Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.09.2015, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 25.09.2015, Blaðsíða 16
T „Tölvan segir nei“ er frægt grínatriði úr breskum spaugþáttum þar sem barátta ein- staklingsins við kerfið er vonlaus, svarið er alltaf nei. Það er hins vegar ekkert spaugi- legt við baráttu Fanneyjar Bjarkar Ásbjörns- dóttur við kerfið, sem fram undir það síð- asta hefur sagt nei við réttmætum kröfum hennar um nýja og árangursríka lyfjameð- ferð gegn lifrarbólgu C sem hún smitaðist af við blóðgjöf sem hún fékk eftir barnsburð árið 1983. Í liðinni viku gekk dómur héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Fanney ætti ekki rétt á nýjustu lyfjum við sjúkdómi sínum. Ákveðið var að áfrýja dómnum til hæsta- réttar enda sagði lögmaður Fanneyjar að í honum fælist að fjárlög væru æðri mannrétt- indum. Vonandi þarf Fanney Björk ekki að bíða eftir niður- stöðu hæstaréttar í máli sem þurfti ekki að fara fyrir dómstóla og von vekur að Landspítalanum hefur verið fyrir- skipað að hefja nú þegar, eða eins fljótt og kostur er, meðferð með nýjum lyfjum við langvinnri lifrarbólgu C. Finna hefði mátt leið fyrr með breyttri forgangsröðun, ef ekki hefðu komið til stöðnuð kerfislæg við- brögð. Réttur konunnar til lyfjameðferðar- innar hefur allan tímann verið svo augljós. Hún smitaðist á íslensku sjúkrahúsi, henni var gefið sýkt blóð eftir barnsburð en ekki var byrjað að skima eftir lifrarbólgu í Blóð- bankanum fyrr en árið 1992 en fram hefur komið í fréttum að vitað er um á þriðja tug blóðþega sem smituðust af lifrarbólgu fyrir þann tíma. Fanney hefur lengi verið óvinnufær vegna sjúkdóms síns, verið þjáð og metin með 65% varanlega örorku en það var fyrst árið 2010 sem greining fékkst á sjúkdómnum. Eftir greininguna, þegar fyrir lá að orsök smitsins á sínum tíma var hið sýkta blóð á spítalan- um, kom í ljós að dóttir hennar, sem fæddist árið 1989, hafði einnig smitast af lifrarbólgu, annað hvort í móðurkviði eða við fæðingu. Mæðgurnar fóru í lyfjameðferð við veirunni árið 2012. Dóttirin komst í gegnum hana við illan leik og fékk bata en móðirin varð að hætta á lyfjunum vegna alvarlegra auka- verkana. Sigurður Ólafsson, sérfræðingur í melt- ingar- og lifrarlækningum, skrifaði grein sem birt var í Læknablaðinu í júní, með fyr- irsögninni: „Byltingarkenndar framfarir í meðferð lifrarbólgu C – Hvers eiga íslenskir sjúklingar að gjalda?“ Þar sagði að nýtt lyf væri komið á markað en rannsóknir sýndu að yfir 90% þeirra sem fengju lyfið læknuðust af sýkingunni. Hann segir nú, að því er fram kom í frétt í vikunni, að á Landspítalanum sé reynt að fresta meðferð lifrarbólgusjúklinga þar til nýju lyfin fást. Þegar Fanney fór fram á að fá hið nýja lyf hafnaði Lyfjaafgreiðslunefnd beiðninni á þeirri forsendu að kostnaðurinn rúmaðist ekki innan fjárlaga 2015. Sú afstaða nefndar- innar var síðan staðfest í flýtimeðferð héraðs- dóms Reykjavíkur á dögunum. Tölvan sagði nei. Kerfið fann ekki lausn á augljósu rétt- lætismáli. Sigurður Ólafsson sérfræðilæknir var, í fyrrgreindri grein í Læknablaðinu, gáttaður á afstöðu yfirvalda. Þar sagði hann: „Þessi staða á sér ekki hliðstæðu í þeim löndum sem við viljum helst bera okkur saman við. Ég efast reyndar um að það eigi sér fordæmi í heilbrigðiskerfi Íslendinga á síðari árum að svo stórum hópi sjúklinga með alvarlegan sjúkdóm sé neitað um jafnáhrifaríka meðferð – meðferð sem íbúum annarra Norðurlanda stendur til boða. Þegar ástandið er rætt við starfsbræður erlendis vekur það furðu og hneykslan.“ Nú virðast heilbrigðisyfirvöld loks hafa séð að sér, þótt ugg veki orð framkvæmda- stjóra fjármálasviðs Landspítalans í frétt á miðvikudaginn um að útboð á nýju lyfjunum feli ekki sjálfkrafa í sér að ákveðið hafi verið að innleiða lyfin. Slík afstaða er fráleit og full- komlega ástæðulaust að halda sjúklingunum áfram í óvissu. Veita verður Fanney Björk Ásbjörnsdóttur hið bráðasta þá meðferð sem hún á skýlausan rétt á – og öðrum í þeim hópi sem sérfræðilæknirinn vísaði til. Réttlætismál sem aldrei þurfti að fara fyrir dóm Tölvan segir nei Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk- uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Skráðu þig í Safnarann og þú gætir eignast eigulegt listaverk að andvirði allt að 400.000 kr. Svona eignast þú listaverk • Þú leggur inn 1.000 kr. eða meira í Safnarasjóðinn mánaðarlega. • Þú ferð í pottinn og á Menningarnótt eru heppnir safnarar dregnir út. • Í úrvalspottinum er fjöldi listaverka eftir marga af fremstu listamönnum þjóðarinnar. • Heildarverðmæti listaverkanna er á þriðju milljón króna. • Þú getur margfaldað líkurnar á að komast í úrvalspottinn með því að greiða hærri upphæð. • Sé númerið þitt ekki dregið út getur þú notað inneignina til að fá listaverk eða tekið inneignina þína út í formi gjafabréfs. • Upphæðin sem þú leggur inn tapast aldrei. Frekari upplýsingar og skráning á heimsíðunni okkar www.safnarinn.is Samstarfsaðilar Safnarans eru: 16 viðhorf Helgin 25.-27. september 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.