Fréttatíminn - 25.09.2015, Blaðsíða 34
þeir sem fást við meginstraumstón-
list mættu stundum vera opnari fyrir
þessari akademísku nútímatónlist,
því þar er oft hægt að finna einhverja
alveg nýja hluti,“ segir hann. „Það
var gott að víkka sjóndeildarhringinn
aðeins. Ég hafði alltaf verið í þessu
hljómsveitastússi og í mörgum sveit-
um sem voru alltaf á mörkum þess
að meika það, en samt ekki,“ segir
Úlfur sem er einna þekktastur fyrir
veru sína í Apparat Organ Quartet.
„Apparat starfar enn, en hefur alltaf
starfað með hléum.“
Í samstarfi við Júri
The Aristókrasía Project er algert
gæluverkefni Úlfs, en mun nú loks-
ins líta dagsins ljós. „Ég hef alltaf
verið að vinna að þessu verki inn á
milli allra annarra verkefna,“ seg-
ir hann. „Elstu upptökurnar eru
frá árinu 2007 en á síðustu tveim-
ur árum hef ég unnið að þessu af
krafti. Ég er með nokkurnveginn
tilbúna plötu, sem ég ætla að láta
seytla út. Ég byrja á því að gefa út
eitt lag og hef þetta svolítið frjáls-
legt vegna þess hve útgáfubransinn
er skrýtinn,“ segir hann. „Svo mað-
ur verður að leika sér aðeins að því.
Þessi tónlist sameinar kannski það
sem ég hef verið að gera með Appa-
ratinu, þetta melódíska syntha-popp
og það sem ég hef svo verið að gera
fyrir kvikmyndir og sjónvarp. Þetta
er blanda af strengjum, slagverki og
synthiseiserum.
Ég er með strengjakvartett sem
spilar stóra rullu, skipaðan þeim
Unu Sveinbjarnardóttur, Gunn-
hildi Daðadóttur, Guðrúnu Hrund
Harðardóttur og Hrafnkatli Orra
Sveinbjörnssyni og sömuleiðis hef
ég notið aðstoðar Samuli Kosminen,
slagverksleikara og stórmeistara,
og Halldórs Eldjárns, bróður míns,
sem er mikill hæfileikamaður sem
kemur ótrúlega oft við sögu í mín-
um verkefnum. Hann var farinn að
spila inn á upptökur hjá mér þeg-
ar hann var bara lítil karta. Þetta
er ævintýrakennt, nokkurskonar
geim-fantasía,“ segir Úlfur.
„Eitt lagið er tileinkað mestu
hetju Sovétríkjanna, Júri Gagarín,
og meðan á tónleikunum stendur
verður líka sýnd kvikmynd honum
til heiðurs. Það er kvikmynd frá
árinu 2011 sem heitir First Orbit
eftir kvikmyndagerðarmanninn
Christopher Riley og er endurgerð
á ferð Gagaríns í kringum jörðu.
Hún var skotin af geimfara úr al-
þjóðlegu geimstöðinni og ég held
að þetta sé jafnvel í fyrsta skipti sem
þessi mynd er sýnd hérna,“ segir
Úlfur. „Júri kemur fyrir í þessu lagi
34 viðtal Helgin 25.-27. september 2015