Fréttatíminn - 02.10.2015, Blaðsíða 82
Hljómsveitin Dúndurfréttir fagn-
ar 20 ára afmæli á þessu ári og af
því tilefni heldur sveitin tónleika
víðsvegar um landið í október og
nóvember. Dúndurfréttir hafa hald-
ið fjölda tónleika á síðustu 20 árum
og fara þeir fremstir í flokki þeirra
sem flytja rokk gömlu meistaranna
í Pink Floyd, Led Zeppelin, Deep
Purple og fleiri. Dúndurfréttir hafa
flutt verk eins og The Wall og Dark
Side Of The Moon í Eldborgarsal
Hörpu og í Laugardalshöll, sem og
ýmis önnur klassísk verk um allt
land. Á tónleikaferðalaginu í októ-
ber taka verða perlur gömlu meist-
arana á efnisskránni og úr ýmsum
áttum.
Tónleikaröðin hefst í kvöld, föstu-
dagskvöld, í Bæjarbíói í Hafnarfirði.
Aðrir tónleikar í október og nóvem-
ber verða 15. október í Hljómahöll-
inni í Reykjanesbæ, 16. október í
Bíóhöllinni Akranesi, 23. október á
Græna hattinum, 24. október í Vala-
skjálf á Egilsstöðum, 6. nóvember í
Hlégarði Mosfellsbæ og 7. nóvem-
ber í Hvíta húsinu á Selfossi. Dúnd-
urfréttir enda svo tónleikaferðina
með tónleikum í Nuuk á Grænlandi
þann 14. nóvember.
Allar nánari upplýsingar um tíma-
setningar og miðasölu má finna á
Facebooksíðu sveitarinnar. -hf
Bergur Þór Ingólfsson og Kristjana Stefánsdóttir í hlutverkum sínum í Sókratesi.
TónlisT HljómsveiTin DúnDurfréTTir 20 ára
Ferðast um landið og enda í Nuuk
leikHús síðasTi Dagurinn í lífi sókraTesar í BorgarleikHúsinu
s ókrates er í leikstjórn Rafael Bian-ciotto með Bergi Þór Ingólfssyni sem semur verkið ásamt Kristjönu
Stefánsdóttur. Bianciotto leikstýrði einnig
Dauðasyndunum sem trúðarnir settu upp
árið 2009 og hlaut verkið sex tilnefningar
til Grímunnar það árið.
„Sagan er byggð á síðasta deginum í
lífi Sókratesar, sem Plató skrifaði,“ segir
Kristjana. „Þetta er trúðaópera og það sem
Plató skrifaði í sínu heimspekiriti fjallar
bara um karlmenn. Einu konurnar sem
minnst er á eru eiginkona Sókratesar sem
er lýst sem einhverju leiðinda skassi, og
svo bregður fyrir flautustúlku sem spilar í
einhverju partíi en er rekin inn í eldhús,“
segir hún. „Við segjum sögu Sókratesar
frá sjónarhorni þessara kvenna, og fáum
þeirra hlið á málinu. Sögurnar sem hafa
ekki verið sagðar. Svo fær einn af þremur
sonum Sókratesar líka smá rödd í þessu
verki,“ segir Kristjana, en hún og Bergur
leika einnig í sýningunni ásamt þeim
Kristínu Þóru Haraldsdóttur og Maríönnu
Clöru Lúthersdóttur.
Kristjana semur einnig tónlistina. „Við
erum í rauninni ekki að fjalla um Sókrates
eins og aðrir hafa lesið um hann,“ segir
hún. „Við erum að fókusera á allt það
sem er að gerast í kringum hann þennan
síðasta dag í lífi hans. Hann er dæmdur til
dauða fyrir það að spilla æskulýðnum og
þarf að drekka eitur, sem hann gerir. Hann
ákveður að standa með sjálfum sér og sið-
fræðinni. Hann trúði því að maður gæti
æft dyggðirnar og æft okkur í því að vera
góðar manneskjur,“ segir Kristjana. „Hann
var stórmerkilegur karl. Það er í rauninni
endalaus brunnur hvað maður getur gert
með þessu trúðaformi,“ segir hún. „Við
æfum sýninguna eins og mjög dramatíska
óperu og um leið og nefin eru komin þá
fáum við alla þessa barnslegu, einföldu og
filterslausu nálgun. Þá er alltaf hægt að
fara lengra með alla hluti. Verkið er búið
að vera á teikniborðinu síðan um áramót
og þetta var einhver gamall kláði hjá Bergi
að gera þetta,“ segir hún. „Þegar maður
vill byrja að fræðast um hluti, þá er besta
ráðið að byrja að skrifa um þá. Þetta er 101
í heimspeki,“ segir Kristjana Stefánsdóttir,
söngkona og trúðaleikkona. „Það er aldrei
að vita nema maður fari að leika eitthvað
án þess að vera með nef en þetta er bara
svo skemmtilegt.“
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Trúðaóperan Sókrates eftir þau Berg Þór Ingólfsson og Kristjönu Stefánsdóttur, var frumsýnd
í Borgarleikhúsinu í gær, fimmtudag. Trúðar Borgarleikhússins hafa sett upp sýningarnar um
Jesú litla og Dauðasyndirnar og í þetta sinn tækla þeir heimspekina og taka Sókrates sér til
fyrirmyndar og spyrja og spyrja og spyrja þangað til við komumst að minnsta kosti skrefi nær
því að vita um hvað við getum verið sammála um í heiminum. Kristjana Stefánsdóttir segir
möguleikana endalausa um leið og nefið er sett upp.
Trúðanefið opnar allar dyr
Einu konurnar
sem minnst er
á eru eigin-
kona Sókra-
tesar sem er
lýst sem ein-
hverju leiðinda
skassi, og svo
bregður fyrir
flautustúlku
sem spilar
í einhverju
partíi en er
rekin inn í eld-
hús.
LOKAHELGI!
Ef keypt er fyrir
6.000 kr. eða meira
fylgir gjöf
OPIÐ ALLA HELGINA
kl. 10–19
RISALAGERSALA
á Fiskislóð 39
Allt að
90%
afsláttur Yfir 4000
titlar frá öllum
helstu útgefendum
landsins!
Gjafir
fyrir öll
tækifæri!
LOKAHELGI!
109.900 kr.Frá:
Ferðatímabil: 15-17. apríl 2016. Verð á mann miðað við 2
saman í herbergi. Innifalið er flug, gisting í 2 nætur,
morgunmatur og miði á tónleikana.
www.gaman.is gaman@gaman.is Sími 560 2000
TÓNLEIKAR MUSE
Skemmtilegt fótboltamót fyrir stráka og stelpur í yngri flokkum.
Mótið er haldið rétt fyrir utan Kaupmannahöfn og því geta
foreldrar t.d. gist þar á meðan á mótinu stendur.
Mótið sjálft er með yfir 150 lið frá yfir 20 löndum.
CUP DENMARK
www.gaman.is gaman@gaman.is Sími 560 2000
ÚTSALA!
HAUST
T L !
LOKAHELGI!
heimkaup.is
Smáratorgi 3 · Kópavogi · 550 2700
– ekki missa af þessu!
82 menning Helgin 2.-4. október 2015