Fréttatíminn - 02.10.2015, Blaðsíða 92
Í takt við tÍmann marÍa Dögg nelson
Með gat á hnénu til að gera mömmu brjálaða
María Dögg Nelson er 23 ára leiklistarnemi á lokaári við LHÍ. Hún ákvað snemma að verða leikkona og
notaði bróður sinn, bardagakappann Gunnar Nelson, sem aukaleikara á sýningum á heimili þeirra. María
Dögg keyrir um á gömlum Subaru Impreza og nýtur þess að heimsækja ömmu og afa í sveitina.
Lj
ós
m
yn
d/
Te
it
ur
Ég sá Litlu hryllingsbúðina í
Borgarleikhúsinu þegar ég var
5-6 ára, þegar Stefán Karl lék
tannlækninn, og eftir þá sýn-
ingu kom ég heim og sagði við
mömmu að ég ætlaði að verða
leikkona. Ég var alltaf að plata
Gunna, bróður minn, í að vera
með í sýningum sem ég setti
upp. Þegar það voru matarboð
heima fékk ég hann til að spila
undir á píanó eða leika ýmis
aukahlutverk. Á móti fór ég
í gannislag við hann í púða-
herberginu okkar. Það var því
snemma ljóst hvert leiðir okkar
lágu.
Staðalbúnaður
Ég myndi ekki segja að ég væri
með neinn sérstakan fatastíl,
ég tek þægindin yfirleitt fram
yfir nokkuð annað. Ég geng
oft í þröngum gallabuxum og
gott ef það er ekki gat á hnénu,
svona aðeins til að gera mömmu
brjálaða. Við buxurnar geng ég
í fremur látlausum peysum sem
ég kaupi hér og þar. Ég er ekki
mikið fatafrík, ég kaupi yfir-
leitt föt þegar ég fer til útlanda
eða ég skelli mér í Kolaportið,
Rauða kross búðina eða Spútnik
og finn mér eitthvað þægilegt.
Hugbúnaður
Ég er í Víkingaþrekinu niðri í
Mjölni og reyni að fara þegar ég
hef tíma. Svo reyni ég auðvitað
bara að hitta vini og vera með
fjölskyldunni í frítíma mínum.
Ef ég þarf að læra finnst mér
næs að setjast niður á Stofunni.
Að drekka kaffi þar er eins og
að koma heim til langömmu.
Mér finnst líka rosalega gott að
fara út úr bænum, til dæmis að
fara til ömmu og afa í sveitina
og vera í rólegheitunum þar.
Vélbúnaður
Ég er ekkert svakalega virk á
samfélagsmiðlunum og hef að
mestu verið laus við þennan
heim. Ég var nánast ekki komin
á Facebook þegar ég byrjaði í
skólanum en nú er ég búin að fá
mér Twitter (@themarianelson)
og er að reyna að koma mér inn
í þetta. Ég hef bara alltaf verið
þannig að mér finnst betra að
tala við fólk í eigin persónu, ég
tengi betur þegar ég er á staðn-
um og get komið við andlitið á
fólki og svona.
Aukabúnaður
Ég borða mikið á Gló þegar ég
borða úti. Ég kann alveg að elda
en ég geri ekki mikið af því þar
sem ég bý ein. Við tökum okkur
stundum saman vinkonurnar
og hendum í næs kjúklingarétt
eða eitthvað slíkt. En mér finnst
samt best þegar mamma eða
amma bjóða mér í mat, í slátur
eða einhvern gamlan sveita-
mat. Ég keyri um á heljarinnar
kagga, gömlum Subaru Impreza
sem langafi minn átti. Ég held
að hann sé 94 eða 95 módel og
hann bilar nokkuð reglulega,
þá er ég fótgangandi. Í sumar
fór ég á ættarmót með fjölskyld-
unni norður í landi og svo heim-
sótti ég vinkonu mína sem býr
í Barcelona. Ég var í tvær vikur
nú í ágúst í hálfgerðri hvíldar-
innlögn, að spóka mig í sólinni
og hafa það kósí. Fram undan
er frumsýning á nýju verki hjá
okkur í Nemendaleikhúsinu nú
á föstudag, Í leit að fortíð. Við
verðum með fjórar sýningar um
helgina og í næstu viku og fólk
getur tryggt sér miða með því
að senda póst á netfangið midis-
vidslist@lhi.is.
Bio-tex þvottaefni og blettaeyðir
Fötin haldast lengur eins og ný! Bio-tex þvottaefnin eru
sérhönnuð fyrir litaðan, hvítan og svartan þvott.
Leikum okkur!
ÍSLE
N
SK
A
/SIA
.IS
N
AT 73835 05/15
92 dægurmál Helgin 2.-4. október 2015