Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.10.2015, Side 2

Fréttatíminn - 02.10.2015, Side 2
 119.900 kr.Frá: Ferðatímabil: 4-7. desember 2015. Verð á mann miðað við 2 saman í herbergi. Innifalið er flug, gisting í 3 nætur, morgunmatur, þriggja rétta máltíð og miði á leikinn. www.gaman.is gaman@gaman.is Sími 560 2000 FÓTBOLTI CHELSEA – BOURNEMOUTH Handteknir vegna fjárdráttar fyrir norðan Tveir menn voru handteknir í vikunni vegna gruns um fjárdrátt hjá Sparisjóði Siglufjarðar. Átta starfsmenn sérstaks saksóknara framkvæmdu húsleitir vegna málsins en ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir hinum handteknu. Greint var frá því á Vísi í gær að annar hinna handteknu væri bæjarfulltrúi í Fjallabyggð og hafi hann játað aðild sína að málinu. É g rak augun í grein um barn sem hafði komist í róandi lyf og það vakti upp gamlar minningar og mér leið eins og ég væri aftur komin á spítalann með drenginn minn. Þá vaknaði einnig sú hugsun hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir þetta tiltekna atvik ef ég hefði sagt frá minni reynslu,“ segir Ásta í samtali við Fréttatím- ann. Rólegur dagur sem breyttist í martröð Í færslunni á Facebook segir Ásta frá því þegar huggulegt sunnu- dagseftirmiðdegi breyttist í mar- tröð á skammri stundu. „Sonur minn var hjá pabba sínum og átti þessi dagur að vera leti- og kósí- dagur.“ Ásta fékk símhringingu frá bráðamóttöku Landspítalans þar sem henni var greint frá því að sonur hennar hefði gleypt stinn- ingarlyf, en vinur barnsföðurins sagði að um slík lyf væri að ræða. Þegar læknarnir óskuðu eftir frek- ari upplýsingum um lyfin hringdi faðir drengsins í vininn sem við- urkenndi þá að drengurinn hefði komist í e-töflu. „Já, hann reyndi að ljúga til um hvernig tafla þetta var,“ segir Ásta í færslu sinni. Í kjölfarið fór allt á yfirsnún- ing á spítalanum og gripið var til annarra ráðstafana. Þegar Ásta kom upp á spítala í mikilli geðs- hræringu var búið að dæla upp úr syninum en hún sat yfir honum á meðan honum voru gefin sérstök kol til að núllstilla magann. „Þeg- ar ég kom upp á spítala var hann svartur í framan með sondu hang- andi úr nefinu á sér. Barnalæknir, læknar og hjúkrunarfræðingar vöktu yfir honum og þegar mest var voru örugglega 15 manns inni í herberginu í einu.“ Ásta er afar þakklát fyrir hvernig brugðist var við atvikinu. „Það hefði allt getað farið verr, en ekkert betur. Öll við- brögð voru hárrétt.“ Í færslu sinni segir Ásta að hún kenni barnsföð- ur sínum ekki um. „Einnig vil ég allra síst að aðrir geri það. Hann brást hárrétt við.“ Aðstæður sem ekkert foreldri ætlar sér að lenda í Syni Ástu var ekki meint af töflunni. „Hann sýndi hvorki merki eitrunar né áhrifa frá efninu sem hann inn- byrti.“ Áður en þau fengu að fara heim af spítalanum fóru Ásta og barnsfaðir hennar í barnaverndar- viðtal. „Þetta eru náttúrulega að- stæður sem ég ætlaði mér aldrei sem foreldri að lenda í. En læknarn- ir útskýrðu fyrir mér að þetta væri hluti af starfsreglum og ég upplifði það heldur aldrei að verið væri að dæma mig.“ Vinur föðurins var tilkynntur til lögreglunnar eftir atvikið. „Ég veit að hann fór í viðtal, en eftirmál þekki ég ekki,“ segir Ásta. Atvik- ið hefur haft mikið áhrif á Ástu og hefur hún margsinnis hugsað um hversu illa hefði getað farið. „Þetta atvik mun aldrei gleymast en maður lærir að lifa með því og vera þakk- látur fyrir það sem maður hefur.“ Erla María Markúsdóttir erlamaria@frettatiminn.is  Eitur Barn glEypti E-töflu sEm lá á glámBEkk hjá vini föður þEss Laug til um e-töfluna og sagði hana stinningarlyf 22 mánaða gamall drengur var hætt kominn í nóvember í fyrra þegar hann gleypti e-töflu. Töflurnar voru í eigu vinar föður drengsins sem sagði í fyrstu að um stinningarlyf væri að ræða, en atvikið átti sér stað á heimili hans. Móðir drengsins, Ásta Þórðardóttir, tilkynnti manninn til lögreglunnar í kjölfar atviksins, sem hefur haft mikla áhrif á hana. Ásta birti færslu á Facebook í vikunni eftir að hafa lesið um nýlegt atvik þar sem barn komst í róandi lyf. Með frásögn sinni vill hún vekja aðra foreldra til umhugsunar um þær hættur sem finna má í umhverfi barna. Sonur Ástu Þórðardóttur var hætt kominn þegar hann gleypti e-pillu fyrir tæplega ári. Með því að segja frá reynslu sinni vill Ásta vekja aðra foreldra til umhugsunar um allar þær hættur sem eru í umhverfi barna. „Þetta er þetta einnig leið fyrir mig að vinna úr þessu atviki sem hefur haft rosalega mikil áhrif á mig sem móðir og manneskju.“ Mynd/Teitur  flóð gríðarlEgur vöxtur í hlaupinu Ferðafólk varað við vegna Skaftárhlaups „Hlaupið vex gríðarlega hratt, mun hraðar en venjulega og það má bú- ast við að það nái hámarki síðar í dag eða nótt,“ sagði Snorri Zóphaní- asson hjá Veðurstofunni í samtali við Fréttatímann í gær, fimmtudag. Skaftárhlaup hófst aðfaranótt sunnudags en síðasta Skaftárhlaup var í júní 2010 og segir Snorri mega leiða að því rökum að hlaupið sé kraftmikið núna vegna þess hversu langt sé liðið frá síðasta hlaupi. Aldrei hefur liðið jafn langur tími á milli hlaupa, venjulega liða um 24 mánuðir en 36 mánuðir var lengsta hléið fram að þessu. Mögulegt er að Skaftá flæði yfir vegi sem liggja nærri árbökkum og auk þess berst brennisteinsvetni með hlaupvatn- inu og ferðafólki er því ráðlagt að halda sig fjarri jöðrum Skaftárjök- uls, Tungnárjökuls og Síðujökuls á meðan hlaupið stendur yfir. „Það eru engin mannvirki nema þá kannski vegir í hættu en allar brýrnar á svæðinu eru byggðar með hlaup í huga,“ segir Snorri. „En þó ekki skemmist mannvirki þá eru þessi hlaup ekki skemmtilegt fyrir- brigði því þau bera svo mikinn aur yfir falleg hraun og svo brjóta þau fallegt land og tún.“ Upptök hlaupa í Skaftá eru und- ir tveimur jarðhitakötlum í Vatna- jökli. Þegar hleypur úr þeim rennur vatnið fyrst um 40 km undir jökl- inum og síðan 28 km eftir farvegi Skaftár áður en það kemur að fyrsta vatnshæðarmæli, sem er viðvörun- armælir við Sveinstind. Það tekur vatn nokkurn tíma að ná niður að þjóðvegi en útbreiðsla þess nær þó ekki hámarki fyrr en nokkru eftir að það tekur að draga úr rennsli við Sveinstind. -hh Á myndinni sést vatn flæða um Eldhraun við þjóðveginn í hlaupinu 2008, og einnig sést glitta í afleggjarann heim að bænum Skál. Undir venjulegum kringumstæðum er farvegur árinnar upp við fjallið. Mynd frá Veðurstofunni. Halldór tekur við Blindrafélaginu Halldór Sævar Guðbergsson er tekinn við sem formaður Blindrafélagsins. Þetta var ákveðið á félagsfundi á miðvikudagskvöld. Stjórn félagsins hafði lýst yfir vantrausti á formanninn, Bergvin Oddsson. Málamiðl- unartillaga á fundinum fól í sér að Bergvin hætti störfum og nefnd innan félagsins rannsaki ásakanir á hendur honum þess efnis að hann hefði misnotað sér aðstöðu sína og fengið ungan félagsmann til að leggja sparifé sitt í fasteignabrask. Dögg kaupir Sölku „Ég er afar ánægð með að ung kona skuli taka við rekstri Sölku. Það var markmiðið með stofnun útgáfunnar á sínum tíma að leggja áherslu á útgáfu bóka fyrir og eftir konur og mér sýnist að Dögg muni halda áfram á sömu braut,“ segir Hildur Hermóðsdóttir, stofnandi Bókaútgáfunnar Sölku, sem hefur selt útgáfuna eftir 15 ára rekstur. Kaupandi er viðskiptafræð- ingurinn Dögg Hjaltalín sem undanfarið hefur starfað sem upplýsingafulltrúi hjá Íslandsbanka og OZ. Hún var á árum áður verslunarstjóri í Bókabúð Máls og menn- ingar og rak eigin bókabúð við Laugaveg. Nýr Dalskóli í Úlfarsárdal Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tók á miðvikudaginn fyrstu skóflustunguna að nýjum Dalskóla ásamt skólabörnum úr Dalskóla og íbúum í Úlfarsárdal. Markar skóflustungan upphafið að umfangs- mestu framkvæmdum Reykjavíkurborgar næstu árin. Skóflustungan markar einnig upphaf framkvæmda við menningarmið- stöð, almenningsbókasafn, sundlaug og íþróttamiðstöð, sem nýtast mun íbúum í Grafarholti og Úlfarsárdal. Heildarflatar- mál mannvirkjanna verður um 15.500 fermetrar. Íþróttavellir eru þegar tilbúnir á flötunum við Úlfarsá og einnig hefur verið gerð búningsaðstaða til bráðabirgða, en íþróttafélagið Fram er með starfsemi í dalnum. Heildarkostnaður við allar ný- byggingar Reykjavíkurborgar í Úlfarsárdal er áætlaður um 10 milljarðar. Halli á vöruskiptum 8,4 milljarðar Í ágúst voru fluttar út vörur fyrir 47,1 milljarð króna og inn fyrir 48,9 milljarða króna. Vöruskiptin í ágúst voru því óhag- stæð um 1,8 milljarða króna. Í ágúst 2014 voru vöruskiptin hagstæð um 2,3 milljarða króna á gengi hvors árs, að því er Hagstofa Íslands greinir frá. Fyrstu átta mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir tæpa 432,3 milljarða króna en inn fyrir rúma 440,6 milljarða króna. Halli var því á vöruskiptum við útlönd sem nam tæpum 8,4 milljörðum króna, en á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 5,3 milljarða á gengi hvors árs. Vöru- skiptajöfnuðurinn var því 3,1 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður. 2 fréttir Helgin 2.-4. október 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.