Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.10.2015, Blaðsíða 72

Fréttatíminn - 02.10.2015, Blaðsíða 72
72 matur & vín Helgin 2.-4. október 2015 O kkur Stefáni hefur lengi þótt sopinn góðu og maður hefur látið þetta á móti sér, að rann- saka þetta. Þetta er skítadjobb en einhver verður að sinna því,“ segir Höskuldur Sæmundsson bjórsérfræðingur. Höskuldur er einn fjögurra kennara í Bjórskólanum þar sem þúsundir Íslend- inga hafa sest á skólabekk síðustu fimm árin. Nú hafa Höskuldur og Stefán Páls- son, samkennari hans þar, tekið höndum saman og sett saman framhaldsnámskeið þar sem lögð er áhersla á handverks- brugghús og fjölbreytta flóru bjórtegunda sem þeim fylgja, bæði hér á landi og úti í heimi. „Á þessum rúmu fimm árum sem við höfum verið með Bjórskólann hefur orðið fáránleg breyting á bjórlandslaginu á Íslandi. Mikróbrugghús og -barir hafa sprottið upp eins og gorkúlur. Við vorum farnir að sjá það að fólk kom aftur í Bjór- skólann en var farið að þyrsta í frekari fróðleik. Þess vegna settumst við niður með Jarðþrúði, rektor Bjórskólans, og lögðum drög að þessu framhaldsnámi. Ef við segjum að Bjórskólinn sé grunnurinn þá er þetta fyrir lengra komna og er að- eins erfiðara nám,“ segir Höskuldur. Framhaldsnámskeiðið verður á mið- vikudagskvöldum en hægt er að bóka hópa á öðrum tímum, rétt eins og í Bjór- skólanum. Höskuldur segir að á nám- skeiðinu reki þeir Stefán sögu hand- verksbruggunar í heiminum, bæði í Bandaríkjunum, Evrópu og Skandinavíu. „Svo tökum Ísland sérstaklega fyrir, rekjum söguna hér innanlands og spjöll- um um brugghús og bari. Fólk sem sækir þetta námskeið kemur út öllu fróðara um þessa „slow food“ hreyfingu bjórsins.“ Höskuldur og Stefán sendu frá sér Bjórbókina í fyrra og vakti hún talsverða lukku, seldist nánast upp fyrir jól. Hösk- uldur segir að þeim félögum leiðist ekki að viða að sér fróðleik um bjór og miðla honum áfram. „Við erum báðir í eðli okkar grúskarar. Við höfum þetta nörda element í okkur að þurfa alltaf að fletta öllu upp og kanna. Í þessu umhverfi hefur maður auðvitað byggt upp þekkingu og við reynum að setja hana í samhengi.“ Hann segir að það sé áhugavert að á meðan bjórsala í heiminum hafi svolítið dregist saman þá séu mikróbrugghúsin í sókn. Og þar sem við Íslendingar gerum alltaf allt af fullri alvöru sé míkróbrugg- byltingin mjög áberandi hér. „Við erum dellu þjóð. 1993 voru allir með sveppinn, um aldamótin voru allir að brugga vín. Það þótti enginn maður með mönnum nema hann væri með plasttunn- ur í kjallaranum og nú safna flöskurnar ryki við hliðina á fótanuddtækjunum. Í kringum 2005 voru allir að spila póker og nú eru það hjól, crossfit og bjórinn sem eru tískufyrirbæri. Ég hef trú á að bjórinn eigi eftir að eldast öllu betur en pókerinn, jafnvel þó þessi bruggbylgja eigi eftir að dofna. Nýsköpunin á eftir að skila okkur á ótrúlegar slóðir.“ Í lederhosen í München Fróðleiksfýsn Höskuldar og félaga hans virðist eiga sér lítil takmörk. Þannig frétt- ist af honum og Stefáni ásamt Atla Þór Albertssyni og Sveini Waage, samkennur- um þeirra í Bjórskólanum, á Októberfest í München á dögunum. „Já, við skruppum í námsferð, stífa end- urmenntunarferð. Þetta er eitthvað sem ég mæli með fyrir alla. Þetta var ótrúleg upplifun og stemningin kynngimögnuð. Við fórum að sjálfsögðu í lederhosen og allt tilheyrandi – það var ekki annað hægt.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is  Bjór Framhaldsnámskeið með áherslu á handverksBjóra Þetta er skítadjobb en einhver verður að sinna því. Fólk var farið að þyrsta í frekari fróðleik um bjór Höskuldur Sæmundsson og Stefán Pálsson bjóða nú upp á framhaldsnámskeið í Bjórskólanum þar sem áhersla er lögð á handverksbrugghús og fjölbreytta flóru bjórtegunda sem þeim fylgja. Þeir hafa gaman af að grúska í fræðunum og miðla þekkingu sinni til landsmanna. Höskuldur Sæmundsson og Stefán Pálsson hafa sett saman framhaldsnámskeið í Bjórskólanum þar sem einblínt er á handverks- bjóra. Ljósmyndari Fréttatímans náði þeim í hádegisbjórnum á Skúla Craft Bar í vikunni þar sem þeir lögðu lokahönd á kennslu- skrána. Ljósmynd/Teitur ÚTSALA! HAUST T L ! ÚTSÖLULOK! heimkaup.is Smáratorgi 3 · Kópavogi · 550 2700– ekki missa af þessu! LOKAHELGI! Ef keypt er fyrir 6.000 kr. eða meira fylgir gjöf OPIÐ ALLA HELGINA kl. 10–19 RISALAGERSALA á Fiskislóð 39 Allt að 90% afsláttur Yfir 4000 titlar frá öllum helstu útgefendum landsins! Gjafir fyrir öll tækifæri! LOKAHELGI! Verð á mann miðað við 2 saman í tvíbýli. Innifalið er flug með sköttum og gisting í 3 nætur með morgunverði. Aðventuferð 10.- 13. des.’15. Sumardagurinn fyrsti 21.- 24. apríl ‘16. Uppstigningardagur 5.- 8. maí ‘16. BERLÍN PARK INN ALEXANDERPLATZ **** www.gaman.is gaman@gaman.is Sími 560 2000 84.900 kr.Frá:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.