Fréttatíminn - 02.10.2015, Blaðsíða 85
PURE safarnir frá Harboe eru 100% hreinir nýkreistir
og ósíaðir safar. Þrátt fyrir að vera 100% hreinir eru
safarnir líka án rotvarnarefna. Byrjaðu daginn með
heilnæmum safa frá PURE.
100% HOLLUSTA
Norræn tónlist í
Háteigskirkju
Trio DaNoIs flytur á tónleikum í
Háteigskirkju næsta sunnudag,
klukkan 16, tónlist frá Íslandi,
Noregi og Danmörku. Tríóið flyt-
ur meðal annars verk eftir Edvard
Grieg, Pál Ísólfsson, Carl Nielsen
og Christian Sinding. Einnig flytur
tríóið nýtt verk sem heitir „Hom-
mage á Carl Nielsen“ eftir norska
tónskáldið Morten Gaathaug. Það
er skrifað sérstaklega fyrir tríóið í
tilefni af því að á þessu ári eru 150
ár frá fæðingu Nielsen.
Hornleikarinn Pernille Kaarslev,
frá Fensmark í Danmörku, píanó-
leikarinn Jónína Erna Arnardóttir,
frá Borgarnesi og píanóleikarinn
Morten Fagerli, frá Rælingen i Nor-
egi, hittust þegar þau voru nemend-
ur við Griegakademiet í Bergen á
10. áratugnum. Árið 2014 ákváðu
listamennirnir að stofna tríó og var
markmiðið að draga fram norræn-
an tónlistararf og menningu. Kom
tríóið fram á 14 tónleikum í fyrra
þar sem minnst var t.d. 70 ára sjálf-
stæðis Íslands og 200 ára stjórnar-
skrárafmælis Noregs. Í ár hefur
tríóið komið fram á tónleikum í Nor-
egi, Lettlandi og Danmörku.
Endurbætt
tilvitnanabók Kollu
Út er komin
hjá Veröld ný
og endurbætt
útgáfa af Nýju
tilvitnanabókinni
eftir Kolbrúnu
Bergþórsdóttur.
Bókin inniheldur
á fimmta þúsund
tilvitnanir víða að úr heiminum og frá
umliðnum 3000 árum – frá Grikkjum
fornaldar til stjarnanna í dægurheimi
samtímans.
Tilvitnanirnar eru af ýmsum toga,
úr ræðum og ritum, íslenskum og
erlendum bókmenntum, popplögum
og Íslendingasögunum, svo nokkuð sé
nefnt. Þeim er raðað upp í aðgengilega
efnisflokka sem auðvelda lesandanum
að finna tilvitnun fyrir sérhvert tilefni.
Trio DaNoIs leikur í Háteigskirkju á
sunnudaginn.