Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.09.2015, Blaðsíða 22

Fréttatíminn - 25.09.2015, Blaðsíða 22
Út eru komnar 5 nýjar barnabækur um dýrin og einnig bók um stafrófið fyrir yngstu kynslóðina. Höfundurinn, Heiða Björk Norðfjörð, er hönnuður að mennt en hefur alltaf verið iðin við það að mála og teikna. Hún skrifaði sögur fyrir yngri systkini sín yngri þegar hún var yngri og ákvað að gera eitthvað við allar hugmyndirnar. Foreldr- arnir ekki með öll svörin B ækurnar um Hönnu hunangs-flugu, Frikka fiðrildi, Ása ánamaðk og Kötu könguló, eftir Heiðu Björk Norðfjörð, komu út nýlega hjá bókaforlaginu Skruddu. Einnig kom út bókin Stafrófið, þar sem farið er yfir alla stafina fyrir yngstu kynslóðina. Bækurnar eru lit- skrúðugar og fallega myndskreyttar af höfundinum sjálfum. „Ég gaf út bókina um Lalla og litakastalann árið 2012 sem var mín „Ég hef fundið mína hillu í því að teikna fyrir börn,“ segir Heiða Björk Norðfjörð. Ljósmynd/Hari fyrsta bók og eftir hana datt ég einhvernveginn í gírinn og gerði fleiri,“ segir Heiða. „Það hefur alltaf blundað í mér að skrifa. Ég skrifaði fyrir yngri systkini mín og svo hef ég alltaf haft gaman af því að teikna, sérstaklega fyrir krakka. Þeir hafa líka haft gaman af því. Þegar ég gerði fyrstu bókina var ég með vinnuað- stöðu og átti mikið af vatnslitum í öllum litum, og gerði því bók um alla litina. Þannig byrjaði þetta bókaævintýri,“ segir Heiða. „Svo fannst mér þetta bara svo gaman að ég hélt bara áfram og þetta vatt upp á sig. Mér fannst krakkar spyrja alltaf mikið um dýrin, og foreldrarnir eru kannski ekki með öll svörin þannig að mig langaði að hafa þetta fræðandi og um leið skemmtilegt,“ segir hún. „Þessi dýr, eins og skordýrin, eru öll í okkar náttúru og þetta eru skemmtilegar staðreyndir um þau. Margir krakkar eru stundum hræddir við flugur og köngulær og þá er líka gott að benda á alla jákvæðu hlutina sem tengjast þeim,“ segir Heiða sem útskrifað- ist sem hönnuður frá Iðnskólanum í Hafnarfirði árið 2000. „Ég setti myndirnar úr fyrstu bókinni á sýningu sem heitir „Þetta vilja börnin sjá,“ sem fer í kringum landið. Þetta er sýning þar sem teikningar og myndir úr bókum eftir íslenska höfunda eru til sýnis, og krakkarnir geta skoðað myndirnar um leið og þau skoða bækurnar,“ segir Heiða. „Ég get haldið áfram með dýrin og þetta er orðin hálfgerð sería, og ég hef mikinn áhuga á að gera meira af því. Svo hef ég fleiri hugmyndir á borðinu sem ég get ekki talað mikið um strax, en það kemur að því. Það eru allavega nóg af hug- myndum, það vantar ekkert upp á það,“ segir hún. „Ég hef svo alltaf verið að grúska í myndlistinni með, en finnst eins og ég hafi fundið mína hillu í því að teikna fyrir börn aðallega,“ segir Heiða Björk Norðfjörð, rithöfundur og myndlistarkona. Bækurnar eru allar komnar í verslanir Máls og menningar og Eymundsson. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Svo fannst mér þetta bara svo gaman að ég hélt bara áfram og þetta vatt upp á sig. 22 viðtal Helgin 25.-27. september 2015 Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér ré tt ti l l ei ð ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t á n fy rir va ra . Frá kr. 139.900 m/morgunmat Netverð á mann frá kr. 139.900 á Hotel Villa Linda m.v. 2 í herbergi. Sikiley Skelltu þér í sólarferð 5. október í 10 nætur SÉ RT ILB OÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.