjan
október á Stöð 2 og verða þættirnir
sýndir á sunnudagskvöldum. Það er
Baldvin Z sem leikstýrir og af þeim
brotum að ráða sem sýnd hafa verið til
kynningar á þáttunum er hér hörkustöff
á ferðinni; kynlíf og ofbeldi úr íslenskum
veruleika í stórum skömmtum. Þoli
menn illa ofurskammt af óhugguleg-
heitum er lítið mál að teygja sig í bók úr
staflanum á sófaborðinu og næla sér í
eins og eina ljóðabók, til dæmis Tilfinn-
ingarök eftir Þórdísi Gísladóttur eða
Blýengilinn hans Óskars Árna og halda
svo inn í draumalandið með ljóðrænt
bros á vör.
Mánudagur: Mánudagskvöld eru hefð-
bundin glæpaþáttakvöld og fastlega
má gera ráð fyrir því að sýningar á nýju
seríunum af Broen, sem hefjast 28.
september á RÚV, og House of Cards
eftir áramótin, verði á þeim svo allar
áhyggjur af leiðindum og mánudagsblús
séu óþarfar. Til að hrista af sér mánu-
dagsdrungann er þó kannski ráðlegra
að sökkva sér ofan í góða skáldsögu
og á þeim verður enginn hörgull þetta
haustið. Jón Kalman Stefánsson sendir
frá sér framhald af Fiskarnir hafa enga
fætur, Einar Már Guðmundsson skrifar
skáldsögu um Jörund hundadagakon-
ung, Auður Jónsdóttir skrifar um konu
sem glímir við flogaveiki og minnisleysi
og Lilja Sigurðardóttir sendir frá sér
sakamálasögu beint úr íslenskum
undirheimum. Fleiri stórkanónur verða
með skáldsögur þegar líður á haustið
og má nefna Hallgrím Helgason með
sína fyrstu sjálfsævisögulegu bók, Ólaf
Jóhann Ólafsson með nýja sögu frá New
York og Ólaf Gunnarsson sem skrifar um
Syndara. Það er því eiginlega einboðið
að hvíla sjónvarpsgleraugun, skella á sig
lesgleraugum, hita kakó – jafnvel baka
eins og eina köku – helga mánudags-
kvöldin skáldsagnalestri og taka bara
glæpaþættina í tímavélinni fyrir fréttir á
þriðjudaginn.
Þriðjudagur: Þriðjudagar eru sam-
kvæmt rannsóknum erfiðustu dagar
vikunnar og því mikilsvert að finna eitt-
hvað til að létta lundina. Glæpaþættir
frá mánudagskvöldinu eru ágætis upp-
hitun fyrir kvöldið, eða bara Friends og
Modern Family á Gullstöðinni, það er
óþarfi að ofreyna heilasellurnar svona
snemma vikunnar. Framhaldið fær að
ráðast af því hvernig stemningin er,
en það verður þó að hvetja til þess að
sjónvarpssnakkið sé í hollara lagi þetta
kvöldið eftir sykurát gærkvöldsins og
benda á að döðlur og gráfíkjur eru
fyrirmyndar leið til að ná sér í sykur-
bragðið með góðri samvisku. Last Week
Tonight með John Oliver er ómissandi
krydd í þriðjudagskvöldið og vilji fólk
hlæja enn meira er gráupplagt að horfa
bara á Gullstöðina allt kvöldið, þar eru
gamlar gersemar eins og The new girl,
How I met your mother og Two and a
half man fastir liðir. Sé fólk í alvarlegri
hugleiðingum má leggjast yfir léttar
fræðibækur eins og Þarmar með sjarma
og Erfið samskipti eða þungaviktarrit
eins og Geirmundar sögu Heljarskinns,
sem er ný útlegging Bergsveins Birgis-
sonar á þeirri merku sögu.
Miðvikudagur: Miðvikudagar eru hefð-
bundnir stelpudagar á Stöð 2, sumum
ónefndum til mikils ama, og þættir eins
og Greys Anatomy, Mistresses og fleiri í
þeim dúrnum eiga þau kvöld skuldlaust.
Tilvalið að hóa saman vinkonunum,
skella á sig andlistsmaska, narta í
konfekt og sötra böbblí – í hófi – og
horfa saman á sápuna. Fyrir þá/þær
sem ekki aðhyllast slíkan dekadens
verða Hæpið og Kiljan á sínum stað á
RÚV og Facebook alltaf innan seilingar
til að láta sitt gáfuljós skína um efni og
efnistök þáttanna. Umræðan í Kiljunni
ætti líka að æsa upp áhugann á að
kynna sér nýjustu bækurnar og hér
koma glæpasögurnar sterkar inn, til
mótvægis við böbblí og gáfumannatal.
Arnaldur verður auðvitað með nýja bók
1. nóvember, en Erlendur og Marion
fá frí í þetta sinn og rifjuð eru upp
kynnin við lögguteymið úr Skuggasundi.
Ragnar Jónasson, Yrsa Sigurðardóttir
og Jón Óttar Ólafsson eru öll með saka-
málasögur, í bókum Yrsu og Jóns Óttars
hittum við fyrir gamalkunnar persónur
en Ragnar kynnir galvaskur til leiks
glænýja aðalpersónu, hina 64 ára gömlu
lögreglukonu Huldu Hartmannsdóttur.
Fimmtudagur: Hvernig væri að
taka aftur upp gamla hefð og hafa
fimmtudagskvöldin sjónvarpslaus? Það
er að segja heima hjá þér. Kveikja bara
alls ekki á kassanum heldur nokkrum
kertum, elda eitthvað gómsætt og bjóða
kannski fjölskyldunni upp á upplestur
úr nýjum barnabókum? Í þeim geira
kennir ýmissa áhugaverða grasa í útgáfu
haustsins og ekki minni höfundar en
Gerður Kristný, Ævar Þór, Guðni Líndal
og Gunnar Theodór eru öll með nýjar
barnabækur, auk þess sem stórbók með
öllum bókum Guðrúnar Helgadóttur er
komin út. Slökkvið á tölvunum, símunum
og æpöddunum, setjist í hring og lesið
upphátt til skiptis, það er garanteruð
leið til að efla fjölskyldutengslin.
Föstudagur: Föstudagskvöld þýða pítsa
og bjór, popp og kók, Logi í beinni og Út-
svar eða Gísli Marteinn, sem snýr aftur
á með spjallþátt á RÚV, og svo einhver
hugguleg hasarmynd undir svefninn.
Punktur og basta.
Laugardagur: Pétur Jóhann ætlar að
halda partí á Stöð 2 á laugardagskvöld-
um í vetur í nýjum þætti sem nefnist
Spilakvöld, eitthvað sem skemmtana-
þyrstir ættu að kunna vel að meta sem
upphitun fyrir djammið. Við, hinar
rótföstu sófakartöflur, munum hins
vegar kannski frekar svíkja lit og skella
okkur yfir á DR 1, þar sem Barnaby og
fleiri góðkunningjar eiga fastan sess á
laugardögum. Svo má auðvitað alltaf
krækja sér í krassandi mynd á leigunni,
standi laugardagsmyndir sjónvarps-
stöðvanna ekki undir væntingum, og
deyfa spennuna með einu rauðvínsglasi
og nokkrum ostbitum. Það er nú ekki
laugardagskvöld nema einu sinni í viku.
Haustmyrkrið vekur þörf fyrir sjónvarpsáhorf og lestur undir hlýrri
værðarvoð á stofusófanum, með kakó og kruðerí á kantinum.
Íslenskir
þættir í
haust
RÚV:
n Hæpið
n Sprotarnir
n Föstudagsljós
n Rokk og popp-
saga Íslands
n Ísþjóðin
n Studíó A
n Spaugstofan
í 30 ár
n Rætur
n Tónahlaup
Stöð 2:
n ÍGT3
n Atvinnumenn-
irnir okkar
n Gunnar Nelson
í Las Vegas
n Neyðarlínan
n Logi
n Spilakvöld
n Hindurvitni
n Landnemarnir
32 úttekt Helgin 11.-13. september 2015
Við eflum heilsukaflann í Fréttatímanum.
Teitur Guðmundsson læknir skrifar fasta pistla í
Heilsutímann og við birtum mola frá doktor.is.
Heilsutíminn er líka í sjónvarpi. Alla mánudaga
frumsýnum við þátt á Hringbraut sem Gígja
Þórðardóttir sjúkraþjálfari stjórnar.
Heilsutíminn er líka á netinu. Þar verða sýndar glefsur
úr þættinum á Hringbraut ásamt því efni sem birtist í
Heilsutímanum í Fréttatímanum.
Heilsutíminn
Heilsutíminn í Fréttatímanum
á netinu og í sjónvarpi