Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.09.2015, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 25.09.2015, Blaðsíða 2
YFIR 20 GERÐIR GASGRILLA Á ÚTSÖLUNNI � Stærð: 149 x 110 x 60 cm ÚTSÖLU OK Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Gasgrill Garðhúsgögn Kolagrill Aukahlutir Grillbúðin Opið virka daga 11-18 - Laugardaga 11-16 www.grillbudin.is á laugardag Ástarpungurinn farinn til Noregs? „Breytingin gengur í sem stystu máli út á það að opna þennan miðil sem við erum með fyrir notendur, þannig að þeir geti sjálfir búið til efni að eigin vali, en það hefur hingað til alfarið verið í höndum okkar ritstjórnar- teymis,“ segir Stígur Helgason, verkefnastjóri hjá QuizUp, en í gær var kynnt til sögunnar ný útgáfa af QuizUp appinu vinsæla; My QuizUp. My QuizUp mun gera notendunum kleift að búa til spurningar um allt á milli himins og jarðar, hvort sem þær tengjast sérhæfðum áhugamálum þeirra og hugðarefnum eða jafnvel þeim sjálfum. Geta þeir í kjölfarið deilt spurningunum og flokkunum með vinum, ættingjum og öðrum leikmönnum í QuizUp. „Við höfum fundið fyrir því alveg frá því að leik- urinn kom út upphaflega að það hefur verið gríðarleg eftirspurn eftir alls konar spurningaflokkum, við fáum slíkar beiðnir í hrönnum á hverjum degi og getum einfaldlega ekki annað þeirri eftirspurn,“ segir Stígur. „Núna getum við sem sagt boðið fólki upp á að skapa sjálft þá spurn- ingaflokka sem það hefur áhuga á og byrjað að spila við aðra notendur um leið og það hefur farið í gegnum þann stutta prósess að búa flokkinn til.“ Búa þarf til spurningarnar og spurningaflokkana í borð- eða far- tölvu á quizup.com en notendur Qui- zUp geta samstundis spilað spurn- ingaflokka hver annars, hvort sem er í tölvum eða QuizUp-appinu og komist á topplistann í honum, skipst á skoðunum og deilt flokknum á öðr- um samfélagsmiðlum. Sem stendur eru 750 þúsund spurningar í 1.500 flokkum í leiknum en búast má við því að þessar tölur muni margfaldast með tilkomu My QuizUp. - fb  Tölvuleikir My Quizup koMið á fleygiferð Notendur búa sjálfir til spurningaflokkana Þorsteinn Baldur Friðriksson, framkvæmda- stjóri Plain Vanilla, kynnti breytingar á QuizUp á blaðamannafundi. Ljósmynd/Hari Stígur Helgason v ið fengum ábendingu á föstudag-inn var um að það væru farþegar að fara um borð í hvalveiðibátinn Hrafnreyði í Hafnarfjarðarhöfn og ég þótt- ist vita að þeir væru án farþegaleyfis þann- ig að ég lét Landhelgisgæsluna vita,“ segir María Björk Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Hvalaskoðunarfélagi Íslands, sem hefur áhyggjur af því að hvalveiðimenn séu farnir að stunda hvalveiðiskoðunar- ferðir með erlenda ferðamenn. Hún segist hafa fylgst með ferðum bátsins í gegnum Marine Traffic og ferðin hafi tekið rúma tólf tíma. „Þegar báturinn lagðist að bryggju í Hafnarfirði var komið myrkur en ég sá að lögreglan fór um borð og tók niður nöfn áhafnarmeðlima og farþega,“ segir hún, en segist ekki vita hvert framhaldið verði. „Við hjá Hvalaskoðunarfélaginu viljum auðvitað miklu frekar að hvalveiðibátarnir séu notaðir í skemmtiferðir en að vera að skjóta hvali, en þetta er spurning um að hafa tilskilin leyfi til farþegaflutninga, sem ég held að þeir hafi ekki.“ Ásgrímur L. Ásgrímsson, fram kvæmda- stjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, staðfestir að lögreglan hafi farið um borð í hvalveiðibát í Hafnarfjarðarhöfn á föstu- dagskvöldið var, auk þess sem starfsmenn Gæslunnar hafi tvívegis farið um borð í slíka báta við Suðvesturland í síðustu viku vegna gruns um farþegasiglingar. „Ég get staðfest að í öllum tilfellum voru nokkrir farþegar um borð sem ekki voru hluti af áhöfninni,“ segir hann. „Við erum svo að skoða hvort ástæða sé til einhverra aðgerða í framhaldinu. Það er dálítið opið hvað eru farþegasiglingar. Ef þú átt strand- veiðibát, tíu metra langan, og þig langar til að skjótast hérna út á Sundin með afabörn- in þín, er það bannað? Þetta er dálítið grátt svæði. Í þessu tilfelli sem við erum að tala um vitum við ekki hvort hvalveiðifyrir- tækið var með starfsmenn fyrirtækisins í skemmtiferð, eða hvort eitthvað ólöglegt var í gangi. Það hefur engin ákvörðun verið tekin um það hjá Landhelgisgæsl- unni hvort ástæða sé til að gefa út einhvers konar kæru. Það er verið að skoða það.“ Fyrir nokkrum árum kynntu hrefnu- veiðimenn hugmynd um hvalveiðiskoðun, þar sem farþegum gæfist kostur á að taka þátt í að skjóta hrefnur, en hljótt hefur verið um þá hugmynd síðan. María Björk segist efast um að nokkurt dýr hafi verið skotið í ferðinni á föstudaginn, enda brjóti það í bága við dýraverndunarlög að gera aflífun dýra að skemmtiatriði. „En þetta at- vik bendir til þess að hrefnuveiðar standi ekki undir sér og að hrefnuveiðimenn þurfi að reyna fyrir sér í ferðaþjónustu til að ná endum saman.“ Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst ekki að ná í útgerðarmann Hrafnreyðar, Gunnar Bergmann Jónsson, við vinnslu fréttarinnar. Friðrika Benónýsdóttir fridrika@frettatiminn.is Arion banki vill Vörð Mynd Viðræður standa yfir um möguleg kaup Arion banka á Verði tryggingum, sam- kvæmt heimildum Viðskiptablaðsins. Viðræður standa nú yfir milli BankNordik og Arion banka um kaup hins síðarnefnda á 49% hlut í tryggingafélaginu Verði, að því er heimildir Viðskiptablaðsins herma. Friðrik Jóhannsson hjá Icora Partners, sem sér um sölu félagsins, segir það eitt í sam- tali við Viðskiptablaðið að ekki sé búið að ganga frá sölu félagsins, en að öðru leyti geti hann ekki tjáð sig um málið. Landlæknir með BDSM Landlæknir sér ekkert því til fyrirstöðu að Ísland fylgi fordæmi nágrannalandanna og fjarlægi BDSM-hneigðir af sjúkdómslista landlæknis. Hann ætlar að boða formann samtakanna til fundar um það hvernig hann geti best komið til móts við óskir samtakanna. Þetta kemur fram í svari Birgis Jakobs- sonar landlæknis við fyrirspurn fréttastofu RÚV, í kjölfar fréttar um að Ísland sé eina ríkið á Norðurlöndum þar sem BDSM- hneigðir eru enn þá skilgreindar sem geðsjúkdómur. BDSM er samheiti fyrir bindi-, drottnunar- og sadómasókistaleiki og munalosta. Búrhvalur á Skógasandi Mynd af vef RÚV Fimmtán metra búrhvalur er rekinn á Skógasandi. Hvalurinn er í fjöru bænda á Ytri-Skógum, skammt frá Skógá. Nokkuð hefur brimað undanfarið á Skógafjöru en hvalurinn er rekinn hátt í fjörukambinn og að nokkru grafinn í sand. Líklegt er að hvalurinn verði í fjörunni um sinn en mögulegt er að hann taki út verði mikið brim. Samkvæmt lögum skal tilkynna hvalreka lögreglu, Um- hverfisstofnun, Hafrannsóknarstofnun og Náttúrufræðistofnun. Ekki þykir mikill arður af hvalreka nú á dögum nema síður sé. Mögulegur arður mun þó vera land- eigenda, nema Náttúrufræðistofnun geri tilkall til hvalsins. Hafrannsóknarstofnun lét taka sýni úr hvalnum í gærmorgun, fimmtudag. Karladómur Dómnefndin sem mat hæfi umsækjenda um embætti hæstaréttardómara sem skipa á í frá mánaðamótum var skipuð fimm karlmönnum en engri konu. Hæsti- réttur, dómstólaráð og Lögmannafélag Íslands tilnefna nefndarmenn og Alþingi kýs einn að auki og urðu karlar fyrir valinu hjá þeim öllum.  landhelgisgæslan afskipTi af hvalveiðibáTuM vegna farþega Þetta er dálítið grátt svæði. Í þessu til- felli sem við erum að tala um vitum við ekki hvort hvalveiðifyrir- tækið var með starfsmenn fyrirtækisins í skemmtiferð, eða hvort eitt- hvað ólöglegt var í gangi.“ Dálítið opið hvað eru farþegasiglingar Landhelgisgæslan fór tvívegis um borð í hvalveiðibát í síðustu viku, auk þess sem lögreglan fór um borð í einn þegar hann lagðist að bryggju, vegna gruns um ólöglegar farþegasiglingar. Hvala- skoðunarfélagið hefur áhyggjur af þessari þróun. Hvalaskoðunarfélag Íslands tilkynnti farþegasiglingu hrefnuveiðibáts til Landhelgisgæslunnar í síðustu viku. Norska fyrirtækjasamsteypan Orkla Group er orðin stórtæk á íslenskum matvælamarkaði. Samsteypan framleiðir m.a. ástarpunga. Í upphafi þessa mánaðar var greint frá því að félagið Gæðabakstur ehf. hefði keypt meirihluta í Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co, einnig þekkt sem Kristjánsbakarí. Kristjánsbakarí er í hópi elstu fyrirtækja landsins og hafði fram að kaupunum verið fjölskyldufyrirtæki í samfelldri eigu þriggja ættliða í 103 ár frá stofnun. Með kaupunum færðist Kristjánsbakarí inn í norsku samsteypuna Orkla Group A/S, sem er skráð í norsku kauphöllina. Orkla Group er í hópi stærstu fyrir- tækja í Noregi, en um 13.000 starfsmenn störfuðu fyrir félagið í lok síðasta árs. Samstæðan er metin á jafnvirði 984 milljarða íslenskra króna í norsku kauphöllinni. 2 fréttir Helgin 25.-27. september 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.