Fréttatíminn - 02.10.2015, Blaðsíða 22
F
Fréttatíminn fagnar nú fimm ára afmæli
en blaðið kom fyrst út 1. október árið 2010.
Frá upphafi var blaðið kynnt sem blað
fólksins, helgarblað óháð öllum hagsmuna
samtökum með það að markmiði að flytja
lesendum vandað, skemmtilegt og fræðandi
lesefni, áhugaverð viðtöl, fréttir, fréttaskýr
ingar, menningarefni og fjölbreytt afþrey
ingarefni. Áhersla var lögð á þjónustu við
neytendur í víðum skilningi og mikilvæg
málefni fjölskyldunnar með
aðgengilegum hætti, lífsstíl
fólks í mat og drykk, heilsu,
útivist og annað sem veitir lífs
fyllingu, meðal annars með
fjölbreyttum sérblöðum.
Við þetta markmið hefur
verið staðið enda hefur Frétta
tíminn náð öruggri fótfestu
á blaðamarkaði sem víðlesið
og vandað helgarblað, sem
jafnframt er frábær auglýs
ingamiðill, en blaðið er í
aldreifingu á höfuborgarsvæðinu, í víðtækri
dreifingu á Akureyri og auk þess fáanlegt
í stórmörkuðum, bensínstöðvum og fleiri
stöðum víða um land. Með tilkomu Frétta
tímans varð til auglýsingamiðill sem veitti
stærstu fjölmiðlum á markaðnum nauðsyn
lega samkeppni í krafti mikillar útbreiðslu
og lesturs. Þessu tóku auglýsendur fagn
andi enda hafa auglýsingar í Fréttatímanum
skilað þeim ríflegum árangri.
Lestrarkannanir hafa frá upphafi sýnt
mikinn lestur Fréttatímans. Efni blaðsins
höfðar til karla og kvenna á öllum aldri en
ekki síst kvenna. Kannarnir sýna að um
tveir þriðju kvenna á höfuðborgarsvæðinu,
á aldrinum 25 ára og eldri, lesa blaðið reglu
lega. Það er mikil traustsyfirlýsing sem að
standendur blaðsins þakka nú þegar blaðið
fagnar fimm ára afmæli, en sýnir um leið
að stefnan sem lögð var í upphafi var rétt.
Auglýsendur vita jafnframt, þegar að vali
á auglýsingamiðli kemur, að þessi heildar
hópur kvenna er verðmætasti markhópur
þeirra, innkaupastjórar heimilanna.
Við þetta bætist að kannanir sýna enn
fremur að Fréttatíminn er ekki aðeins les
inn á útkomudegi, föstudegi, heldur dreifist
lesturinn líka á laugardaga og sunnudaga.
Blaðið hefur því langan líftíma, efnið er
eftirsóknarvert og fólk gefur sér tíma til að
lesa blaðið alla helgina, þegar stund gefst
milli stríða í annríki daganna.
Samhliða útgáfu Fréttatímans í prent
formi er blaðið öflugt á vefnum, frettatim
inn.is. Þar hafa lesendur, hvar sem þeir eru,
aðgang að blaðinu í heild, efni og auglýs
ingum, en auk þess er áhugaverðasta efni
blaðsins sett á vefinn eftir útkomu, auk
annars efnis sem reglulega bætist við. Þá
er frettatiminn.is vaxandi auglýsingamiðill,
hvort heldur er sjálfstæður eða í tengslum
við blaðið. Nú, á fimm ára afmæli Fréttatím
ans, er vefurinn kynntur í breyttu og mynd
rænna formi, með auknu og aðgengilegra
efni. Þá er Fréttatímann að finna á Face
book þar sem efni er kynnt og lesendur geta
auk þess dottið í lukkupottinn.
Liðin fimm ár hafa verið umbrotatímar í
íslensku samfélagi. Þegar Fréttatíminn hóf
göngu sína, haustið 2010, voru efnahags
legar viðsjár. Skammt var liðið frá hruni
bankakerfisins sem hafði víðtæk áhrif
á allt samfélagið. Smám saman hafa Ís
lendingar náð vopnum sínum á ný, þjóðin
hefur rifið sig upp úr öldudalnum, þótt enn
sé að sönnu margt óunnið. Enn eru höft
og enn er verið að fást niðurskurð sem
grípa varð til í velferðar og heilbrigðis
málum. Horfurnar eru þó til muna betri til
að takast á við þau mál, sem og önnur sem
á landsmönnum brenna, vegna bata í hag
kerfinu. Raunar er uppsveiflan það hröð að
sérfræðingar vara við ofþenslu. Þar höfum
við vítin til að varast.
Í umróti þessara ára hefur Fréttatíminn
fest rætur. Lesendur vita að hverju þeir
ganga um hverja helgi, velkomnum gesti
sem blaðið er á heimilum fólks. Áfram verð
ur byggt á því mikilsverða trausti með vönd
uðu blaði og vef. Mikilvægt er einnig að fjár
hagsleg staða Fréttatímans hefur styrkst
eftir því sem á hefur liðið en blaðið hefur
verið rekið með hagnaði undanfarin ár. Það
er forsenda þess að hægt sé að byggja til
framtíðar og gera gott blað enn betra.
Fréttatíminn fagnar fimm ára afmæli
Rótfesta hefur náðst á umbrotatímum
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson
teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
HALLA ÞÓRLAUG ÓSKARSDÓTTIR /
FRÉTTABLAÐIÐ (UM STROKUBÖRNIN Á SKUGGASKERI)
HALLA ÞÓRLAUG ÓSKARSDÓTTIR /
FRÉTTABLAÐIÐ (UM DRAUGAGANG Á SKUGGASKERI)
eftir metsöluhöfundinn
Sigrúnu Eldjárn
SPENNANDI
BÓKA
FLOKKUR
w w w.forlagid. i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39
22 viðhorf Helgin 2.-4. október 2015