Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.10.2015, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 02.10.2015, Blaðsíða 44
44 heimili & hönnun Helgin 2.-4. október 2015 volundarhus.is · Sími 864-2400 VERÐTILBOÐ - GESTAHÚS 25 m² með 9 m² yrbyggðri verönd kr. 1.599.000,- án fylgihluta. kr. 1.899.000,- með fylgihlutum og byggingarnefndar teiknisetti. Grunnmynd og nánari upplýsingar á heimasíðu volundarhus.is www.volundarhus.is Vel valið fyrir húsið þitt HAUSTTILBOÐ Á GESTAHÚSUM OG GARÐHÚSUM VH /1 4- 04 34 mm bjálki / Tvöföld nótun TILBOÐ - GARÐHÚS 9,9 m² - án gólfs kr. 299.900,- án fylgihluta kr. 339.900,- m/fylgihlutum 70 mm bjálki / Tvöföld nótun 28 mm bjálki / Einföld nótun TILBOÐ - GARÐHÚS 9,7m² kr. 269.900,- án fylgihluta kr. 299.900,- m/fylgihlutum TILBOÐ - BARNAHÚS 2,2m² kr. 149.900,- án fylgihluta kr. 169.900,- m/fylgihlutum 28 mm bjálki / Einföld nótun 50% afsláttur af utningi á GARÐHÚSUM og GESTAHÚSUM á allar þjónustu- stöðvar Flytjanda. GESTAHÚS og GARÐHÚS sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður Sjá eiri GESTAHÚS og GARÐHÚS á tilboði á heimasíðunni volundarhus.is T ölur sýna að þrátt fyrir að einungis um 7% fólks í heiminum starfi við byggingariðnað og hlutur hans í vergri lands- framleiðslu sé ekki nema um 10% megi rekja um helming nýtingar náttúruauðlinda og allt að 40% orkunotkunar og útblásturs gróðurhúsaloft- tegunda til byggingariðnað- ar. Þetta eru rosalegar tölur. „Já, og einmitt ástæða þess að þessi mál eru sett í kastljósið núna af alþjóða- samtökunum. Fólk veit þetta almennt ekki og því komin tími til að vekja almenning til umhugsunar um þessi mál. Við erum að nýta sífellt meira af auðlindum og orku í byggingariðnaði, samhliða fólksfjölgun og vexti þétt- býlissvæða,“ segir Björn Guðbrandsson arkitekt. Hvar liggur þessi orkunotkun helst og hvaða auðlindir er helst verið að ganga á? „Við nýtum orkuna við framkvæmdir og við rekstur bygginga, en ekki síst í fram- leiðslu, þegar hráefninu er breytt yfir í nýtanlega bygg- ingarvöru. Málmiðnaður er til dæmis mjög orkufrekur og álið er eitt nærtækasta dæmið um það. Við göng- um jafnframt hratt á forða málma, sem og önnur námuð efni og skóga. Augljóslega er ekki endalaust af hráefni á jörðinni sem þýðir að við þurfum að endurnýta meira, nota byggingarefni frá endurnýjanlegum auðlind- um eða þá að finna okkur aðra valkosti sem ekki eru þekktir í dag.“ Þú varst einn af þremur höf- undum bókarinnar „Val á vistvænum byggingarefnum“ sem var gefin út af vegum Vistmenntar-verkefnis Evr- ópusambandsins árið 2013. Hvernig kom það til? „Við fengum það verk- efni að skrifa þessa bók þar sem við hjá Arkís höfum lagt áherslu á að byggja upp þekkingu á þessu sviði. Við teljum þetta vera eitt mikilvægasta viðfangsefni arkitekta í dag, að horfast í augu við breytta tíma og vinna í sátt við umhverfið. Við reynum alltaf eftir bestu getu að gera byggingar sem vistvænastar, hvort sem það snýr að efnisvali, orkunýt- ingu, heilnæmi innilofts eða öðru.“ Hvernig eru byggingar heil- næmar fyrir notendur? „Í sumum tilfellum hafa verið notuð byggingarefni í hús sem hafa neikvæð áhrif á inniloft og gefa frá sér lofttegundir sem geta verið skaðlegar, sem því miður hefur áhrif á þá sem búa í byggingunum. Þetta er að mínu mati eitt af þeim atriðum sem mætti gefa mun nánari gaum þegar fjallað er um vistvænar byggingar, það er heilnæmt innra um- hverfi. En auk þess að velja heilnæm byggingarefni hafa til að mynda dagsbirta, lýsing og loftræsting mikið Vistvæn hús bæta líðan okkar og heilsu Björn Guðbrandsson, arkitekt hjá Arkís og einn höfunda bókarinnar „Val á vist- vænum byggingarefnum“, segir aukna umhverfisvitund nauðsynlega nú á tímum þegar allt að 40% orkunotkunar og losunar gróðurhúsalofttegunda megi rekja til byggingariðnaðar. Aukin sjálfbærni og rétt val á efnum séu grundavallaratriði allrar hönnunar í dag. Rannsóknir sýni auk þess að vistvænar byggingar skapi heilnæmara umhverfi sem hefur jákvæð áhrif á heilsu okkar. um það að segja hvernig okkur líður innanhúss. Við verjum eftir allt stærstum hluta ævinnar innan- húss og rannsóknir hafa sýnt fram á verulegan ávinning af því að vinna markvisst að hönnun bygg- inga með þetta að leiðarljósi. Eru einhver byggingarefni sem við gætum nýtt betur hér á landi? „Í bókinni reynd- um við að sneiða hjá því að gera lista um hvaða efni ætti að nota og hvað ætti ekki að nota og reyndum frekar að útskýra hvað það er sem skiptir máli þegar þú velur efni. Það er í raun ekk- ert einfalt svar því spurningin er marg- þætt og því erfitt að tefla einu byggingar- efni fram frekar en öðru. Byggingarefni sem telst góður kostur í einu tilfelli getur jafnvel verið slæmur í öðru. Því er heildstæð þekk- ing á viðfangsefninu nauðsynleg.“ Er erfiðara að vera sjálfbær í hönnun og arkitektúr á eyju nyrst í Atlantshafi en annarsstaðar? „Ég myndi ekki endilega segja að það væri erfiðara heldur er þetta spurning um hugarfar. Við höfum haft dálitla tilhneigingu til að skýla okkur á bak við það að öll efni séu innflutt og þar af leiðandi ýtt ábyrgð á efnisvali frá okkur. Við erum með öðruvísi vandamál en mörg af nágrannalöndum okkar því stóra vandamálið úti í heimi er nýting orkunnar en við höfum búið við lúxus varðandi orku og vatn hér á Íslandi, sem gerir það að verkum að við höfum verið kærulaus með þær auðlindir. Við þurfum kannski að stilla fókus- inn öðruvísi. Ætli við höfum ekki sögulega staðið okkur einna verst í skipulagsmálum, með því að þenja út byggðina án þess að huga að al- menningssamgöngum. Þar getum við bætt okkur verulega með því að byggja þéttar og nota vistvænni sam- göngumáta.“ Átt þú þér eitt- hvað uppáhaldshús eða hverfi, hér eða erlendis? „Ég held að mörg af okkar eldri hverfum séu mjög góður grunnur til að vinna út frá. Hverfin sem voru byggð áður en borgin fór að þenjast út og þar sem þjónusta er enn að þrífast svo íbúar þurfa ekki að leita mjög langt. Það eru til dæmis mörg sjarmerandi gömul hverfi í Reykjavík sem við getum horft til og lært af. Þegar við heimsækjum borgir erlendis eru hverfin sem við sækjum í einmitt þar sem hægt er að rölta um bland- aða og þétta byggð sem er full af fjölbreyttu mannlífi. Annars er ég lítið fyrir að benda á uppáhalds arkitektúr. Það er svo mikið til af vel heppnuðum verkum, sem hafa alls konar gæði og eru efni í mun ítarlegri greiningar.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Björn Guðbrandsson arkitekt segir sjálfbærni og rétt val á efnum eiga að vera grundvöll allrar hönnunar í dag. Haldið er upp á Alþjóðlegan dag arkitektúrs 5. októ- ber ár hvert og í ár hafa Alþjóðasamtök arkitekta ákveðið að tengja áherslur sínar þetta árið alþjóðlegum samningum um aðgerðir í loftslagsmálum. Ljósmynd/Teitur Þrjú visTvæn hús hönnuð af arkís  Villa Lola, einbýlishús Vaðlaheiði.  Náttúrufræði- stofnun, Urr­ iðarholtsstræti, Garðabæ.  Snæfellsstofa, Vatnajökuls­ þjóðgarður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.