Fréttatíminn - 02.10.2015, Qupperneq 64
Helgin 2.-4. október 201564
Förðun á samFélagsmiðlum
Á Íslandi er sífellt að bætast í hóp kvenna sem blogga um förðun og búa til kennslumyndbönd á sam-
félagsmiðlunum. Margar þeirra hafa lært förðun eða starfa við förðun en eiga það allar sameiginlegt
að búa yfir einstökum áhuga á viðfangsefninu. Jafnframt eru þær einlægar og hika ekki við að sýna á
sér persónulegar hliðar og þegar upp er staðið er það sem aflar þeim vinsælda.
B irna Jódís Magnúsdóttir starfaði við förðun í Reykja-vík þar til hún flutti út á land
fyrir einu og hálfu ári sem varð til
þess að hún fór að blogga af fullum
krafti með öllu því sem fylgir. Í dag
er það orðið hennar helsta starf.
Hún segist vera mikill föndrari í
sér og fyrir utan förðun þá er skart-
gripagerð aðal áhugamálið, auk
þess sem hún hefur mikinn áhuga
á tónlist.
Hvenær vaknaði áhugi þinn á förð-
un?
„Ég byrjaði frekar snemma að farða
mig. Mamma mín seldi snyrtivörur
þegar ég var krakki og ég byrjaði
að stelast í dótið hennar svona 12-13
ára. Síðan byrjaði ég að fletta tísku-
blöðum og áhuginn kviknaði fyrir
alvöru um 16-18 ára aldur.“
Hvar lærðir þú förðun?
„Ég lærði í MOOD make up school.“
Lýstu stílnum þínum?
„Ég er ekki viss um að ég hafi neinn
sérstakan stíl, en ég heillast samt
svolítið mikið af drungalegum
augnförðunum í bland við glimm-
er og dökkar varir. Mér finnst það
skemmtilegasta blandan.“
Hvert sækirðu þér innblástur?
„Ég nota samfélagsmiðla eins og
Instagram. Ég fylgist mikið með
öðrum förðunarfræðingum og stúd-
era til dæmis farðanirnar á tísku-
vikunum.“
Hvað heillar þig við förðun?
„Fjölbreytileikinn. Mér finnst gam-
an að blanda saman allskonar litum
og áferðum og möguleikarnir eru
endalausir.“
Hver hefur verið helsta áskorunin?
„Helsta áskorunin hefur verið að
sýna myndir og myndbönd af sjálfri
mér án farða. Ég hef glímt við húð-
vandamál í mörg ár og fannst alltaf
óþægilegt að fara út úr húsi farða-
laus. Núna eru til nærmyndir af
svitaholunum mínum út um allt int-
ernet og mér finnst það bara allt í
besta lagi.“
Hvaða spurningar færðu oftast frá
lesendum/fylgjendum þínum?
„Ég fæ mjög fjölbreyttar spurning-
ar, en ég er oftast spurð út í vara-
litina mína. Þeir eru svona mitt
„thing“.“
Nefndu þrjú bestu förðurnarráðin
sem þú getur gefið?
„Í fyrst lagi er það umhirða húðar-
innar sem mér finnst alltaf mikil-
vægust. Förðunin verður alltaf fal-
legri ef húðin er hrein og fær nægan
raka. Í öðru lagi, þegar kemur að
vali á farða finnst mér miklu máli
skipta að liturinn passi við litinn
á hálsinum, svo það myndist ekki
skil. Mér finnst mikið fallegra að
fríska upp á húðina með sólarpúðri
ef mér finnst ég of litlaus heldur en
að velja dekkri lit á farða. Að lokum
vil ég benda á að fallega mótaðar
og áberandi augabrúnir þurfa ekki
alltaf að vera dökkar. Það eru alls-
konar litir í boði og allir ættu að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.“
Nýjasta uppgötvunin?
„Nýi MAC pro longwear waterpro-
of farðinn er í miklu uppáhaldi hjá
mér. Svo var ég að byrja að nota pri-
mer/pore minimizer frá Skyn Ice-
land og hann gerir húðina mína svo
áferðarfallega undir farðanum að ég
verð að nefna hann líka.“
Uppáhalds samfélagsmiðillinn?
„Instagram. Förðunarsamfélagið á
Instagram er eins og ein stór fjöl-
skylda og ég hef kynnst svo mörgu
frábæru og hæfileikaríku fólki þar.“
Ertu alltaf förðuð?
„Nei, alls ekki. Ég er einn daginn
farðalaus og annan með glimmer
og gerviaugnhár. Ég farða mig mik-
ið fyrir bloggið, en yfirleitt tek ég
allt af mér þegar ég er búin að taka
myndir eða taka upp myndbönd.“
Hvaða trend heillar þig mest núna?
„Ég er mjög hrifin af möttu vörun-
um sem hafa verið í svolítinn tíma
núna og metallic augum.“
Instagram: @birnamaggmua
Snapchat: birnamagg
Youtube: www.youtube.com/birna-
magg
Facebook: www.facebook.com/
birnamaggcom
Lavera eru náttúrulegar og lífrænt
vottaðar snyrtivörur. Merkið varð til
árið 1987 í Þýskalandi og var fyrsta
vara þess varasalvi úr lífrænum efn-
um. Vörulínan stækkaði fljótt og í dag
framleiðir Lavera um 250 vörur og er
eitt af leiðandi vörumerkjum í flokki
lífrænt vottaðra húð- og snyrtivara.
Um 220 manns starfa hjá fyrirtækinu
í dag sem ræktar allar sínar plöntur
sjálft, til að tryggja framboð og gæði.
Vörurnar eru fyrir mismunandi
hár- og húðgerðir og henta allri fjöl-
skyldunni. Lavera hefur hlotið yfir
700 viðurkenningar frá Öko-Test,
einum virtustu neytendasamtökum í
Evrópu. Vörulínurnar eru níu talsins
og hefur Basis línan sem inniheldur
mildar húð- og hárvörur notið afar
mikilla vinsælda, enda er hún á verði
sem ekki hefur sést áður í þessum
vöruflokki. Aðrar vörulínur frá La-
vera innihalda andlitsvörur, hárvör-
ur, krem, brúnkukrem, svitalykt-
areyði, förðunarvörur, herravörur
og barnavörur, svo dæmi séu tekin.
Lavera þýðir sannleikur á latínu,
en fyrirtækið leitast við að bjóða
vottaðar lífrænar húðvörur á við-
ráðanlegu verði. Allar vörurnar eru
með NaTrue vottun og flestar eru
einnig með vegan vottun. Vörurn-
ar eru auk þess lausar við glúten,
paraben og önnur kemísk efni. La-
vera vörurnar eru fáanlegar í ölum
verslunum Heilsuhússins, Hagkaup
Skeifunni, völdum apótekum Lyfju,
Lifandi markaði, Heilsutorgi Blóma-
vals, Heilsuveri og á Heimkaup.is.
Nánari upplýsingar má finna á Fa-
cebook undir Lavera - hollt fyrir
húðina.
Unnið í samstarfi við
Kj. Kjartansson ehf.
Náttúrulegar snyrtivörur
fyrir alla fjölskylduna
Áskorun
að sýna
myndbönd
af sjálfri sér
AF HVERJU SELDU BLEIKU
GLASI RENNUR TIL STYRKTAR
BLEIKU SLAUFUNNAR.
200KR.
ACIDOPHILUS PLÚS
meltingin
þarmaflóran
vinveittir góðgerlar
SKAMMTASTÆRÐ | 120 HYLKI | 1 MÁN.
Fæst í öllum helstu apótekum,
heilsubúðum og matvöruverslunum
www.gulimidinn.is