Fréttatíminn - 02.10.2015, Qupperneq 54
tíska & snyrtivörur Helgin 2.-4. október 201554
Gabor sérverslun
Fákafeni 9 S: 553-7060
www.gabor . i s - f a cebook . com/gaborse r ve r s lun
Opið mán-fös 11-18 ,
lau 11-16
Vorum að taka upp
nýjar vörur!
Árangursrík og
sársaukalaus
háreyðing
Frískt og
fallegt hár
Snyrtistofan Gyðjan er ein elsta starfandi snyrtistofa borgarinnar,
en með nýju og fersku andliti. Jónína Kristgeirsdóttir, snyrti-
fræðingur og snyrtimeistari, er eigandi Gyðjunnar, en hún tók við
stofunni fyrir 18 árum. Í dag starfa sjö snyrtifræðingar hjá Gyðj-
unni. Ný og endurbætt IPL ljóstæknimeðferð er nýjasta viðbótin í
fjölbreytta flóru meðferða sem stofan býður upp á.
V ið erum duglegar að taka inn nýjungar og leggjum áherslu á sérmeðferðir,“
segir Jónína Kristgeirsdóttir, eig-
andi Gyðjunnar.
IPL ljóstæknimeðferð er ný og
endurbætt ljóstæknimeðferð. „IPL
er nýtt háþróað tæki frá Bentlon í
Hollandi. Tækið er vatnskælt og er
því ekki sársaukafullt að fara í með-
ferð,“ segir Jónína. Meðferðin er
fljótleg, árangursrík og fyllsta ör-
yggis er gætt. „Áður en meðferðin
hefst förum við yfir mikilvæg atriði
og sjúkdómssögu viðkomandi.“
Árangursrík og fljótleg ljós-
tæknimeðferð
IPL meðferðin eyðir ljósum,
gráum og dökkum hárum óháð
húðlit. Engir skaðlegir geislar eru
í tækinu, en búið er að fíltera þá
úr. Ljóstæknin sem notast er við
byggir á svokölluðu Xenon ljósi.
Liturinn í hárinu dregur í sig hit-
ann frá ljósinu og hárið ber hitann
niður í hárrót og veldur varanlegri
eyðingu á hárfrumum í hársekki.
„Meðferðin er fljótleg og hægt
er að fara í vinnu strax að henni
lokinni,“ segir Jónína. Til að ná
sem bestum árangri er mælt með
að koma í 6 -10 skipti á 4-6 vikna
fresti. „Við höfum verið að prófa
þetta sjálfar og það er ótrúlega
góð tilfinning að þurfa aldrei að
hugsa um að raka, plokka eða vaxa
framar,“ segir Jónína. Árangurinn
verður sýnilegur tveimur vikum
eftir meðferð. IPL meðferðin er
einnig hugsuð fyrir karlmenn sem
vilja losna við hár á til dæmis baki
og bringu. „Meðferðin er einnig
frábær lausn fyrir þá sem hafa ver-
ið að glíma við inngróin hár, auk
þess sem tæknin vinnur á grófum,
gráum hárum.“ Gyðjan veitir 15%
afslátt af fyrstu meðferð.
Vinkonuklúbbur
Gyðjan opnaði nýverið nýja og glæsi-
lega heimasíðu þar sem má finna
allar upplýsingar um þær meðferðir
sem í boði eru, svo sem andlitsmeð-
ferðir, brúnkumeðferðir, vaxmeð-
ferðir, förðun eða nudd. Meðlimir í
vinkonuklúbbi Gyðjunnar fá sendan
fróðleik um snyrtingu og sérstök vin-
konukjör. Hægt er að skrá sig í klúbb-
inn á heimasíðunni: www.gydjan.is.
Unnið í samstarfi við
Gyðjuna
Jónína Kristgeirsdóttir, snyrtifræðingur
og eigandi Gyðjunnar, er afar hrifin af
nýjustu viðbótinni á snyrtistofunni, sem
er IPL ljóstæknimeðferð. Tækið sem
notað er við meðferðina er háþróað og
fjarlægir öll hár sársaukalaust. Mynd/Hari.
1. Sebastian Drynamic
Alvöru þurrsjampóið sem fagmenn
nota. Frískar og endurhleður hárið.
Breyttu um greiðslu hvar og hvenær
sem er.
Notkun:
Hristið vel fyrir hverja notkun. Spreyið
í rótina til að fríska hárið og greiðið í
gegn. Til að fá einstaka áferð á allt hárið
spreyið í lengd og enda, blásið hárið og
notið fingurna til að greiða í gegn.
2. Dry me frá Wella EIMI
Þurrsjampó sem gefur frábæra fyll-
ingu og matta áferð. Frískaðu upp á
greiðsluna hvaða tíma dags sem er.
Hreinsar upp fitu og lyftir hárinu.
Notkun: Hristið vel og spreyið jafnt
yfir þurrt hárið, bíðið augnablik og
burstið í gegn.
Shea & hunang frá
Ĺ Occitane
Ný hunangslína sem er
væntanleg í Ĺ Occitane
eftir helgi. Nýja línan
blandar saman vernd-
andi eiginleikum shea
smjörs frá Búrkína
Fasó með einstöku
hunangi frá Provence. Í
línunni fæst sturtugel,
mildur líkamskrúbbur,
handkrem og vara-
salvi. Shea & hunang
nærir, verndar og
mýkir húðina.
1.
2.
Hunangsmjúkt frá Ĺ Occitane